Úkraína
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 78 ›
Rússar hóta að skrúfa fyrir gas til Evrópu Leiðtogar Evrópuríkjanna munu funda í Frakklandi á fimmtudag til að ræða leiðir til að gera álfuna óháða olíu og gasi frá Rússlandi. Þarlendir ráðamenn hafa brugðist við hugmyndum um verslunarbann á olíu með því að hóta að hætta að selja gas til Evrópu. Erlent 8.3.2022 06:21
Rússneskur almenningur finnur fyrir refsiaðgerðum Refsiaðgerðir gegn Rússum eru farnar að hafa áhrif á almenna borgara þar í landi. Sendiherra Íslands í Rússlandi segir fólk finna fyrir því að verðlag hafi hækkað á skömmum tíma og að vöruskortur sé byrjaður að myndast. Innlent 7.3.2022 23:02
FIFA opnar sérstakan félagaskiptaglugga fyrir leikmenn í Rússlandi og Úkraínu Vegna innrásar Rússa í Úkraínu mun Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, opna sérstakan félagaskiptaglugga fyrir leikmenn sem spila í Rússlandi og Úkraínu. Það sama verður gert fyrir þjálfara og aðra sem starfa hjá félögunum. Fótbolti 7.3.2022 21:01
Vaktin: Telja að Rússar muni brátt reyna að stöðva vopnasendingar til Úkraínu „Ef hann verður ekki stöðvaður í Úkraínu mun hann ekki láta staðar numið þar,“ sagði Gitanas Nauseda, forseti Litháen, við utanríkisráðherra Bandaríkjanna þegar þeir funduðu í dag um innrás Rússa í Úkraínu. „Árás á einn er árás á alla,“ var svar Antony Blinken. Erlent 7.3.2022 06:48
Vill að úkraínskt flóttafólk fái atvinnuleyfi við komuna til landsins Þingmaður Pírata segir nauðsynlegt að flóttafólk frá Úkraínu fái atvinnuleyfi við komuna til landsins. Hann segir stjórnvöld vísa fólki leið sem feli í sér minni réttindi en það eigi rétt á. Búist er við að tvö til fimm þúsund úkraínskir flóttamenn muni leita hingað til lands á næstunni. Innlent 7.3.2022 19:33
Safna fyrir fatlað fólk í Úkraínu Þroskahjálp, Átak - félag fólks með þroskahömlun, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Þau segja fatlað fólk sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og stöðu þess í Úkraínu grafalvarlega. Innlent 7.3.2022 17:58
Heiðraði óttaleysi og mótstöðu Úkraínu á sýningu Balenciaga „Stríðið í Úkraínu hefur vakið upp gamlan sársauka frá fyrri áföllum sem ég hef gengið um með mér síðan 1993 þegar hið sama gerðist í heimalandi mínu og ég gerðist hinn eilífi hælisleitandi. Hinn eilífi, vegna þess að þetta býr inni í þér,“ skrifaði yfirhönnuður Balenciaga á hvert einasta sæti gesta á haust og vetrar sýningu tískurisans í París á dögunum. Tíska og hönnun 7.3.2022 15:13
Skattaskjól í boði rússneskra stjórnvalda: Refsiaðgerðir sniðgengnar Í eftirfarandi umfjöllun verður ekki fjallað um að með samkomulaginu kennt við Búdapest árið 1994 viðurkenna Rússar að Úkraína sé sjálfstætt fullvalda ríki með sín eigin landamæri. Innherji 7.3.2022 13:39
Bókstafurinn sem táknar stuðning við innrás Rússa Tákn sem birst hefur á myndum af stríðsvélum Rússa í Úkraínu og virðist upphaflega átt að þjóna þeim tilgangi að aðgreina stríðsgögnin hefur öðlast nýtt líf. Bókstafurinn Z er orðið tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina í Úkraínu. Erlent 7.3.2022 13:30
Shevchenko beygði af: „Get ekki horft á það sem er að gerast í landinu mínu án þess að gráta“ Andriy Shevchenko, frægasti fótboltamaður Úkraínu, hefur miklar áhyggjur af fjölskyldumeðlimum sínum sem eru enn í heimalandinu. Fótbolti 7.3.2022 12:01
Gylfi Þór leiðir teymið sem aðstoðar flóttafólk frá Úkraínu Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsanna, hefur verið ráðinn til þess að stýra því stóra verkefni að skipuleggja komu flóttafólks frá Úkraínu til landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Innlent 7.3.2022 11:20
Sergej Bubka: Úkraína mun vinna Fyrrum heimsmeistari og heimsmethafi í stangarstökki styður þjóð sína á samfélagsmiðlum og er sannfærður um að Úkraína standi uppi sem sigurvegari en verði ekki „þurrkuð“ út af Rússum. Sport 7.3.2022 09:30
Innrásin muni hafa hamfarakennd áhrif á framboð og verð matvæla Innrás Rússlands í Úkraínu mun hafa hamfarakennd áhrif á framboð og verð matvæla á heimsvísu að mati framkvæmdastjóra eins stærsta áburðarframleiðanda heimsins. Viðskipti erlent 7.3.2022 09:00
Forsætisráðherra Ástralíu segir stríðið í Úkraínu ögurstundu fyrir Kínverja Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, hefur varið afstöðu þarlendra stjórnvalda til átakanna í Úkraínu. Hann segir þau munu tala fyrir friðarviðræðum. Samkvæmt New York Times neitar hann að kalla aðgerðir Rússa „innrás“. Erlent 7.3.2022 08:13
Olíurisi gagnrýndur fyrir að kaupa mikið magn rússneskrar hráolíu Olíurisinn Shell hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að kaupa mikið magn hráolíu frá Rússlandi á föstudaginn var. Olíuverð í heiminum hefur ekki verið hærra í mörg ár vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Viðskipti erlent 7.3.2022 07:36
Rússar boða tímabundið vopnahlé til að greiða fyrir rýmingu fjögurra borga Interfax fréttaveitan hefur eftir heimildarmönnum innan varnarmálaráðuneytis Rússlands að árásum verði tímabundið hætt og öruggar flóttaleiðir opnaðar fyrir almenna borgara Kænugarðs, Maríupól, Kharkív og Súmí. Erlent 7.3.2022 06:25
„Munum refsa öllum sem framið hafa voðaverk í þessu stríði“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, hélt ávarp í kvöld þar sem hann fordæmdi þögn Vesturlanda við þeim ummælum varnarmálaráðuneytis Rússa að varnarinnviðir Úkraínumanna yrðu sprengdir á morgun. Erlent 6.3.2022 22:53
„Fólk í Rússlandi veit ekki að það er stríð í gangi í Úkraínu“ Enn hefur ekki tekist að forða íbúum frá borginni Maríupól, þrátt fyrir fyrirheit um vopnahlé - annan daginn í röð. Þúsundir liggja í valnum og forseti Úkraínu kallar eftir tafarlausu flugbanni yfir landinu. Innlent 6.3.2022 22:00
Bretar skipuleggja frekari þvinganir gagnvart Rússum Breska þingið mun kjósa um frekari viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum á morgun. Boris Johnson segir að nýjar þvinganir geri Bretum kleift að ganga enn harðar fram. Erlent 6.3.2022 19:48
Roland slapp frá Úkraínu | „Pútín er fasisti“ Roland Eradze, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands og núverandi aðstoðarþjálfari úkraínska meistaraliðsins HC Motor, kom til Íslands frá Úkraínu á föstudaginn eftir átta daga ferðalag frá borginni Zaporizhzhia. Hann ræddi við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis um átökin og ferðalagið. Handbolti 6.3.2022 19:15
Almennir borgarar féllu í árás Rússa Að minnsta kosti þrír almennir borgarar létust þegar sprengjur féllu í bænum Irpin við Kænugarð í dag. Óttast er að fleiri hafi látist. Erlent 6.3.2022 18:04
„Þeim er alveg sama hvað þeir sprengja, þetta eru villimenn“ Roland Eradze, fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands og núverandi þjálfari úkraínska meistaraliðsins HC Motor, kom til Íslands frá Úkraínu á föstudaginn eftir átta daga ferðalag frá borginni Zaporizhzhia. Hann ræddi við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis um átökin og ferðalagið. Handbolti 6.3.2022 16:01
Leita leiða til að sjá Úkraínumönnum fyrir MiG-herþotum Bandaríkjamenn skoða nú leiðir til að sjá Úkraínumönnum fyrir herþotum frá Póllandi en ein leiðin væri að Pólverjar sendu nágrannaþjóð sinni þotur gegn því að fá nýjar herþotur frá Bandaríkjunum. Erlent 6.3.2022 14:34
Ráðleggingar Erdogan fóru inn um eitt eyra og út um hitt Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hvatti Vladimir Pútín Rússlandsforseta í dag til að lýsa yfir vopnahléi í Úkraínu, hleypa almennum borgurum í öruggt skjól og komast að friðarsamkomulagi við Úkraínumenn. Erlent 6.3.2022 12:37
„Fólk drekkur úr pollunum á götunni“ „Það er ekkert rafmagn, enginn hiti, ekkert símasamband. Þetta er algjör hryllingur,“ hefur New York Times eftir ráðgjafa borgarstjórans í Maríupól um ástandið í borginni. Erlent 6.3.2022 09:14
Johnson leggur fram aðgerðaáætlun til að sigra Pútín Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands hefur lagt til áætlun til að sigra Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Áætlunin er í sex liðum og felst meðal annars í því að styrkja varnir Atlantshafsbandalagsins. Erlent 6.3.2022 08:42
Vaktin: „Þeir munu ekki eiga friðsælan stað á þessari jörðu“ Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í Úkraínu, þar sem Úkraínumenn freista þess nú að verja nokkrar lykilborgir á sama tíma og Rússar sækja hart fram. Erlent 6.3.2022 07:56
Beina sjónum sínum að íbúðabyggð til að brjóta Úkraínumenn niður Kænugarður virðist vera aðalskotmark rússneskra hersveita að sögn yfirmanna úkraínska hersins en harðar árásir hafa einnig verið gerðar á Kharkív og Mykolaív síðasta sólahring. Erlent 6.3.2022 07:27
Visa og Mastercard loka á Rússa Visa og Mastercard hafa tilkynnt að þau muni loka á viðskipti Rússa erlendis sem og notkun erlendra aðila í Rússlandi. Erlent 6.3.2022 00:01
Segir Pútín hafa ætlað að bíða þar til Trump losaði sig við NATO Fyrrum öryggisráðgjafi Donald Trump sagði í viðtali í dag að hann telji að Vladimir Pútín hafi ætlað sér að bíða með innrás í Úkraínu þar til Trump yrði endurkjörinn og myndi draga Bandaríkin úr NATO. Erlent 5.3.2022 23:01