Íslenskur leikhópur í útrás til Bandaríkjanna: „Waiter! There's an Icelander in my Soup!“ Sylvía Hall skrifar 12. ágúst 2019 16:45 Edda Björgvinsdóttir skrifaði verkið sem hópurinn mun setja upp og mun einnig fara með hlutverk.
Útskriftarhópur Leiklistarskóla Íslands árið 1978 býr sig nú undir ansi langt ferðalag, nánar tiltekið til Washingtonríkis á vesturströnd Bandaríkjanna. Þar hyggst hópurinn setja upp leikverkið „Waiter! There‘s an Icelander in my Soup!“ sem skrifað er af einum meðlim hópsins, stórleikkonunni Eddu Björgvinsdóttur. Leikararnir sem munu setja upp verkið eru þau Edda Björgvinsdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Helga Thorberg, Guðrún Þórðardóttir, Ingólfur Björn Sigurðsson og Elfa Gísladóttir. Leikritið er spunaverk að hluta og byggir á leikverkinu „Þjónn í súpunni“ sem sýnt var í Iðnó fyrir aldamótin og fóru þær Edda og Lilja Guðrún einnig með hlutverk í þeirri sýningu ásamt Stefáni Karli Stefánssyni heitnum.Hópurinn er afar samheldinn að sögn Eddu.Þegar blaðamaður náði tali af Eddu var hún stödd á Keflavíkurflugvelli ásamt hópnum þar sem þau bjuggu sig undir flug til Seattle. Hún segir mikla tilhlökkun vera í hópnum, enda bíður þeirra gamall skólafélagi í Bandaríkjunum sem er búsettur á svæðinu og sér um staðinn sem mun hýsa leikritið.Byrjuðu að vinna saman eftir að hafa barist fyrir bættri umferðarmenningu „Ein bekkjarsystir okkar keypti búgarð um klukkutíma frá Seattle og breytti því og var þarna með „Murder Mystery-theatre“ og við erum að fara að leika í þessu, í svona eins og kaffileikhúsi,“ segir Edda aðspurð hvernig það kom til að hópurinn ákvað að ferðast alla leið til Washingtonríkis í því skyni að setja upp leiksýningu. Umrædd bekkjarsystir er Elfa Gísladóttir, sem fer með hlutverk í sýningunni. Edda segir hópinn lofa miklu fjöri og þau séu staðráðin í að gera „allskonar skemmtilegt“ fyrir sýningargesti. Þau séu góðir vinir og hafi haldið hópinn alla tíð frá útskrift, enda sé slíkt nauðsynlegt fyrir leikara sem þurfa oft að hafa mikið fyrir hlutunum eftir útskrift.Útskriftarhópurinn í heild sinni.„Fyrstu árin fara bara í eitthvað rosalegt basl og það liðu nokkur ár þangað til við tókum höndum saman og fórum að berjast fyrir bættri umferðarmenningu eftir að vinkona okkar lenti í bílslysi og lést og við fórum að gera þá kröfu að það væri ekki alltaf tuttugu manns sem létu lífið á hverju ári í umferðinni,“ segir Edda um þennan baráttuhóp eins og hún kallar hann sjálf. Í kjölfarið fóru þau að starfa saman að ýmsum verkefnum og segir hún andann í hópnum hafa alla tíð verið afar góðan. Hún segir hópinn vera hrikalega spenntan fyrir sýningunni og ferðalaginu sem er fram undan. Þau séu búin að hittast og ákveða ákveðinn ramma utan um sýninguna, en líkt og fyrr sagði er verkið að stærstum hluta spuni svo það mun ýmislegt koma áhorfendum á óvart. „Ég eiginlega bjó til enska útgáfu af þessu þar sem þjónar eru með vitleysisgang og eru að abbast upp á gesti þannig að hluta til er þetta spuni en það er alveg ákveðinn rammi,“ segir hún og bætir við að hópurinn stefni á stífar æfingar þegar á leiðarenda er komið.
Bandaríkin Leikhús Mest lesið Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Lífið „Þetta er lúmskt skrímsli“ Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið 50+: Tómleikatilfinningin þegar börnin fljúga úr hreiðrinu Áskorun Dóttir De Niro kemur út sem trans Lífið Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Íslendingar vekja athygli í menningarlífi Kaupmannahafnar Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025 Lóa Hlín, Rán, Mars og Elías Rúni fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Sjá meira