Ekkert vesen á hrjótandi gesti í Sjóminjasafninu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 12. nóvember 2025 11:19 Guðbrandur segir manninn hafa hegðað sér vel. Viðbragðsáætlun Sjóminjasafnsins var virkjuð þegar hrjótandi heimilislaus maður fannst í hengirúmi á safninu í gær á opnunartíma safnsins. Safnstjóri segir manninn hafa verið kurteisan og hegðað sér vel, um verkferla hafi verið að ræða.
Fram kom í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að lögreglan hefði meðal annars verið kölluð til í gær vegna einstaklings sem svaf í hengirúmi á safni í miðborginni. Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögusafnsins sem rekur meðal annars Sjóminjasafnið staðfestir í samtali við Vísi að maðurinn hafi fengið sér blund á Sjóminjasafninu, þó ekki að miðri nóttu líkt og halda mætti við lestur lögregludagbókarinnar. „Það var ekkert vesen á manninum. Hann kom þarna inn og kom sér fyrir í einu hengirúmi á sýningarsvæði og sofnaði og hraut. Svo er bara viðbragðsáætlun sem við virkjum svo að starfsfólk lendi ekki í neinum hremmingum og lögreglan fengin til aðstoðar. Hann var bara drukkinn en kurteis og það var allt í góðu.“ Guðbrandur segir þúsundir gesta mæta á safnið og þeir geti stundum verið í misjöfnu ástandi. „Það er ýmislegt sem getur komið upp á, þó svona lagað sé kannski meira bundið við miðbæinn og sjaldgæfara hjá okkur hér í Árbæjasafni. Þetta er bara hluti af miðbænum.“ Hann segir sannkallaða vertíð Borgarsafnsins framundan. „Það styttist í jólin og þá er alltaf líf og fjör á Árbæjarsafni. Það er alltaf stemning á söfnunum okkar á þessum árstíma og við hlökkum til.“
Söfn Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira