Enski boltinn

Chelsea kaupir markvörð sem á að berjast við þann dýrasta
Chelsea hefur fest kaup á senegalska markverðinum Édouard Mendy frá Rennes. Hann á að veita Kepa Arrizabalaga samkeppni um markvarðastöðuna hjá Chelsea.

Hafa keypt þá leikmenn sem þeir ætluðu sér að fá en nú gætu einhverjir farið
Liverpool hefur fengið Kostas Tsimikias, Thiago Alcantara og Diogo Jota í sumarglugganum. Samanlagt kostuðu þessir leikmenn um 75 milljónir punda.

Pickford í gjafastuði er Everton komst áfram | Havertz með þrennu
Everton er komið áfram í fjórðu umferð enska deildarbikarsins eftir 5-2 markaleik gegn Joey Barton og C-deildarliðinu Fleetwod Town.

Rúnar á bekknum er Arsenal fór áfram
Rúnar Alex Rúnarsson var í fyrsta sinn í leikmannahópi Arsenal í kvöld er liðið vann 2-0 sigur á Leicester.

Segir að Kane yfirgefi Tottenham vinni Mourinho ekki bikar í ár
Harry Kane mun yfirgefa Tottenham vinni liðið ekki einhvern bikar í ár. Þetta segir Tottenham goðsögnin og sparkspekingurinn, Glenn Hoddle.

Mourinho uppfyllir ósk látins aðdáanda
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Tottenham, fékk heldur óvenjulega en afar einlæga fyrirspurn á blaðamannafundi frá norður-makedónískum blaðamanni.

Rúnar Alex gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Arsenal og Gylfi vill halda uppteknum hætti í deildabikarnum
Þrír íslenski landsliðsmenn gætu komið við sögu í leikjum kvöldsins í 3. umferð enska deildabikarsins.

Sömdu við fyrrum samherja Gylfa og birtu myndbandið stórkostlega af Ancelotti
Luke Garbutt sem ólst upp hjá Leeds og fór þaðan til Everton er genginn í raðir Blackpool í ensku B-deildinni.

Meiri líkur á að Mbappe skrifi undir nýjan samning en að hann fari til Liverpool
Kylian Mbappe er líklegri til að framlengja samning sinn við PSG en að yfirgefa félagið. Þetta segir Jonathan Johnson, sérfræðingur um franska boltann, í samtali við Sky Sports.

Mata, Rashford og Greenwood skutu United áfram
Manchester United er komið áfram í fjórðu umferð enska deildarbikarsins eftir 3-0 sigur á B-deildarliði Luton í kvöld.

Moyes og tveir leikmenn West Ham með kórónuveiruna
David Moyes, stjóri West Ham, er með kórónuveiruna en þetta staðfesti félagið í kvöld.

Hættir við að hleypa inn áhorfendum inn á leikina 1. október
Draumurinn um að fá áhorfendur inn á leiki ensku úrvalsdeildarinnar í næsta mánuði er orðinn að engu vegna mikilla fjölgunar smita í Bretlandi.

Segir að Van Dijk sé orðinn latur og kærulaus
Fyrrverandi landsliðsmaður Hollands gagnrýnir Virgil van Dijk harðlega og segir hann vera orðinn latan og kærulausan.

Fjármálaráðherra líst vel á skipti Rúnars
Það voru margir Íslendingar sem fögnuðu því í gær að markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson hafi skrifað undir samning hjá Arsenal.

Foden skoraði í sigri City
Manchester City byrjar tímabilið 2020/2021 á sigri en liðið vann í kvöld 3-1 útisigur á Wolves.

Gengur allt á afturfótunum hjá Sheffield sem er án stiga
Aston Villa vann 1-0 sigur á Sheffield United er liðin mættust á Villa Park í Birmingham í dag.

„Stór dagur fyrir mig og fjölskyldu mína“
Rúnar Alex Rúnarsson, sem skrifaði undir fjögurra ára samning við Arsenal í dag, segir að þetta sé stór dagur fyrir sig og fjölskyldu sína.

Staðfesta komu Rúnars Alex sem verður númer þrettán
Rúnar Alex Rúnarsson er genginn í raðir Arsenal. Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni nú síðdegis en hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.

Grínaðist með að hann þyrfti að koma aftur fram á nærbuxunum ef Leicester yrði meistari
Stjórnandi Match of the Day grínaðist með að hann þyrfti að koma aftur fram á nærbuxunum ef Leicester City yrði Englandsmeistari.

United ætlar ekki að fá miðvörð
Slök frammistaða varnarmanna Manchester United í tapinu fyrir Crystal Palace á laugardaginn breytir engu um fyrirætlanir félagsins á félagaskiptamarkaðnum.

Cesc Fabregas segir að Sadio Mané sé sá besti í deildinni
Sadio Mané var ekki á skotskónum í fyrstu umferð en hann bætti úr því á Stamford Bridge í gær. Er hann sá besti í ensku úrvalsdeildinni? Spænsk fótboltagoðsögn er á því og ekki vantar heldur ástina frá Jamie Carragher.

Thiago átti fleiri sendingar en allir leikmenn Chelsea þrátt fyrir að spila bara seinni hálfleikinn
Thiago Alcantara, nýjasti leikmaður Liverpool, setti met í fyrsta leik sínum með liðinu í ensku úrvalsdeildinni.

Klopp skammaði varamennina fyrir að fagna rauða spjaldinu sem Christiansen fékk
Knattspyrnustjóri Liverpool bannaði varamönnum liðsins að gleðjast yfir rauða spjaldinu sem Andreas Christiansen, varnarmaður Chelsea, fékk í leik liðanna í gær.

Leicester skoraði fjögur en Vardy komst ekki á blað
Leicester er með sex stig eftir fyrstu tvo leikina í enska boltanum. Þeir unnu 4-2 sigur á Burnley á heimavelli í kvöld.

Segir að Rúnar æfi einn í Lundúnum vegna reglna um sóttkví
Fyrrum hluthafi í Arsenal, Darren, fylgist vel með málum hjá Arsenal og er með tæplega 150 þúsund fylgjendur á Twitter-síðu sinni.

Liverpool hafði betur í fjörugum leik á Brúnni
Liverpool er með sex stig eftir fyrstu tvo leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en þeir unnu 2-0 útisigur á Chelsea í dag.

Leicester fær tyrkneskan landsliðsmann frá Roma
Leicester City í ensku úrvalsdeildinni hefur fengið tyrkneska landsliðsmanninn Cengiz Under á láni frá ítalska liðinu AS Roma.

Brighton með öflugan sigur á Newcastle
Brighton vann Newcastle 3-0 á St. James's Park í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Son og Kane völtuðu yfir Southampton í seinni hálfleik
Tottenham gjörsamlega valtaði yfir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Dele Alli líklega á förum frá Tottenham
Enski landsliðsmaðurinn Dele Alli, sem allan sinn feril hefur spilað fyrir Tottenham, gæti verið á förum frá félaginu. Dele er ekki í leikmannahópi Tottenham í dag sem eru þessa stundina að spila við Southampton í ensku úrvalsdeildinni.