

Vísindamenn hyggjast rannsaka hvort sykursýkis- og þyngdarstjórnunarlyf sem innihalda semaglutide geta hjálpað einstaklingum sem þjást af sjúkdómum á borð við fíkn og vitglöp.
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og frambjóðandi í forvali Repúblikana, hefur ákveðið að mæta mótframbjóðendum sínum ekki í kappræðum. „Almenningur veit hver ég er og hversu árangursríka forsetatíð ég átti. Þar af leiðandi mun ég ekki taka þátt í kappræðunum!“ sagði Trump á samfélagsmiðlinum Truth í gær.
Spænskur karlmaður um þrítugt á yfir höfði sér dauðadóm í Tælandi fyrir að hafa myrt kólumbískan ástmann sinn, bútað hann í sundur og dreift líkamshlutum hans á sorphauga og í sjóinn.
Hálendið og framtíð þess, staðan í pólitíkinni og staða fólks sem synjað hefur verið um alþjóðlega vernd en hefur lent á götunni verða til umræðu í þjóðmálaþættinum Sprengisandi á Bylgjunni klukkan tíu. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem efst eru á baugi í samfélaginu hverju sinni.
Luna-25, hið rússneska tunglfar, brotlenti á tunglinu. Þetta var fyrsta tilraun Rússa til að komast til tunglsins í 47 ár.
Yfirvöld í Mexíkó og í Bandaríkjunum búa sig nú undir komu fellibylsins Hilary en því mun fylgja gríðarleg rigning og búa yfirvöld í Kaliforníuríki sig undir mikil flóð vegna veðurofsans sem óttast er að geti valdið mannskaða.
Irvin Cartagena, dópsali í New York borg í Bandaríkjunum, hefur verið dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa útvegað leikaranum Michael K Williams, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í HBO þáttunum The Wire, heróín sem búið var að blanda saman við fentaníl en efnið dró leikarann til dauða.
Rúm 80 prósent allra fanga á Haíti eru gæsluvarðhaldsfangar sem enn hafa ekki hlotið dóm. Dæmi eru um að fólk sitji árum saman í gæsluvarðhaldi fyrir litlar sakir.
Dómstóll í Manchester í Bretlandi hefur sakfellt hjúkrunarfræðinginn Lucy Letby fyrir að hafa banað sjö ungbörnum – fimm drengjum og tveimur stúlkum – og gert tilraun til að bana sex til viðbótar.
Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslari Austurríkis, var ákærður fyrir að ljúga að þingnefnd sem rannsakaði hneykslismál sem felldi fyrstu ríkisstjórn hans. Fyrrverandi skrifstofustjóri Kurz er einnig ákærður í málinu.
Allir tuttugu þúsund íbúar bæjarins Yellowknife, höfuðstaðar Norðvesturhéraða Kanada, flýja nú í bílum sínum eða með flugvélum á meðan slökkviliðsmenn reyna að koma í veg fyrir að logarnir teygi sig til bæjarins. Rýmingin er sú langumfangsmesta í gróðureldatíðinni í Kanada í ár.
Lögmenn Donalds Trump krefjast þess að réttarhöld yfir honum vegna ákæru um að hann hafi reynt að snúa við úrslitum forsetakosninganna árið 2020 hefjist ekki fyrr en eftir hátt í þrjú ár. Sérstaki rannsakandi dómsmálaráðuneytisins vill að réttarhöldin hefjist beint eftir áramót.
Úkraínuher tekst ekki að ná borginni Melitopol í suðuausturhluta landsins á sitt vald í ár, að mati bandarísku leyniþjónustunnar. Nái hann ekki að hrekja rússneska hermenn þaðan næst ekki eitt helsta markmið gagnsóknar Úkraínumanna.
Alþjóðaskáksambandið (FIDE) hefur ákveðið að banna trans konum að taka þátt í mótum fyrir konur, að minnsta kosti tímabundið.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er sagður hafa lagt blessun sína yfir að F-16 herþotur verði fluttar frá Danmörku og Hollandi til Úkraínu um leið og þjálfun flugmanna er lokið.
Yfirmaður almannavarna á Maui hefur sagt starfi sínu lausu nokkrum dögum eftir að hafa varið ákvörðun sína um að kveikja ekki á viðvörunarsírenum þegar gróðureldar dreifðu sér um eyjuna. Íbúar Maui eru verulega ósáttir að sírenurnar hafi ekki hljóðað.
Kanadísk kona hefur verið dæmd til 22 ára langrar fangelsisvistar fyrir að hafa sent Donald Trump bréf sem innihélt hið baneitraða rísín. Fyrir dómi sagðist hún ekki sjá eftir neinu nema að hafa ekki tekist að drepa forsetann þáverandi.
Óttast er að yfir sextíu manns hafi farist á leið sinni yfir Atlantshafið eftir að bátur fannst nærri Grænhöfðaeyjum undan vesturströnd Afríku. 38 hefur verið bjargað yfir á eyjuna Sal, þar á meðal börnum á aldrinum tólf til sextán ára.
Luna-25, fyrsta rússneska tunglfarið í tæpa hálfa öld, komst á braut um tunglið í gær. Farið á að fara fimm brautir í kringum tunglið áður en reynt verður að lenda því á suðurpólnum á mánudag.
Yfirmaður sænsku öryggislögreglunnar segir að Svíþjóð sé forgangsskotmark íslamskra öfgamanna. Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka var hækkað upp á næsthæsta stig í dag í kjölfar umdeildra Kóranbrenna í landinu.
Til stendur að byrja að fljúga íbúum Yellowknife í Norðvesturhéruðum Kanada þaðan í dag vegna gróðurelda sem stefna á bæinn. Eldarnir gætu náð þangað um helgina ef enga úrkomu gerir.
Pedro Sánchez, leiðtogi spænska Sósíalistaflokksins, þokaðist nær því að mynda nýja minnihlutastjórn eftir að fulltrúi flokksins var kjörinn forseti neðri deildar þingsins með meirihluta atkvæða í morgun. Flokkar katalónskra sjálfstæðissinna greiddu atkvæði með þingforsetanum.
Svínsnýra sem var grætt í heiladauðan mann fyrir meira en mánuði síðan virkar enn og stefnt er að því að fylgjast með þróun mála í að minnsta kosti mánuð til viðbótar. Sérfræðingur segir nýrað starfa jafnvel enn betur en nýra úr manneskju.
Breski spjallþáttastjórnandinn Michael Parkinson er látinn, 88 ára að aldri. Ferill Parkinson í sjónvarpi spannaði sjö áratugi og ræddi hann við flestar skærustu stjörnur síns tíma.
Sænska öryggislögreglan SÄPO ætlar að hækka viðbúnað vegna hryðjuverkaógnar upp á næsthæsta stig í dag. SAPO boðar til blaðamannafundar síðar í dag til þess að ræða versnandi stöðu öryggismála í landinu.
Fyrrverandi aðstoðarmaður George Santos, alræmds fulltrúadeildarþingmanns Repúblikanaflokksins, var ákærður fyrir að þykjast vera háttsettur aðstoðarmaður eins leiðtoga flokksins þegar hann safnaði fé fyrir Santos í gær. Þingmaðurinn er sjálfur ákærður fyrir fjársvik og fleiri glæpi.
Stian Jenssen, yfirmaður skrifstofu Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á dögunum þar sem hann gaf í skyn að Úkraína gæti bundið enda á átökin með því að láta land af hendi.
Loka þarf Gotthard-járnbrautagöngunum í Ölpunum, þeim lengstu í heimi, í nokkra mánuði eftir að sextán vagnar vöruflutningalestar fóru út af sporinu þannig að átta kílómetra kafli teinanna skemmdust inni í göngunum.
Gróðureldarnir sem kviknuðu aðfararnótt þriðjudags á Tenerife hafa nú breitt úr sér yfir 1.800 hektara lands og gengur viðbragðsaðilum illa að ráða við þá.
Tólf eru slasaðir, þar af tveir í lífshættu, eftir að rútu var ekið inn í skóla í Osló í gærkvöldi. Samkvæmt miðlum í Noregi verður ökumaðurinn, sem er sagður maður á sjötugsaldri, ákærður fyrir gáleysislegan akstur.