Menning

Íhugaði að skilja verðlaunagripinn eftir á hótelherberginu
Auður Ava er afar ánægð með verðlaunin en segist ekki endilega vön sigurtilfinningunni.

Auður Ava hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Auður Ava hlýtur verðlaunin fyrir verk, sem að mati dómnefndar, einkennist af útsmognum húmor og leiftrandi fjörugu tungumáli en spyr jafnframt spurninga um lífið og dauðann.

Kona fer í stríð hlýtur Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
Kvikmyndin hlaut verðlaunin fyrir leiftrandi skemmtilega meðferð á hápólitísku viðfangsefni.

Hjón tilnefnd heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur
Hjónin Guðrún Stefánsdóttir og Theodór Júlíusson voru í gær tilnefnd heiðursfélagar Leikfélags Reykjavíkur.

Sannfærður um velgengni í Japan
Sinfóníuhljómsveit Íslands er á leið í tónleikaferð til Japans ásamt aðalheiðursstjórnanda sínum, Vladimir Ashkenazy.

Trúarleg lotning og húmor og léttleiki
Víkingur spilar meistaralega og dregur fram óvanalega heilsteypta mynd af Bach.

Allir gagnrýnendur eru óþolandi fífl
Eiríkur Örn Norðdahl segir meðal annars í mögnuðu viðtali að bókmenntir séu siðlaus verknaður.

Litla hafpulsan í tjörninni vekur athygli
Listaverkið Litla Hafpulsan var afhjúpað í gær og stendur í Tjörninni í Reykjavík. Listakonan Steinunn Gunnlaugsdóttir segir pulsuna vera myndlíkingu fyrir lýðræðið.

Uppljómun um helvíti
Einar Thoroddsen læknir var nær áratug í ígripum að vinna að þýðingu sinni á Víti eftir Dante Alighieri. Það var bróðir hans Jón sem kallaði hann til verksins. Nú er vegleg og falleg bók komin út með teikningu Ragnars Kjartanssonar sem dregur þar upp sínar eigin myndir af helvíti. Jón er ritstjóri verksins og skrifar jafnframt inngang.

Að leggja orð í belg getur gert mönnum illt
Eiríkur Guðmundsson rithöfundur tekur blaðamann Vísis til bæna.

Bein útsending: Sinfó hitar upp fyrir Japan
Uppselt er á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld en tónleikarnir verða teknir upp í mynd og sendir út beint á Vísi.

Finnum vonandi sameiginlegan hljóm
Einungis allir er alþjóðleg sýning sem verður opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi. Þar veltir fólk fyrir sér ættjarðarást, tungumálum, fólksflutningum, frelsi og uppflosnun. Jonatan Habib Engqvist er sýningarstjóri.

Arnaldur rýfur fimm hundruð þúsunda eintaka sölu á Íslandi
Ótrúlegar vinsældir glæpasagnahöfundarins.

„Náttúruníðingur“ meðal sýnenda á listahátíðinni Cycle
Listahátíðin Cycle hefst á morgun og stendur yfir þar til á sunnudaginn. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er Þjóð meðal þjóða.

Róleg lög í öndvegi
Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona, gefur út plötu í dag sem nefnist Eilífa tungl. Hún segir róleg og falleg lög einkenna hana.

Afmælishátíð íslenska hestsins í Danmörku
Samtök eigenda íslenska hestsins í Danmörku héldu upp á fimmtíu ára afmæli sitt í gær í samvinnu við íslenska sendiráðið í Kaupmannahöfn og Íslandsstofu.

Saga sem er eins og lífið sjálft
Sally Magnusson segir í fyrstu skáldsögu sinni frá Ástu Þorsteinsdóttur sem rænt var í Tyrkjaráninu. Tileinkar bókina vinkonu sinni Vigdísi Finnbogadóttur.

Skrásetur stundir í Kling og Bang
Sara Riel opnar í dag sýningu sína Sjálfvirk/Automatic í Kling og Bang. Sara sýnir teikningar, málverk og skúlptúra, auk þess sem hún verður með daglegan gjörning í rýminu og gefur út bók tengda sýningunni.

Andstæðurnar spennandi – að elska og hata á sama tíma
Vetrarbræður, mynd Hlyns Pálmasonar, keppir um Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 30. október sem framlag Danmerkur. Hlynur segir hér frá nýjustu mynd sinni, Hvítur hvítur dagur, en tökum er nýlokið.

Ópera um alla Reykjavík
Í dag hefjast Óperudagar í Reykjavík sem standa yfir til 4. nóvember. Settir verða upp ýmsir viðburðir í leikhúsum, söfnum og tónlistarhúsum borgarinnar og einnig á óhefðbundnari stöðum svo sem í Árbæjarlaug og víðar.

Vonin er það eina sem við eigum
Birgir Snæbjörn Birgisson myndlistarmaður ætlar að spjalla við gesti Listasafns Árnesinga, Austurmörk 21 í Hveragerði, á sunnudaginn klukkan 15. Aðalumræðuefnið er verk hans Von sem þar er til sýnis og samanstendur af 64 máluðum portrettum af þeim alþingismönnum sem kosnir voru á þing vorið 2013. Það er í eigu Listasafns Íslands.

Við erum öll á ferðalagi um lífið þó farartækin séu ólík
Vort daglegt brauð nefnir Sara Vilbergsdóttir nýjustu sýningu sína. Hana opnar hún í Gallerí Göngum í Háteigskirkju á sunnudag, 21. október klukkan 16. Þar eiga stefnumót verk á ólíkum aldri, það elsta er frá 2006 og yngsta rétt óþornað.

Syngjandi tannlæknir heiðrar Burt Bacharach
Kristín Stefánsdóttir, söngkona og tannlæknir, mun stíga á svið í Salnum í Kópavogi í kvöld ásamt 18 manna hljómsveit og heiðra Burt Bacharach sem varð níræður í maí síðastliðnum.

Tilraunir til að eima tilveruna
Yfirlitssýning á verkum Haraldar Jónssonar á Kjarvalsstöðum. Sýningin teygir sig út í nágrennið og hús við Flókagötu geyma ný verk listamannsins.

Haukur hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Haukur Ingvarsson hlaut í dag 18. október Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2018 fyrir ljóðahandritið Vistarverur.

Syngur í Rínargulli Wagners í Þýskalandi og aríur í Hannesarholti
sasöngvarinn Bjarni Thor Kristinsson syngur á hádegistónleikum í Hannesarholti á sunnudaginn, 21. október, klukkan 12.15.

Birkir Blær hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin
Birkir Blær Ingólfsson, rithöfundur, tónlistarmaður og blaðamaður, er handhafi Íslensku barnabókaverðlaunanna þetta árið fyrir bók sína Stormsker - Fólkið sem fangaði vindinn.

Linda Cuglia með sýningu í Gallery Port
Ítalska listakonan Linda Cuglia heldur sýna fyrstu einkasýningu á Íslandi í Gallery Port.

Barnabækur veita skjól og byggja brýr
Margt áhugavert er í boði fyrir bókelsk börn og aðra áhugasama um ungmennabækur á barnabókahátíðinni Úti í Mýri sem stendur yfir í Norræna húsinu. Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur leggur sitt til málanna.

Fantasíur hins einstaka Karls Dunganon
Fyrsta yfirlitssýningin á verkum listamannsins í Listasafni Íslands. Sérstakur persónuleiki og sérstæður listamaður. Bók á leiðinni.