Mesta virknin áfram nærri Sýlingarfelli og Hagafelli Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 27. nóvember 2023 16:07 Frá Meradölum á Reykjanesi. þar sem það gaus árið 2022. Vísir/Vilhelm Áfram er mesta jarðskjálftavirknin á Reykjanesskaga nærri Sýlingarfelli og Hagafelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Þar kemur fram að jarðskjálftavirkni hafi verið nokkuð stöðug síðustu daga. Mældust um fimm hundruð skjálftar á sólarhring nærri kvikuganginum á Reykjanesi. Innflæði kviku áfram undir Svartsengi Veðurstofan segir að um miðnætti í dag hafi jarðskjálftahviða hafist nærri Sýlingarfelli og virkni aukist tímabundið í rúma klukkustund. Um 170 jarðskjálftar mældust í hviðunni og var mest um að ræða smáskjálfta en einn mældist 3,0 að stærð. Þá segir í tilkynningunni að út frá aflögunargögnum frá GPS mælum og gervitunglum sjáist að þensla haldi áfram við Svartsengi. Aflögun mælist enn nærri kvikuganginum. Þó mældust engar breytingar á GPS mælingum í tengslum við jarðskjálftahrinuna í nótt. Bæði skjálfta- og aflögunargögn benda til þess að innflæði kviku haldi áfram bæði undir Svartsengi og í miðju kvikugangsins. Skjálftahrinan í nótt gæti verið vísbending um aukinn þrýsting í ganginum. Storknun gæti tekið nokkra mánuði Í ljósi þessa og samtúlkun nýjustu gagna eru áfram taldar líkur á eldgosi yfir kvikuganginum á meðan innflæði kviku heldur áfram. Mesta hættan á að kvika komi upp er áfram á svæðinu milli Hagafells og Sýlingarfells. Hættumatskort sem Veðurstofan gaf út 22. nóvember er enn í gildi. Frekari líkanreikningar hafa verið gerðir til að áætla umfang kvikugangsins sem myndaðist 10. nóvember. Þeir líkanreikningar benda til þess að hluti kvikugangsins gæti verið breiðari en áætlað var í fyrstu. Gróft áætlað gæti storknun breiðasta hluta gangsins því tekið nokkra mánuði.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira