Merz sagðist vonast til að komast að samkomulagi við Sósíaldemókrata „á næstunni“; miklar sviptingar væru að eiga sér stað í alþjóðamálum sem krefðust stöndugrar ríkisstjórnar í Þýskalandi.
Merz mun leiða viðræðurnar fyrir hönd Kristilegra demókrata en með honum í ráðum verður Markus Söder, leiðtogi systursamtakanna í Bæjaralandi. Þá er gert ráð fyrir því að Lars Klingbeil, formaður og væntanlegur þingflokksformaður Sósíaldemókrata, muni fara fyrir samninganefnd þeirra.
Þrátt fyrir yfirlýsingar Merz, sem yrði væntanlega kanslari, hefur Klingbeil sett þann fyrirvara við viðræðurnar að Sósíaldemókratar muni ekki ganga til meirihlutasamstarfs við Kristilega demókrata nema að undangenginni atkvæðagreiðslu meðal 360 þúsund félaga flokksins.
Dirk Wiese, þingmaður Sósíaldemókrata, sagði í samtali við DW að samstarf Kristilegra demókrata og Sósíaldemókrata væri eina trausta meirihlutasamstarfið í stöðunni en kristilegu demókrataflokkarnir tveir fengu samtals 33 prósent í nýafstöðnum kosningum og Sósíaldemókratar 19 prósent.
Wiese sagði hins vegar ekki sjálfgefið að menn kæmust að samkomulagi.
Miklar umræður standa yfir um aukin fjárframlög til varnarmála en Wiese sagði hreinlegast að greiða fyrir aukningunni með því að endurskoða svokallaða „skuldabremsu“ ríkisins. Merz og aðrir innan Kristilega demókrataflokksins vilja hins vegar ekki fara þá leið.