Ari Jóhannesson
Útgefandi: Mál og menning
Fjöldi síðna: 212
Spánska veikin var ein skelfilegasta farsótt sem gengið hefur yfir landið, ekki hvað síst fyrir það að hún lagðist þyngst á ungt fólk og fólk á besta aldri, þá sem báru uppi samfélagið bæði hvað varðar atvinnulíf og umönnun. Urðarmáni gerist á haustmánuðum 1918 þegar spánska veikin bættist eins og djöflakrydd ofan á eldgos með tilheyrandi öskufalli og nístandi ískulda sem þegar réðu lögum og lofum í Reykjavík og álagið á samfélagið var gríðarlegt, ekki síst á heilbrigðisstarfsfólk. Höfundur bókarinnar Urðarmáni er læknir og sækir efniviðinn í heimildir um þetta tímabil sögunnar og greinilegt á bókinni að hann hefur bæði áhuga og ástríðu fyrir því. Sagan hefst um það leyti sem spánska veikin kemur til landsins og fylgir nokkrum persónum, bæði raunverulegum og ímynduðum af höfundarins hendi gegnum þessa hamfaratíma. Rammi hennar er frásögn læknis í nútímanum eða mjög náinni framtíð sem talar til nemenda sinna þegar skæð inflúensa sem svipar óhugnanlega til þeirrar fyrir rúmum hundrað árum, berst hingað með ferðamönnum og útlit er jafnvel fyrir að eitthvað af sögunni endurtaki sig.

Þessi saga á hiklaust erindi við íslenska lesendur í dag, bæði vegna skemmtanagildis og af sagnfræðilegum og fagurfræðilegum ástæðum.
Niðurstaða: Áhugaverð og spennandi saga um aldargamla hamfaradaga.