

Breiðablik vann öruggan sigur á Tindastól er liðin mættust í Bestu deild kvenna í kvöld en Agla María Albertsdóttir skoraði þrennu í leiknum.
Spútniklið FH tók á móti Val í 11. umferð Bestu deildar kvenna nú í kvöld. Fyrir leikinn sat FH í fjórða sæti með 17 stig á meðan Valur var í öðru sæti með 20 stig, jafn mörg og Breiðablik sem sat á toppnum. Eftir afar bragðdaufar sextíu mínútur fengum við fimm mörk síðasta hálftímann og var það Valur sem fór með 3-2 sigur af hólmi.
KA er komið í úrslitaleik Mjólkurbikars karla eftir frækinn sigur gegn Breiðabliki á Greifavellinum á Akureyri í dag. Staðan var 2-2 eftir venjulegan leiktíma þar sem KA jafnaði með síðustu spyrnu leiksins. Liðin skoruðu svo sitt hvort markið í framlengingu áður en KA hafði betur í vítaspyrnukeppni.
Stjarnan gerði góða ferð til Vestmannaeyja og vann 2-1 sigur á ÍBV í leik liðanna í Bestu deild kvenna í kvöld.
Aron Elís Þrándarson er byrjaður að æfa með Víkingum en hann er að snúa aftur til uppeldisfélagsins eftir átta ár í atvinnumennsku.
KA og Breiðablik mætast í dag í fyrri undanúrslitaleiknum í Mjólkurbikar karla í fótbolta, á Greifavellinum á Akureyri.
Katla Tryggvadóttir og félagar hennar í Þrótti unnu flottan 3-0 sigur á Selfossi í fyrsta leik elleftu umferðar Bestu deildar kvenna í fótbolta í gærkvöldi.
Þróttur vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti botnliði Selfoss í fyrsta leik 11. umferðar Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld. Með sigrinum stökk Þróttur upp í þriðja sæti deildarinnar, en Selfyssingar eru enn límdir við botninn.
Erna Guðrún Magnúsdóttir og Sigdís Eva Bárðardóttir, leikmenn Víkings, mættu glaðbeittar til Helenu Ólafsdóttur í Bestu upphitunina og rýndu meðal annars í komandi leiki í 11. umferð Bestu deildarinnar í fótbolta.
Gylfi Þór Sigurðsson var með á æfingu Vals á Hlíðarenda í dag en hann vinnur nú að því að snúa aftur í fótbolta eftir að hafa síðast spilað leik í maí 2021.
Fimm knattspyrnukonur eru tilnefndar sem leikmaður mánaðarins í júní, í Bestu deildinni. Kosningin fer fram á Vísi og niðurstöðurnar verða kynntar í Bestu mörkunum.
Perry Mclachan hefur verið rekinn frá KR. Hann stýrði liðinu í Lengjudeild kvenna. Árangurinn hefur ekki verið nægilega góður og situr liðið í næst neðsta sæti með sex stig.
„Þetta er svo geggjað, að við séum í Lengjudeildinni og séum að fara á Laugardalsvöll. Þetta er æðislegt,“ segir Sigdís Eva Bárðardóttir, hin 16 ára hetja Víkinga sem skoraði bæði mörk liðsins þegar það tryggði sér sæti í bikarúrslitum í fyrsta sinn.
Brynjar Gauti Guðjónsson, varnarmaður Fram í Bestu deild karla, yfirgaf Úlfarsárdal í sjúkrabíl eftir að meiðast í 3-2 sigri liðsins á HK. Hann meiddist á öxl í leiknum og óttuðust menn það versta skömmu eftir að flautað var til leiksloka.
FH tekur á móti Víkingi í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta í kvöld og boði er sæti í sjálfum bikarúrslitaleiknum.
FH-ingar steinlágu 5-0 á móti Stjörnunni í Bestu deild karla í fótbolta í Garðabænum í gærkvöldi og þetta var sögulegt tap.
Lesendur Vísis geta núna valið þann leikmann sem þeir telja að hafi verið bestur í Bestu deild karla í fótbolta í júní. Átta leikmenn eru tilnefndir.
Þrír leikmenn KA voru ekki með liðinu gegn ÍBV í Vestmannaeyjum á miðvikudag vegna agabanns, eftir að þeir ákváðu án leyfis að dvelja degi lengur í Reykjavík eftir leik gegn KR um síðustu helgi.
Stúkan fór yfir þrettándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í gærkvöldi og það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart að Lárus Orri Sigurðsson og Albert Brynjar Ingason voru einu sinni sem oftar ekki sammála í þættinum.
Stjarnan og Víkingur fögnuðu bæði sigri í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og skoruðu samtals átta mörk í leikjum sínum.
Topplið Víkings vann 1-3 útisigur á Fylki. Gestirnir komust yfir snemma í leiknum en það tók Fylki aðeins tvær mínútur að jafna. Víkingur komst síðan aftur yfir snemma í síðari hálfleik. Ari Sigurpálsson skoraði þriðja mark Víkings þegar heimamenn köstuðu öllu liðinu fram til að freista þess að jafna metin á 95. mínútu.
FH-ingar heimsækja nágranna sína í Stjörnunni í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld en leikurinn fer fram á gervigrasvelli Garðbæinga.
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær þar sem ÍBV, KR og Fram fögnuðu sigri. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér á Vísi.
KR-ingar taka í kvöld á móti gömlum leikmanni félagsins sem á enn eftir að fagna sigri á móti Vesturbæjarfélaginu.
Breiðablik raðaði inn mörkum þegar liðið hóf Evrópuævintýri sitt þetta sumarið á Kópavogsvelli í gær með því að vinna Tre Penne frá San Marínó, 7-1.
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Bestu deildar liðs Víkings Reykjavíkur, segir nýjan leikmann félagsins Aron Elís Þrándarson besta leikmann deildarinnar á sínum degi. Koma hans til Víkings feli í sér yfirlýsingu frá félaginu til andstæðinga sinna.
„Ég hef verið spurður í hvert sinn sem ég kem í Víkina hvenær ég komi eiginlega heim. Það er alveg skemmtilegt að fólk sýni svona tilhlökkun í að maður komi til baka,“ segir Aron Elís Þrándarson sem ákveðið hefur að snúa heim úr atvinnumennsku og spila með Víkingi á nýjan leik.
Íslandsmeistarar Breiðabliks spila fyrsta Evrópuleik íslensk knattspyrnuliðs í ár þegar liðið mætir S.P. Tre Penne frá San Marínó á Kópavogsvelli í kvöld.
Murielle Tiernan, framherji Tindastóls var kampakát eftir 0-1 sigur gegn Keflavík á HS Orku vellinum. Leikið var í tíundu umferð Bestu deildar kvenna.
Fanndís Friðriksdóttir fékk viðurkenningu fyrir stórleik Breiðabliks og Vals í Bestu deild kvenna í gærkvöldi.