Innlent
296 297 298 299 300 301 302 303 304 … 334 ›
Forsetahjónin í opinberri heimsókn til Reykjavíkur á fimmtudag Þétt dagskrá verður í boði borgarinnar þegar forsetahjónin heimsækja höfuðborgina á fimmtudaginn. Borgarstjórahjónin munu leið þau í gegnum borgina á hina ýmsu viðburði og fjölbreyttar heimsóknir. Borgarbúum gefst kostur á að hitta þau á Kjarvalsstöðum. Innlent 21.11.2023 08:37
Starfsmaður hótels dæmdur fyrir að nauðga gesti með þroskahömlun Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann, Philip Dugay Acob, í þriggja ára fangelsi og greiðslu miskabóta fyrir að hafa nauðgað manni með þroskahömlun á hótelherbergi í október 2021. Innlent 21.11.2023 08:14
Íbúum um 100 fasteigna hleypt inn í Grindavík í dag Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að hleypa íbúum um 100 fasteigna inn í Grindavík í dag. Aðgerðir hefjast klukkan 9 en forsvarsmönnum fyrirtækja verður hleypt inn klukkan 15. Innlent 21.11.2023 08:05
Veðrið setur strik í reikninginn hjá skjálftamælunum Skjálftavirkni á Reykjanesinu í nótt hefur verið svipuð og undanfarið. Innlent 21.11.2023 07:20
Koma upp neyslurými í einingahúsum Rauði krossinn leggur nú lokahönd á umsókn til Reykjavíkurborgar um afnot af lóð í Reykjavík. Á lóðinni á að koma fyrir einingahúsum þar sem hægt verður að setja upp neyslurými. Innlent 21.11.2023 07:01
Einn ók á ljósastaur sem féll á annan Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna umferðarslyss á mótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar. Þar hafði bifreið verið ekið á ljósastaur, með þeim afleiðingum að staurinn féll ofan á aðra bifreið. Innlent 21.11.2023 06:56
Gott að geta gefið til baka: „Grindvíkingar tóku afskaplega vel á móti skrýtnum strák“ Skólastjóri Laugarlækjaskóla segir gott að geta gefið til baka til Grindvíkinga, en hann bjó sjálfur í Grindavík sem unglingur. Elstu bekkir grunnskólanemenda úr bænum fá aðstöðu til náms í skólanum. Nemendur ætla að taka vel á móti jafnöldrum sínum í Grindavík. Innlent 20.11.2023 23:01
Vonar að frumvarpið skili fullum launum til Grindvíkinga Frumvarp félagsmálaráðherra um launagreiðslur til Grindvíkinga mun gilda frá 11. nóvember, verði það að lögum. Þar er kveðið á um hámarkgreiðslu upp á 633 þúsund krónur til atvinnurekenda, fyrir hvern starfsmann. Ráðherra segist þó gera ráð fyrir því að frumvarpið tryggi full laun til þeirra sem hafa hærri tekjur en hámarkið sem kveðið er á um. Innlent 20.11.2023 21:48
Keyptu byssur fyrir 165 milljónir en gefa ekki upp fjöldann Mat dómsmálaráðuneytisins er að birting nákvæmra upplýsinga yfir byssur í eigu lögreglu falli undir lykilupplýsingar um viðbragðsgetu lögreglu. Hún geti þar með haft afdrifaríkar afleiðingar, stofnað öryggi ríkisins í hættu og haft áhrif á öryggi lögreglumanna. Skotvopn voru keypt fyrir 165 milljónir króna fyrr á árinu vegna leiðtogafundar í Hörpu. Innlent 20.11.2023 21:07
Brýnt að Grindvíkingar fái skýr svör á næstu dögum Menningar- og viðskiptaráðherra segir brýnt að Grindvíkingar fái betri svör en hingað til frá lánastofnunum varðandi tilslakanir á lánum þeirra. Að öðrum kosti þurfi að bregðast við stöðunni á Alþingi. Innlent 20.11.2023 19:51
Tveggja bíla árekstur við Sæbraut Tveggja bíla árekstur varð nú á áttunda tímanum á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar. Er Sæbraut lokuð til austurs á meðan viðbragðsaðilar athafna sig á vettvangi. Innlent 20.11.2023 19:51
Boðum um að aðstoða björgunarsveitir rignir yfir aðgerðarstjórn Beiðnum um að koma mat til björgunarsveita rignir yfir aðgerðarstjórn björgunarsveita í Grindavík. Aðgerðarstjórnin hefur því komið á fót sérstöku netfangi þar sem hægt er að láta björgunarsveitir vita ef viðkomandi vill leggja sitt af mörkum. Innlent 20.11.2023 19:02
Hvetja almenning til að tilkynna auglýsingar á útlensku til stjórnvalda Menningarráðherra og Neytendastofa hafa sent frá sér viljayfirlýsingu um átaksverkefni þar sem herör er skorin upp gegn auglýsingaefni sem ekki er á íslensku. Almenningur er hvattur til að tilkynna auglýsingaefni á öðrum málum en íslensku. Innlent 20.11.2023 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hröðun hefur orðið á landrisi í Svartsengi síðasta sólarhringinn og Veðurstofa hefur stækkað hættusvæði í nágrenninu. Almannavarnir hafa kallað til björgunarsveitarfólk af öllu landinu og biðja vinnuveitendur þess um skilning. Innlent 20.11.2023 18:01
Hættusvæðið í kringum Grindavík stækkað Hættusvæðið í kringum Grindavík vegna jarðhræringa hefur verið verið stækkað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. Innlent 20.11.2023 17:20
Taka fram að hægt sé að nota eldri treyjur í ljósi Facebook-umræðu Stjarnan hefur sent frá sér tilkynningu vegna nýrra keppnisbúninga hjá knattspyrnudeild félagsins. Þar er tekið fram að þeir sem hafi nýlega keypt gamla búninga muni mega að nota þá áfram þegar þeir nýju komi í febrúar á þessu ári. Innlent 20.11.2023 15:20
Sverrir segir frásögn Birgis af ungabarni í bakaraofni fráleita Sverrir Agnarsson, sem eitt sinn var formaður Félags múslima á Íslandi, segir frásögn Birgis Þórarinssonar alþingismanns af voðaverkum Hamas í besta falli bull. Innlent 20.11.2023 14:51
Lögreglan lýsir eftir ellefu ára dreng Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti í dag eftir dreng að beiðni barnaverndaryfirvalda. Innlent 20.11.2023 14:11
Á meðan kvika er svo grunnt geti fólk ekki farið heim Jarðeðlisfræðingur segir enn líklegast að gjósi nærri Hagafelli ef til eldgoss kemur. Ekki sé hægt að spá til um kvikuflæði fyrr en kvikan er komin upp. Hann segir íbúa ekki geta farið heim á meðan kvika mælist svo grunnt. Innlent 20.11.2023 14:06
Vonar að vinnuveitendur sýni björgunarsveitafólki skilning Almannavarnir hafa sent út fjöldaboð til allra björgunarsveita á landinu. Meiri mannskap þarf í verkefnið. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segist vonast til þess að vinnuveitendur taki tillit til þess þegar fólk með kunnáttu þurfi að hverfa frá vinnu. Innlent 20.11.2023 13:58
Deila kostnaði vegna dagdvalar fyrir heimilislausa Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætla að taka þátt í rekstri dagdvalar fyrir heimilislausa yfir köldustu vetrarmánuðina. Dagdvölin verður rekin í húsnæði Samhjálpar og hefur velferðarráð Reykjavíkurborgar þegar samþykkt að koma rekstrinum. Innlent 20.11.2023 13:00
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum setur fjölmiðlum ótækar takmarkanir Formaður Blaðamannafélags Íslands segir víðtækar takmarkanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum á störf fjölmiðla í og í kringum Grindavík ótækar. Fjölmiðlar væru hindraðir í að hafa eftirlit með aðgerðum yfirvalda og til að afla upplýsinga sem vörðuðu Grindvíkinga og allan almenning í landinu. Innlent 20.11.2023 12:08
Bullað látlaust í erlendum ferðamönnum Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður hendir í langan pistil þar sem hún spyr hvort íslenskir leiðsögumenn romsi bulli yfir erlenda ferðamenn? Innlent 20.11.2023 12:05
Upplýsingafundur: Ekki skólaskylda en „safnskólar“ og hverfisskólar standa til boða Mikið verkefni stendur yfir og fyrir dyrum í Grindavík og öllum árum róið að því að koma lífi Grindvíkinga sem neyðst hafa til að flýja heimili sín í farveg. Þetta var meðal þess sem kom fram á upplýsingafundi Almannavarna rétt í þessu. Innlent 20.11.2023 11:43
Alvarleg staða að vera bara með eina skemmda neysluvatnslögn Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir erfiða stöðu uppi vegna skemmda sem orðið hafa orðið á neysluvatnslögninni til eyja. Í dag verður staðan á lögninni skoðuð og viðbrögð og viðgerð áætluð. Innlent 20.11.2023 11:37
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum tökum við stöðuna á ástandinu á Reykjanesi og segjum frá því helsta sem fram kom á upplýsingafundi Almannavarna fyrir hádegið. Innlent 20.11.2023 11:32
Óvíst með framtíð Iceland Noir Bókmenntahátíðinni Iceland Noir lauk á laugardaginn. Framkoma Hillary Clinton var síðan sérviðburður, laustengdur . Yrsa Sigurðardóttir, sem ásamt Ragnari Jónassyni, stóð fyrir hátíðinni segir framtíð hennar til athugunar. Innlent 20.11.2023 11:05
Gagnrýnir Veðurstofuna fyrir að hamla aðgengi að GPS-gögnum Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Veðurstofu Íslands fyrir að takmarka aðgengi almennings að GPS-gögnum sem geri mönnum kleift að fylgjast með jarðskorpuhreyfingum. Segir hann að Veðurstofunni beri skylda til að koma þessum gögnum á framfæri svo þau séu öllum aðgengileg. Innlent 20.11.2023 10:40
Allar líkur á að eitthvað finnist sem hefði aldrei valdið skaða Læknar hafa töluverðar áhyggjur af nýrri rannsókn sem farið er að bjóða upp á, sem felur í sér segulómun alls líkamans. Þeir segja rangnefni að kalla rannsóknina „skimun“ og segja hana ekki munu gagnast þeim sem markaðssetningunni er miðað að. Innlent 20.11.2023 10:29
Upplýsingafundur Almannavarna vegna ástandsins í Grindavík Almannavarnir hafa boðað til upplýsingafundar í Skógarhlíð klukkan 11 í dag. Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn og sviðsstjóri Almannavarna, stjórnar fundinum. Innlent 20.11.2023 10:18