Vesturlönd hafa útvegað Úkraínumönnum mikið magn vopna, auk skotfæra og margskonar birgða frá því innrás Rússa hófst í febrúar. Það hefur gert Úkraínumönnum kleift að verjast innrásinni og reka Rússa aftur á bak í nokkrum héruðum landsins.
Ráðamenn í Kænugarði hafa þó ávallt beðið um fleiri og betri vopn og segja það bestu leiðina til að binda enda á stríðið eins fljótt og auðið er. Það er að sigra Rússa og reka þá á brott frá Úkraínu.
Innrás Rússa er ekki lokið en ljóst er að Úkraínumenn hafa unnið mikinn sigur í Kharkív sem gæti haft mikil áhrif á framvindu mála í haust og í vetur.
Í ávarpi sínu í gærkvöldi sagði Selenskí að Úkraína og Vesturlönd þyrftu að auka samstarf svo Úkraínumenn gætu unnið Rússa. Hann gagnrýndi Rússa sérstaklega fyrir að bregðast við óförum þeirra á vígvöllunum með því að gera árásir á óbreytta borgara og innviði Úkraínu.
Rússar hafa gert árásir á Kharkív-borg og önnur borgaraleg skotmörk undanfarna daga. Selenskí sagði, samkvæmt AP fréttaveitunni, að hundruð þúsunda óbreyttra borgara hefðu fundið fyrir rafmagnsleysi.
„Heimili, sjúkrahús, skólar, samkomustaðir. Staðir sem hafa ekkert með innviði hersveita okkar að gera,“ sagði Selenskí. Hann sagði þetta til marks um örvæntingu ráðamanna í Rússlandi vegna ósigurs Rússa í Kharkív. Þeir gætu ekki stöðvað Úkraínska hermenn og létu það bitna á almennum borgurum.
Úkraínumenn eru vongóðir um að velgengni þeirra undanfarnar vikur og áframhaldandi sókn gegn Rússum í suðri og austri, muni leiða til aukinna vopnasendinga frá Vesturlöndum.
Hér má sjá nýlegt myndband sem tekið var af rússneskum flugmanni yfir Úkraínu. Þar má sjá að eldflaugum var skotið að orrustuþotum Rússa.
Video of two Russian Su-25 attack aircraft in a close call with two MANPADS. https://t.co/8gZ1MmBG9y pic.twitter.com/F9wXz92Q5U
— Rob Lee (@RALee85) September 13, 2022
Vopnasendinar mikilvægar
Sérfræðingar segja vopnasendingar Vesturlanda til Úkraínu hafa skipt sköpum og þá sérstaklega sendingar HIMARS-eldflaugakerfa, sem gera Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir á skotmörk í margra tuga kílómetra fjarlægð. Þau kerfi hafa Úkraínumenn notað til fjölmargra árása á birgðanet Rússa, eins og vopna- og skotfærageymslur og stjórnstöðvar.
Eldflaugar sem hannaðar eru til að leita uppi ratsjár loftvarnarkerfa og granda þeim eru einnig sagðar hafa skipt sköpum fyrir Úkraínumenn. Þessar eldflaugar eru kallaðar HARM-eldflaugar.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna sagði í gær að verið væri að skoða hvort hægt væri að auka þjálfun úkraínskra hermanna, útvega Úkraínumönnum frekari loftvarnir og dróna. Samkvæmt AP fréttaveitunni er þar um bæði að ræða dróna sem hannaðir eru til eftirlits og árásardróna.
Ekki verið að ræða herkvaðningu
Áköll eftir herkvaðningu virðast hafa orðið háværari í Rússlandi. Gennady Zyuganov, leiðtogi Kommúnistaflokks Rússlands, kallaði eftir því á þingi í morgun að Rússar lýstu yfir formlegu stríði og farið yrði í almenna herkvaðningu.
In Russia's parliament, the Communist Party leader calls the war a war & says there should be a national call-up
— Sarah Rainsford (@sarahrainsford) September 13, 2022
'You can end a 'special operation' any time. You can't stop a war, it ends in victory or defeat. I suggest to you that this is a war & we have no right to lose it' https://t.co/FggjRWJzPR
Vyachelsav Volodín, forseti Dúmunnar, rússneska þingsins, gaf í skyn að heimurinn stæði frammi fyrir mikilli kjarnorkuógn vegna aðgerða Úkraínumanna, sem eiga engin kjarnorkuvopn, og að þessar aðgerðir sýndu enn og aftur hversu rétt ákvörðun það hefði verið hjá Vladimír Pútin, forseta Rússlands, að hefja „sértæku hernaðaraðgerðina“, eins og Rússar kalla innrásina.
Dmitrí Peskov, talsmaður Pútíns, sagði samkvæmt TASS fréttaveitunni, sem er í eigu rússneska ríkisins, að ekki væri verið að ræða það að fara í almenna herkvaðningu, að svo stöddu. Ekki heldur stæði til að fara í sértæka herkvaðningu, þar sem rússneski herinn gæti kallað fyrrverandi hermenn og aðra til herþjónustu.

Slík herkvaðning yrði eflaust óvinsæl í Rússlandi og þar að auki er óljóst hve miklum árangri hún myndi skila Rússum í Úkraínu. Það tæki eflaust alltaf einhverja mánuði að mynda nýjar herdeildir með herkvaðningu og þjálfa þá hermenn. Þá hafa Rússar misst gífurlegt magn hergagna og sömuleiðis tæki langan tíma að útvega nýjum herdeildum vopn og skrið- og bryndreka.
Russian state TV presenter Artyom Sheynin has been pushing the line that Russia is now fighting Nato in Ukraine
— Francis Scarr (@francis_scarr) September 13, 2022
As "evidence" he shows a video posted by @MalcolmNance, adding ironically: "Look at this Ukrainian! I think he's from a small village in Ternopil Region" pic.twitter.com/w7jtZm9W2P