Eldgos og jarðhræringar

Gríðarlegar skemmdir: „Það eru engin orð sem geta lýst þessu“
„Þetta er náttúrulega alveg hræðilegt. Það eru engin orð sem geta lýst þessu,“ segir Birna Óladóttir íbúi á hjúkrunarheimilinu í Grindavík. Gríðarlegar skemmdir eru á hjúkrunarheimilinu eftir skjálftana síðdegis og í kvöld.

Hlakkar alls ekki í Þorvaldi í kvöld
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að stutt sé í eldgos á Reykjanesi; það sé frekar spurning um klukkustundir en daga að hans mati. Þá er hann ekki þeirrar skoðunar að hann hafi verið of djarfur í greiningu sinni á atburðum síðustu daga.

Flúði með börnin í bæinn
Halldóra Birta og fjölskylda hennar búa í Grindavík og fundu rækilega fyrir skjálftunum í dag. Þegar hlutir voru farnir að hrynja úr hillum ákvað Halldóra að fara til Reykjavíkur með börn sín tvö. Hún segir bílaröð hafa myndast á Nesvegi eftir að Grindavíkurvegur lokaði.

„Aldrei á ævinni orðið svona ógeðslega hrædd“
Mikil eyðilegging blasti við þegar Valgerður Vilmundardóttir gekk inn á heimili sitt í Grindavík fyrr í kvöld. Hún segist aldrei hafa upplifað annað eins og skjálftann sem reið yfir þegar hún var stödd í Lyfju um klukkan sex.

Stjörnum prýtt skjálftakort
Skjálftakort Veðurstofunnar með skjálftum síðustu tveggja sólarhringa er þakið stjörnum. Hver stjarna táknar jarðskjálfta sem var yfir þrír að stærð.

Gríðarlegar skemmdir á hjúkrunarheimili í Grindavík
Mikið tjón hefur orðið á hjúkrunarheimilinu Víðihlið í Grindavík. Bæði mikið vatnstjón og þá er stór sprunga í húsinu sem virðist sem það sé að klofna í tvennt.

Foreldrunum skipt út fyrir nágranna vegna skjálftanna
Par í Grindavík segjast ætla að halda sér í bænum þrátt fyrir mikla skjálfta. Þeir áttu von á foreldrum í mat en enduðu með nágrannana við eldhúsborðið vegna skjálftanna.

Sundhnúkasprungan sögð hættulegust fyrir Grindavík
Augu vísindamanna, almannavarna sem og almennings, ekki síst íbúa Suðurnesja, beinast núna að gígaröð og sprungu sem kennd eru við Sundhnúka norðaustan Grindavíkur. Frá því óvissustigi var lýst yfir fyrir hálfum mánuði hefur öll athyglin verið á svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn og þar með Svartsengi og Bláa lóninu. Kastljósið færðist hins vegar í dag að Sundhnúkasvæðinu eftir að áköf skjálftahrina hófst þar í morgun, austan við fjallið Sýlingarfell.

Fáir mættir í fjöldahjálparstöðvarnar
Starfsemi fjöldahjálparstöðvanna fer hægt af stað. Þar fá þeir sem mæta skjól, hressingu og sálarhjálp.

Landsmenn verði að búa sig undir gos
Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segir að landsmenn verði að vera undir það búnir að það gjósi á næstu klukkustundum.

Auknar líkur á eldgosi
Skýr merki koma nú fram á mælum Veðurstofu um myndun kvikugangs til yfirborðs. Enn eru mestar líkur á að kvika komi upp norðan vatnaskila við Sundhnúka og hraun muni því ekki renna til Grindavíkur í samræmi við hraunflæðilíkan sem keyrt var fyrr í kvöld.

Grindavíkurvegur áfram lokaður vegna skjálftavirkni
Vegagerðin hefur lokið bráðabirgðaviðgerðum á Grindavíkurvegi eftir að sprungur mynduðust á honum fyrr í kvöld. Vegurinn verður þó áfram lokaður vegna viðvarandi skjálftavirkni á svæðinu.

Tvær virkjanir HS Orku slógu út í skjálftunum
HS Orka missti út tvær virkjanir í jarðskjálftunum á Reykjanesskaga í dag. Báðar þeirra eru komnar í rekstur aftur en forstjóri HS Orku segir lítið hægt að gera annað en að bíða þar til hrinunni líkur.

Slökktu eld í Svartsengi
Eldur kom upp í klæðningu á einni af byggingum HS Orku í kvöld. Þetta staðfestir Einar Jónsson slökkviliðsstjóri í Grindavík.

Varðskipið Þór á leiðinni til Grindavíkur
Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, siglir í kvöld frá Reykjavík og er væntanlegt til Grindavíkur í nótt að ósk almannavarna. Þá er verið að opna fjöldahjálparstöðvar á fjórum stöðum.

Keflvíkingar gera allt til að auðvelda líf nágranna sinna
Unnið er að því að opna fjöldahjálparstöð fyrir Grindvíkinga í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ. Bæjarstjórinn segir bæinn gera allt til að auðvelda líf nágranna sinna.

Reikna frekar með dögum en klukkustundum
Sérfræðingar Veðurstofunnar telja líklegra að nokkrir dagar líði frekar en klukkustundir áður en kvika nær til yfirborðs. Ef sprunga myndi myndast þar sem skjálftavirknin er hvað mest myndi hraun renna til suðausturs og vesturs en ekki í átt til Grindavíkur.

Stöðugur straumur út úr Grindavík
Stöðug umferð hefur verið út úr Grindavík síðan stóru skjálftarnir byrjuðu að ríða yfir síðdegis. Hámarki var náð á sjötta tímanum og er umferð um Grindavíkurveg lokuð eftir að brotnaði upp úr malbiki.

„Þetta gætu verið nokkrir klukkutímar eða nokkrir dagar“
Jarðeðlisfræðingur segir stöðuna benda til þess að kvika sé að troða sér upp í jarðskorpuna. Veðurstofan situr á fundi með almannavörnum í Öskju.

„Það er ekkert eldgos að byrja“
Víðir Reynisson, yfirlögreglustjóri almannavarna segir eldgos ekki yfirvofandi þrátt fyrir snarpa skjálfta á Reykjanesi. Þrátt fyrir að Grindvíkingar hafi upplifað stanslausa skjálfta í þrjá klukkutíma sé engin ástæða til að yfirgefa bæinn.

Grindavíkurvegi lokað vegna stórrar sprungu
Stór sprunga myndaðist í veginum seinni partinn í dag.

Ætlaði að senda vinkonu snapp þegar stór skjálfti reið yfir
Halla Togga Þórðardóttir, íbúi í Grindavík, ætlaði að senda vinkonu sinni myndbandsskilaboð síðdegis þegar harður skjálfti reið yfir.

Vaktin: Kvikugangurinn virðist teygja sig undir Grindavík
Rýmingu í Grindavík er lokið eftir að neyðarstigi var lýst yfir fyrr í kvöld. Ástæðan er sú að ekki er hægt að útiloka að kvikugangur sem er að myndast gæti náð til Grindavíkur.

„Miklu lengri og harðari skjálftar“
Grindvíkingar hafa fundið verulega fyrir síðdegisskjálftum á Reykjanesinu í dag. Stórir skjálftar hafa fundist víða frá því klukkan fjögur í dag.

Stór skjálfti fannst vel
Nokkuð öflugur jarðskjálfti reið yfir um klukkan tíu mínútur fyrir fimm.

Reykjarmökkur líklega ekki eldgos
Ólíklegt er að reykur sem streymir úr hrauni við Litla-Hrút sé eldgos. Líklega sé um að ræða gas eða hita sem sé að losna úr nýlegu hrauni vegna jarðhræringanna sem hafa orðið í dag.

„Þunn lína á milli þess að fræða og hræða“
Almannatengill segir þunna línu á milli þess að fræða fólk og hræða á óvissutímum sem þessum. Hann telur suma jarðvísindamenn hafa farið yfir þá línu síðustu daga. Misvísandi skilaboð geti valdið fólki miklu hugarangri og skapað upplýsingaóreiðu.

Annar stór skjálfti
Annar mikill jarðskjálfti fannst rétt sunnan við Sýlingarfell tuttugu mínútum eftir klukkan þrjú í dag. Samkvæmt fyrstu mælingum Veðurstofu er stærð hans 4,3.

Gerir ekki lítið úr alvarleikanum en segir alls ekki tímabært að rýma Grindavík
Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði segist ekki vilja gera lítið úr alvarleika þess sem á sér nú stað á Reykjanesi en að flestir vísindamenn telji að taka þurfi á þessum atburðum með ró og yfirvegun. Á þessari stundu sé ekkert sem bendi til þess að gjósi bráðlega.

Öflugur jarðskjálfti
Nokkuð öflugur jarðskjálfti reið yfir á suðvesturhorninu um korter í eitt. Skjálftinn var af stærðinni 4,1.