Ferðaþjónusta

Perlur Íslands: Glymur í Hvalfirði kom skemmtilega á óvart
Fréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson segir frá dýrmætri minningu með föður sínum og bróður. Hann dreymir um að fara feðgaferð upp á Esjuna.

Ríður á að ferðaþjónustufólk fylgist með heilsu ferðamanna sem það sinnir
„Eins og svo oft í þessum faraldri er kannski komið allt í einu fólk sem að hafði ekki hugsað sér að vera einhverjir framlínustarfsmenn í baráttu við einhvern heimsfaraldur en svona er staðan,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn.

Icelandair fer í heims-sókn
Í dag hefst myndaleikur á samfélagsmiðlum á vegum Icelandair þar sem allir á Íslandi eru hvattir til að taka þátt. 15 ferðavinningar, innanlands og utan, eru í pottinum og vefsvæðið icelandisopen.is er helgað leiknum.

Ferðamenn fái niðurstöður skimunar í gegnum appið
Stefnt er að því að koma niðurstöðum úr skimunum fyrir kórónuveirunni á landamærum hér á landi til ferðamanna í gegnum smitrakningarappið Rakning C-19.

Svona var blaðamannafundurinn um sýnatöku á landamærunum
Bein útsending og textalýsing frá blaðamannafundi heilbrigðisráðherra um framkvæmd sýnatöku á landamærum vegna Covid-19.

„Eiginlega einhugur“ um að opna innri landamærin á undan þeim ytri
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að aðildarríki Schengen-samstarfsins séu eiginlega einhuga um það að opna innri landamærin sín á milli fyrst áður en þau opni ytri landamæri Schengen-svæðisins í sameiningu.

Boðað til blaðamannafundar um sýnatöku á landamærunum
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum klukkan tvö í dag.

Rugl eða redding? - Opnun landsins 15. júní
Að galopna landið 15. júní er mögulega galið. Sagt er að í „besta falli“ komi hingað allt að 2.000 erlendir ferðamenn á dag. Það eru 180.000 gestir alls á 90 dögum.

„Miðaldra vinkonur“ fara út fyrir boxið og rúlla hringinn í beinni
Rúna Magnúsdóttir, Bjarney Lúðvíksdóttir og Rannveig Grétarsdóttir ætla að fara hringinn í kringum landið á rafbrettum og rafhlaupahjólum í sumar. Þær segjast ekki vera í góðu formi, en markmiðið er að vekja athygli á Íslandi.

Á íslensku í fyrsta sinn í hálfa öld
Þar sem engir ferðamenn eru á landinu ákváðu útgefendur tímaritsins Iceland Review í fyrsta sinn í hátt í sextíu ár að gefa blaðið út á íslensku.

Brottfarareftirlit ef Ísland slakar á ferðatakmörkunum Schengen
Áfram stendur til að opna landamærin þann 15. júní næstkomandi fyrir ferðamönnum innan Schengen og byrja að skima þá við komuna til landsins.

Segja hvern dag færa margar ferðaskrifstofur nær gjaldþroti
Samtök ferðaþjónustunnar hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þau gagnrýna yfirvöld og segja það vonbrigði að Alþingi og ríkisstjórn komi ekki til móts við vanda ferðaskrifstofa.

Ekki ákveðið hvort Bandaríkjamenn eða aðrir utan EES og EFTA geti komið eftir 15. júní
Engin ákvörðun hefur verið tekin um það hvort þær ferðatakmarkanir á ferðalögum hingað til lands sem eru í gildi fyrir ríkisborgara þeirra landa sem tilheyra ekki Schengen-svæðinu, EES, ESB eða EFTA verði framlengdar eftir 15. júní næstkomandi.

Ólíklegt að sýnatakan reynist flöskuháls þar sem færri verða á ferðinni
Ólíklegt er að afkastageta við sýnatökur í Keflavík verði hindrun þar sem ferðamenn verða að líkum færri í fyrstu að sögn Icelandair. Hátt í fjörutíu prósent landsmanna hyggja á ferðalög til útlanda á þessu ári samkvæmt könnun.

Svona verður framkvæmdin vegna komu ferðamanna
Breytingar verða á reglum um komu ferðamanna til landsins þann 15. júní næstkomandi.

Vonast til að klára frumvarp um ferðagjöf í vikunni
Vonast er til þess að það takist að ljúka afgreiðslu frumvarps um ferðagjöf til landsmanna í þessari viku. Fulltrúar stjórnarandstöðu í atvinnuveganefnd segja málið af hinu góða en hefðu viljað sjá ýmislegt betur gert.

Svona var blaðamannafundur forsætisráðherra og þríeykisins
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur boðað til blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu klukkan 14 í dag.

Kári telur rétt og skynsamlegt að bjóða ferðamenn velkomna
Kári Stefánsson svarar þeim sem vilja gjalda varhug við því að hleypa ferðamönnum inn fyrir landamærin.

Aflabrestur á Síldarminjasafninu
Síldarminjasafnið hefur treyst á erlenda ferðamenn en hrun hefur orðið í þeim stofni.

Ferðabókafrömuður lofsamar ferðalög til Íslands
„Frá ferðum inn í eldfjallsali til dýfu í jarðvarmalaugar. Ísland býður upp á ævintýri ólíkt öllum öðrum stöðum.“

Einmanalegt að standa vaktina í samkomubanni
Starfsmaður í ferðaþjónustu segir að það hafi verið einmanalegt að standa vaktina á meðan á samkomubanninu stóð. Íslendingar á ferðalagi segja yndislegt að ferðast um landið þegar ekki er allt krökkt af ferðamönnum.

Stærsti jöklabíll heims til sýnis
Trukkurinn Sleipnir var sýndur fyrir framan Hörpu í dag og verður aftur á morgun. Sleipnir er stærsti jöklabíll í heimi.

Tripical-deilan komin á borð lögmanna
Eigandi ferðaskrifstofunnar Tripical er ósammála um að henni beri skylda að endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri útskriftarferð þeirra. Málið er komið í hendur lögmanna og foreldri skoðar að höfða dómsmál.

Segir gjaldið fyrir Covid-19 sýnatöku allt of hátt
Framkvæmdastjóri Úrval-Útsýnar segir að stjórnvöld hljóti að endurskoða ákvörðun sína um að láta alla borga 15.000 krónur fyrir covid19 sýnatöku frá og með næstu mánaðamótum.

Afbókaði fimm stóra hópa eftir fréttir af „gölnu“ skimunargjaldi
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fimmtán þúsund króna gjald fyrir sýnatöku á landamærum „galið“.

Föst á Íslandi í þrjá mánuði og fékk að kynnast landinu ferðamannalausu
„Ég var föst á Íslandi frá 1. mars til 31. maí sem ferðamaður. Ég var það heppin að sjá árstíðirnar breytast og upplifa landið nánast ferðamannalaust,“ segir kona að nafni Meryl á Reddit.

Tripical mun ekki endurgreiða nemendum MA vegna útskriftarferðar
Ferðaskrifstofan Tripical mun ekki endurgreiða nemendum Menntaskólans á Akureyri vegna útskriftarferðar sem raskaðist vegna heimsfaraldurs. Formaður neytendasamtakanna segir að ferðaskrifstofunni beri að endurgreiða nemendum ferðina. Ferðafélag Menntaskólans á Akureyri hefur sett sig í samband við lögfræðing.

Það er kominn tími á endurræsingu ferðaþjónustunnar, útgáfa 2.0
Fyrir lok mars setti Íslenski ferðaklasinn niður tillögu að áætlun um hvernig væri hægt að standa að endurræsingu ferðaþjónustunnar / Restart Tourism á grunni sjálfbærni, nýsköpunar og tækni.

Fá minna en sólarhring til að ákveða hvort þau vilji fara í útskriftarferð til Ítalíu á mánudag
Ferðaskrifstofan Tripical hefur gefið útskriftarnemendum við Menntaskólann á Akureyri minna en sólarhring til að ákveða hvort þau séu reiðubúinn til þess að fara í áætlaða útskriftaferð til Ítalíu næstkomandi mánudag

Telur Ísland ekki vera að heltast úr markaðssetningarlestinni
Ferðamenn sem líklegir eru til millilandaferðalaga næstu mánuði telja Ísland einn af öruggustu áfangastöðum sem völ er á með tilliti til kórónuveirufaraldursins.