Eldgos og jarðhræringar

Vísbendingar um nýtt kvikuinnskot á Reykjanesi
GPS mælingar og nánari úrvinnsla á fyrirliggjandi gögnum gefa vísbendingar um nýtt kvikuinnskot vestast á Reykjanesskaganum undir Rauðhólum og Sýrfelli.

Tveir skjálftar norðvestur af Grindavík í morgun
Tveir skjálftar, báðir þrír að stærð, urðu skammt norðvestur af Grindavík á sjötta tímanum í morgun.

Jarðskjálftahrina norðan við Eldey
Fjórir skjálftar yfir 3,0 að stærð mældust í jarðskjálftahrinu sem hófst skömmu fyrir klukkan 15 í dag.

Jörð skalf nærri Grindavík
Jarðskjálfti af stærð 3,4 varð rétt norðan Grindavíkur klukkan 9:44 í morgun. Skjálftans varð vart í Grindavík.

Skjálftahrina við Krýsuvík
Jarðskjálftahrina hófst við Krýsuvík um klukkan hálf níu í gærkvöldi.

Tíu ára afmælismyndir frá gosinu á Fimmvörðuhálsi
Tíu ár eru í dag liðin frá því að eldgosið á Fimmvörðuhálsi hófst. Það stóð frá 20. mars 2010 til 13. apríl sama ár.

Rekja skjálftahrinu við Þorbjörn mögulega til niðurdælingar
Niðurdæling jarðhitavökva gæti verið hluti af skýringu jarðskjálftahrinu vestan við fjallið Þorbjörn við Grindavík sem hófst í dag. Tveir stærstu skjálftarnir í hrinunni voru yfir þrír að stærð og fundust þeir víða í byggð, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu.

Snarpur jarðskjálfti við Reykjanestá
Jarðskjálfti að áætlaðri stærð 4,0 varð klukkan 10:32 við Reykjanestá.

Land rís á ný undir Þorbirni
Síðustu daga hefur þensla hafist á ný undir Þorbirni á Reykjanesi, á sömu slóðum og landrisið sem hófst í janúar.

Þóttust þurfa að bjarga fé úr Heimakletti í miðju eldgosi
Margir Eyjamanna áttu erfitt með að sætta sig við takmarkanir sem yfirvöld settu á ferðir til Vestmannaeyja eftir að eldgosið hófst þann 23. janúar 1973.

Skrítin tilhugsun að geta misst hús undir hraun í annað sinn á ævinni
Vestmannaeyingar sem settust að í Grindavík, eftir að hafa neyðst til að flýja jarðeld í skyndi, eru núna minntir á að sagan gæti endurtekið sig, en á öðrum stað.

Tveir stórir eftirskjálftar mældust í kvöld
Tveir jarðskjálftar mældust um þrjá kílómetra austnorðaustur af Grindavík í kvöld. Sá fyrri mældist klukkan 18:40 og var 3,4 af stærð og sá seinni mældist klukkan 18:42 og var að stærð 3,3

Ekkert mjög langur tími frá því gosórói sést og þar til kvikan kemur upp á yfirborðið
Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur við jarðvísindadeild Háskóla Íslands, segir að stóri jarðskjálftinn sem mældist á norðaustur af Grindavík í morgun, hafi verið á um sex til átta kílómetra dýpi sem sé töluvert.

Íslendingar bregðast við skjálftanum: „Ef þetta er ekki til að „kóróna“ allt“
Jarðskjálfti upp á um fimm að stærð varð klukkan 10:26 nærri Grindavík í morgun. Skjálftans varð víða vart á suðvesturhorninu og fannst meðal annars greinilega á höfuðborgarsvæðinu.

„Skjálftinn sá öflugasti hingað til“
Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík segir skjálftann sem reið yfir nálægt bænum fyrir stundu hafa verið þann öflugasta sem hefur fundist á svæðinu frá því jarðskjálftavirkni tók að aukast á svæðinu.

Skjálftinn var 5,2 að stærð
Jarðskjálfti upp á um stærð 5,2 varð um klukkan 10:26 nálægt Grindavík

Slökkvibíllinn með sírenur átti að slökkva í eldgosinu
Gosnóttin á Heimaey gleymist seint þeim sem upplifðu hana; að vakna upp við jarðeld og þurfa að yfirgefa heimili sitt í skyndi. Eyjamenn sem settust að í Grindavík rifja upp 23. janúar 1973.

Rektorinn í Oxford sendi Ingvar í boði háskólans í eldgosið í Vestmannaeyjum
47 árum eftir eldgosið á Heimaey eru enn að koma í dagsljósið myndir af gosinu sem ekki hafa áður birst opinberlega. Það á við um filmubút sem ungur jarðfræðingur tók.

Áður óbirtar myndir frá eldgosinu á Heimaey sýndar á Stöð 2 í kvöld
Sextán mínútna löng kvikmynd ásamt fjölda ljósmynda, sem Ingvar Friðleifsson jarðfræðingur tók á fyrstu dögum eldgossins á Heimaey árið 1973, verða sýndar í fyrsta sinn opinberlega á Stöð 2 í kvöld.

150 skjálftar við Reykjanestá
Upp úr hádegi í dag jókst aftur virkni í jarðskjálftahrinu sem verið hefur í gangi nálægt Reykjanestá allt frá 15. febrúar.

Jarðskjálfti að stærð 3,2 við Kleifarvatn
Klukkan 16:17 varð skjálfti að stærð 3,2 við Kleifarvatn á Reykjanesskaga.

Telur sérkennilegt að engin jarðskjálftavirkni sé við landrisið nærri Þorbirni
Doktor í jarðeðlisfræði telur líkur á að landrisið við Þorbjörn stafi af jarðvarmavinnslu við Svartsengi. Vísindaráð almannavarna hefur talið líklegustu skýringuna kvikusinnskot.

Jarðskjálfti að stærð 3,1 á Reykjanestá
Jarðskjálfti að stærð 3,1 varð klukkan 20:10 í kvöld um 3,6 km norður af Reykjanestá.

Hellar í Eldvörpum girtir af vegna lífshættulegrar gasmyndunar
Lögreglan á Suðurnesjum girti í dag af hella í Eldvörpum á Reykjanesskaga vegna lífshættulegrar gasmyndunar í þeim. Enn þá er hægt er að fara um svæðið við hellana en til að koma í veg fyrir að fólk fari ofan í þá þótti ráðlegast að girða þá af.

Með svæðið í hálfgerðri gjörgæslu
Ómögulegt er að segja til um það hvort lengi hafi gætt lífshættulegra gilda lofttegunda í hellum í Eldvörpum á Reykjanesskaga, að sögn náttúruvársérfræðings.

Jörð skelfur enn við Grindavík og Gjögurtá
Skjálftahrina hófst í gærmorgun um tíu kílómetra norður af Gjögurtá.

Hundruð jarðskjálfta mældust við Grindavík í liðinni viku
Land hefur risið um fimm sentímetra í kringum fjallið Þorbjörn en hvorki eru merki um að það fari vaxandi né minnkandi.

Mælingar efldar við Þorbjörn
Jarðskjálftavirkni mælist enn á svæðinu norðan við Grindavík. Virknin er yfir meðallagi en þó minni en þegar hún var hvað mest í lok janúar.

Skjálfti 3,1 að stærð við Grindavík
Skjálfti 3,1 að stærð mældist skammt frá Grindavík klukkan 8:26 í morgun.

Stór skjálfti í Rússlandi mældist á Íslandi
Jarðskjálfti að stærð 6,9 varð austur af Rússlandi upp úr klukkan hálf ellefu í morgun. Skjálftinn skilaði sér á kort Veðurstofu Íslands sem skjálfti upp á 3,7 nærri Borgarnesi.