Erlent
177 178 179 180 181 182 183 184 185 … 334 ›
Færri bjargað í dag og eyðileggingin algjör Ríflega 22 þúsund eru nú sagðir látnir eftir skjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi en einhverjum hefur verið bjargað úr rústum bygginga í dag eftir meira en hundrað klukkustundir. Björgunarstarf er þó að renna út á tíma en aðgerðarstjórnandi íslenska teymisins segir töluvert færri finnast á lífi. Erlent 10.2.2023 16:56
Vilja stofnan nýjan gjaldmiðil fyrir S-Ameríku Forsetar tveggja stærstu ríkja Suður-Ameríku, Argentínu og Brasilíu, hafa lýst yfir vilja sínum til að stofna til sameiginlegs gjaldmiðils ríkjanna. Síðar meir, segja þeir, geti önnur ríki álfunnar slegist í hópinn. Erlent 10.2.2023 15:01
Tíu daga barni bjargað úr rústunum Björgunarsveitir í Tyrklandi björguðu í dag tíu daga gömlu barni og móður þess úr rústum húsnæðis sem hrundi í jarðskjálftunum miklu í vikunni. Erlent 10.2.2023 14:12
Telja mann hafa myrt tvo í Þrándheimi áður en hann svipti sig lífi Lögreglan í Þrándheimi hefur til rannsóknar andlát þriggja sem fundust látin í heimahúsi í Þrándheimi í gærkvöldi. Ein af kenningunum sem lögregla er að vinna með er að einn hinna látnu hafi myrt hina tvo áður en hann svipti sig lífi. Erlent 10.2.2023 10:20
Loftvarnaflautur hljóma og íbúum um allt land sagt að leita skjóls Loftvarnaflautur hafa hljómað út um alla Úkraínu í morgun og íbúar hvattir til að leita skjóls. Yfirvöld hafa varað við því að Rússar hyggist gera umfangsmiklar loftárásir á landið í dag. Erlent 10.2.2023 08:34
Banna kannabis á götum rauða hverfisins í Amsterdam Borgaryfirvöld í Amsterdam í Hollandi hafa lagt bann við kannabisreykingum á götum „rauða hverfisins“ og sömuleiðis hert reglur um aðsókn að skemmtistöðum og veitingastöðum. Erlent 10.2.2023 07:54
Rúmlega tuttugu og eitt þúsund látnir Opinberar tölur yfir dauðsföll í jarðskjálftunum í Tyrklandi og Sýrlandi standa nú í 21.719 og fjölgaði í hópi látinna um 668 í nótt. Erlent 10.2.2023 06:52
Kokkur Pútíns hættur að ráða fanga í Wagner Yevgeny Prigozhin, eigandi rússneska málaliðahópsins Wagner Group, sagði frá því í dag að hann væri hættur að ráða málaliða úr fangelsum Rússlands. Föngum hefur um nokkurra mánaða skeið boðist að ganga til liðs við Wagner og þjóna í sex mánuði í Úkraínu í skiptum fyrir frelsi. Erlent 9.2.2023 22:34
Komu höndum yfir áætlun um yfirtöku Rússa í Moldóvu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í dag að Úkraínumenn hefðu komist á snoðir um áætlun leyniþjónusta Rússlands sem sneru að því að gera árásir á Moldóvu. Leyniþjónusta Moldóvu hefur staðfest þessar fregnir. Erlent 9.2.2023 20:06
Nýr varaformaður Íhaldsflokksins segir árangur dauðarefsingarinnar 100% „Já. Það hefur enginn framið glæp eftir að hafa verið tekinn af lífi. Þú veist það, er það ekki? Árangurinn er 100%.“ Þetta sagði nýskipaður varaformaður Íhaldsflokksins, Lee Anderson, í viðtali við Spectator sem birt var í gær. Erlent 9.2.2023 12:38
Íslenski hópurinn tekur til hendinni í Tyrklandi Hópur björgunarsveitarmanna frá Íslandi lenti í Tyrklandi í gærnótt. Hópurinn er nú búinn að koma sér fyrir við Hatay Expo svæðið í Antakya borg, þar sem yfirstjórn aðgerða á svæðinu er. Erlent 9.2.2023 10:57
Alræmdur málaliðaforingi skotinn í höfuðið á stuttu færi Hinn alræmdi herforingi og málaliði Igor Mangushev er látinn eftir að hafa verið skotinn í höfuðið af stuttu færi við varðstöð í Kadiivka. Eiginkona hans segir um aftöku að ræða og ýjað hefur verið að því að yfirmaður Wagner-hópsins hafi fyrirskipað morðið. Erlent 9.2.2023 08:58
Ástralir fjarlægja 900 öryggismyndavélar frá Kína úr opinberum byggingum Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að fjarlægja um það bil 900 öryggismyndavélar framleiddar í Kína úr opinberum byggingum. Þau segja vélarnar, frá fyrirtækjunum Hikvision og Dahua, mögulega ógn við öryggi landsins. Erlent 9.2.2023 07:59
Litlar líkur á að fleiri finnist á lífi Tala látinna í Tyrklandi og í Sýrlandi eftir jarðskjálftana sem þar riðu yfir nálgast nú sextán þúsund manns óðfluga. Erlent 9.2.2023 07:15
Mikilvægar vikur í vændum í Úkraínu Ráðamenn í Úkraínu búast við umfangsmiklum árásum Rússa í austurhluta landsins á næstu vikum. Þeir segja Rússa hafa komið tugum og jafnvel hundruð þúsund hermönnum fyrir á svæðinu og þeir séu þegar byrjaðir að reyna að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur með því að senda hermenn fram í bylgjum. Erlent 8.2.2023 23:06
Órjúfanleg vinátta þjóðanna tveggja Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Bretlands í dag og fundaði með forsætisráðherra og konungi landsins. Þá ávarpaði hann breska þingið og þakkaði því stuðning í baráttunni við Rússa. Erlent 8.2.2023 20:00
Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17 Alþjóðlegt teymi rannsakenda segist hafa fundið sterkar vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega heimilað sendingu loftvarnarkerfis til aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem notað var árið 2014 til að skjóta niður farþegaþotu frá Malasíu. Ólíklegt sé þó að hægt verði að sækja hann til saka. Erlent 8.2.2023 19:15
Stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð Tyrknesk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast of hægt við afleiðingum jarðskjálftanna á mánudag. Nú er talið að yfir ellefu þúsund hafi farist í skjálftunum. Íslenskt björgunarfólk er komið á hamfarasvæðið í Tyrklandi. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 8.2.2023 19:00
Lítil stúlka fæddist í húsarústum Þessi nýfædda stúlka fannst í rústum í Sýrlandi en hún kom í heiminn þremur klukkutímum áður en hún fannst. Allir fjölskyldumeðlimir stúlkunnar eru látnir. Erlent 8.2.2023 14:59
Myndi stela apa aftur ef hann gæti Karlmaður sem grunaður er um að hafa stolið tveimur öpum úr dýragarðinum í Dallas segir að hann myndi stela fleiri öpum ef honum yrði sleppt úr haldi. Maðurinn er ekki talinn tengjast grunsamlegum dauðdaga hrægamms í sama dýragarði. Erlent 8.2.2023 13:12
Selenskí í óvæntri heimsókn til Bretlands í dag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti mun í dag heimsækja Bretland í fyrsta sinn síðan Rússar réðust inn í heimaland hans fyrir tæpu ári síðan. Heimsóknin er óvænt en við því er búist að Selenskí muni á morgun ferðast til Brussel til fundar við Evrópusambandið. Erlent 8.2.2023 10:40
Talaði um mikilvægi samvinnu þvert á flokka Joe Biden Bandaríkjaforseti flutti árlega stefnuræðu sína á Bandaríkjaþingi í nótt og biðlaði meðal annars til mótherja sinna í Repúblikanaflokknum að þeir hjálpuðu til við að rétta af efnahag Bandaríkjanna. Erlent 8.2.2023 08:28
„Hvað á ég að gera? Hvert á ég að fara?“ Heildarfjöldi látinna í jarðskjálftanum í Tyrklandi og Sýrlandi stendur nú í 8.400 en raunverulegur fjöldi er talinn mun meiri. 5. 894 hafa fundist látnir í Tyrklandi og 2.470 í Sýrlandi en þúsundir eru taldar fastar undir húsarústum. Erlent 8.2.2023 06:48
Vilja eigin kjarnorkuvopn af ótta við Norður-Kóreu Sífellt fleiri íbúar Suður-Kóreu eru þeirrar skoðunar að ríkið eigi að koma upp eigin kjarnorkuvopnum, til móts við vopn nágranna þeirra í Norður-Kóreu. Þá efast margir um að ríkið geti reitt sig á að Bandaríkjamenn komi þeim til varnar komi til stríðs á Kóreuskaganum. Erlent 7.2.2023 23:56
Rússar hóta að auka árásir sínar vegna vopnasendinga Bandaríkjamenn eru byrjaðir að senda Bradley bryndreka til Úkraínu en hafa einnig lofað að senda þangað öflugri skriðdreka ásamt nokkrum ríkjum Evrópu. Varnarmálaráðherra Rússlands segir að með þessu séu bandalagsþjóðirnar að reyna að lengja í stríðinu. Erlent 7.2.2023 19:50
Samstaða borgarbúa sé ótrúleg Þúsundir hafa farist eftir öfluga jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi í gær. Íslenskt björgunarsveitarfólk fer til Tyrklands til að aðstoða við björgunaraðgerðir. Samstaða íbúa Tyrklands er aðdáunarverð að mati íslenskrar konur sem býr á skjálftasvæðinu. Erlent 7.2.2023 19:00
Í kappi við kuldann Björgunarsveitir og aðrir leitaraðilar í Sýrlandi og Tyrklandi vinna nú hörðum höndum að því að ná fólki úr rústum húsa sem hrundu í öflugum jarðskjálftum í gær. Mikið kapp er lagt í að vinna hratt en mikill kuldi er á svæðinu. Erlent 7.2.2023 17:51
Breski raðnauðgarinn hlaut 36 lífstíðardóma Breski lögreglumaðurinn og raðnauðgarinn hefur hlotið 36 lífstíðardóma eftir að hann játaði að hafa gerst sekur um 49 kynferðisbrot, þar af 24 nauðganir, gegn tólf konum á átján ára tímabili. Hann mun þurfa að afplána að lágmarki þrjátíu ár í fangelsi. Erlent 7.2.2023 13:12
Landsbjörg aðstoðar við björgunaraðgerðir sem íbúi segir óskipulagðar Yfir fimm þúsund eru látin eftir harða jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi í gær. Íslenskur hópur sérfræðinga fer til Tyrklands síðar í dag til þess að aðstoða við björgunaraðgerðir. Kona búsett í Gaziantep í Tyrklandi segir björgunarstarf hingað til hafa virst óskipulagt. Erlent 7.2.2023 12:46
Tala látinna hækkar stöðugt og 65 lönd senda björgunarlið Opinberar tölur eftir jarðskjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi í fyrrinótt eru nú komnar yfir 4.300 látna og tugþúsundir særðra. Erlent 7.2.2023 06:40