
Bólusetningar

Enginn greindist smitaður í gær
Enginn greindist með Covid-19 í gær. Einn liggur inni vegna sjúkdómsins.

Bólusetja börn í áhættuhópum
Bólusetningaráð þýskra yfirvalda hefur mælt með bólusetningu barna á aldrinum 12-17 ára sem eru í sérstökum áhættuhópi vegna Covid-19.

Stjörnu-Sævar dúsir í bólusetningu í miðjum sólmyrkva
Sævar Helgi Bragason var í dag boðaður í bólusetningu á fimmtudaginn, sem kann að reynast óheppilegur dagur fyrir stjörnufræðing til að fara í bólusetningu.

Átján árgangar bólusettir í vikunni og útlitið gott fyrir sumarið
Karlar og konur úr átján árgöngum fá bólusetningu gegn kórónuveirunni á höfuðborgarsvæðinu í vikunni. Yfirlæknir á sóttvarnasviði hjá embætti landlæknis segir útlitið ágætt fyrir sumarið.

Vill rannsókn á andláti eiginkonu sinnar sem lést degi eftir bólusetningu
Fjölskylda konu sem lést sólarhring eftir að hún var bólusett með AstraZeneca vill að rannsókn fari fram á því hvort andlátið hafi verið bóluefninu að kenna.

Wolf í bann á Twitter fyrir að dreifa rangfærslum um bóluefni
Samfélagsmiðillinn Twitter setti bandaríska rithöfundinn Naomi Wolf í tímabundið bann fyrir að brjóta notendaskilmála með því dreifa ítrekað rangfærslum um bóluefni. Wolf, sem varð fyrst þekkt fyrir feminísk skrif, hefur deilt framandlegum samsæriskenningum um bóluefni trekk í trekk.

Spenntar fyrir sprautunni þótt þær séu með þeim síðustu í röðinni
Margir hafa eflaust beðið spenntir þegar árgangar voru dregnir upp úr potti í dag til að ákveða röð bólusetninga næstu þrjár vikurnar. Karlar fæddir 1979 voru fyrstir upp úr pottinum og konur fæddar 1985 síðastar. Yfir hundrað þúsund manns eru nú fullbólusettir.

Mælir ekki með að bólusettir láti mæla mótefnasvar
Rannsóknarstofan Sameind býður nú bólusettum að koma til sín og láta mæla hversu sterkt mótefnasvar þeir eru með við Covid-19 eftir bólusetningu. Sóttvarnalæknir mælir ekki með því að fólk nýti sér það og segir verndina, sem bóluefnið veitir, háða öðrum þáttum en mótefnasvari.

Um bólusetningar og hlutleysi skóla
Síðustu ár hefur reglulega komið upp krafa um hlutleysi skóla í umdeildum málum. Í sjálfu sér hefur ekki farið fram mikil umræða um hlutleysiskröfuna sem slíka. Oftar er um að ræða einstök tilfelli sem af einhverjum ástæðum vekja heitar tilfinningar í samfélaginu.

Svona raðast árgangarnir í bólusetningu næstu þrjár vikur
Dregið var í handahófskennda bólusetningarröð árganga 1976 til 2005 klukkan tíu í morgun. Vísir var í beinu streymi frá drættinum.

Segir Delta afbrigðið 30 til 100 prósent meira smitandi
Hið svokallaða Delta-afbrigði kórónuveirunnar SARS-CoV-2, áður kennt við Indland, er 30 til 100 prósent meira smitandi en Alfa-afbrigðið, áður kennt við Bretland. Þetta segir einn helsti sérfræðingur Breta í smitsjúkdómum.

Panta 300 milljónir skammta af ósamþykktu bóluefni
Indversk stjórnvöld hafa pantað 300 milljónir skammta af bóluefni við kórónuveirunni sem ekki hefur verið samþykkt af lyfjaeftirliti landsins. Önnur bylgja faraldursins ríður nú yfir landið og á annað hundrað þúsund greinast með veiruna á hverjum degi.

Bólusettir en Covidþreyttir samstarfsfélagar
Það neita því fæstir að heimsfaraldurinn hefur tekið á. Sóttvarnarreglur, boð og bönn, fjarvinna, lokun vinnustaða, hólfaskiptir vinnustaðir, öðruvísi matartímar, atvinnumissir, jólakúlur, páskakúlur, grímuskylda og spritt.

Bandaríkin ætla að gefa 80 milljónir skammta í júní
Ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti í dag að til stæði að gefa 80 milljónir skammta bóluefna til annarra ríkja í júní. Mest allt af því mun fara til COVAX-áætlunar Sameinuðu þjóðanna en hingað til hafa ríki þar sem þörfin er mikil fengið 76 milljónir skammta í gegnum áætlunina.

Draga alla hópana á morgun og raða niður í bólusetningarröð
Á morgun verður dregið um hvernig hópar í handahófskenndri bólusetningarboðun á höfuðborgarsvæðinu raðast niður. Fyrirkomulagið verður því ekki með þeim hætti að hópar verði dregnir og boðaðir samstundis, heldur mun röð hópanna liggja fyrir.

Tæplega 300 milljarðar króna söfnuðust á áheitaráðstefnu
Mögulega verður unnt að bólusetja um 30 prósent fullorðinna í þeim rúmlega 90 þjóðríkjum sem COVAX samstarfið nær til.

Vísbendingar um tengsl milli bóluefnis Pfizer og hjartavöðvabólgu
Heilbrigðisráðuneyti Ísraels hefur greint frá því að vísindamenn þar í landi hafi séð nokkur tilfelli hjartavöðvabólgu meðal ungra karlmanna sem hafa fengið bóluefni Pfizer gegn kórónuveirunni og að tengsl kunni að vera þar á milli.

Sex hópar verið dregnir og boðaðir í bólusetningu
Nú hafa alls sex hópar af sextíu verið boðaðir til bólusetningar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Réttur þeirra sem fá boðun samkvæmt handahófskennda kerfinu helst áfram, þótt það komist ekki á tilsettum boðunartíma.

500 milljóna viðbótarframlag til COVAX
Íslensk stjórnvöld hafa talað fyrir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu um þróun og framleiðslu bóluefnis og jafns aðgangs ríkja óháð greiðslugetu þeirra.

Stigið á bensínið og tekið á sprett til að ná í Laugardalshöll
Nokkuð óðagot greip um sig í og við Laugardalshöll í gær eftir að handahófskenndar bólusetningarboðanir árganga eftir kynjum hófust á höfuðborgarsvæðinu.

Pfizer gefur í og eykur bóluefnaframboð í Evrópu
Gert er ráð fyrir að framboð á bóluefni Pfizer/BioNTech gegn Covid-19 muni aukast verulega á EES-svæðinu með tilkomu framleiðsluaukningar í Belgíu. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) gaf út í gær að hún hafi mælt með samþykkt nýrra framleiðslulína í bænum Puurs þar sem ein stærsta verksmiðja Pfizer er starfrækt.

Sendu út 10 þúsund skyndiboðanir í bólusetningu
Það var heldur betur handagangur í öskjunni þegar fyrstu hópanir sem valdir voru af handahófi fengu lítinn fyrirvara til að koma sér í bólusetningu í Laugardalshöllinni í dag. Árgangar voru dregnir út úr fötu og þurfti að hafa hraðar hendur áður en bóluefnið fyrndist.

Svandís flutti síðustu skýrsluna: Níutíu prósent verði bólusett síðar í mánuðinum
Heilbrigðisráðherra gerir ráð fyrir að um níutíu prósent fullorðinna hafi fengið fyrri skammt bóluefnis í seinni hluta mánaðarins. Samkvæmt afléttingaráætlun ætti því að vera hægt að létta á öllum takmörkunum í mánuðinum.

Karlar fæddir 1987 og konur fæddar 1996 fá skyndiboð í bólusetningu
Ákveðið hefur verið að draga aftur árganga sem fá skyndiboðun í bólusetningu í Laugardalshöll í dag.

Annað kínverskt bóluefni fær neyðarskráningu
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) hefur skráð bóluefni kínverska fyrirtækisins Sinovac gegn kórónuveirunni til neyðarnotkunar fyrir fólk eldra en átján ára. Það er annað kínverska bóluefnið sem fær slíka heimild.

Karlar fæddir 1999 og konur fæddar 1982 fá skyndiboð í Laugardalshöll
Karlar fæddir árið 1999 og konur fæddar árið 1982, búsett á höfuðborgarsvæðinu, mega eiga von á boði á næstu mínútum í fyrri Pfizer-sprautu í Laugardalshöll. Þessir árgangar komu upp úr pottinum í sögulegu bólusetningalottói í Laugardalshöll í dag.

Hafa gefið bólusettum 1,5 milljón kleinurhringi og eru rétt að byrja
Kleinuhringjakeðjan Krispy Kreme hefur gefið 1,5 milljón kleinuhringi til bólusettra einstaklinga. Keðjan tilkynnti í mars síðastliðnum að allir Bandaríkjamenn sem hefðu þegið bólusetningu ættu kost á því að fá einn ókeypis kleinuhring á dag út árið.

„Við erum að finna smit sem við getum ekki rakið til landamæranna“
„Ég held að þær sóttvarnaaðgerðir sem við höfum verið með virki á öll afbrigði,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir spurður út í nýtt afbrigði kórónuveirunnar sem fannst í Víetnam. Er það talið meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar en Þórólfur hefur ekki teljandi áhyggjur af því.

Handahófskennd bólusetningarboðun eftir árgangi og kyni
Boðanir í handahófskenndar bólusetningar á höfuðborgarsvæðinu hefjast í þessari viku. Dregið verður um árganga sem verður skipt upp eftir kyni. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir að stuðst verði við gamaldags kerfi þegar dregið verður.

Vísindamenn uggandi vegna nýrrar bylgju
Vísindamenn í Bretlandi vara nú við því að ýmislegt bendi til þess að þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins sé hafin þar í landi.