Evrópudeild UEFA

Fimm félög enn með fullt hús í Evrópudeildinni - úrslit kvöldsins
Enska liðið Tottenham, ítalska liðið Fiorentina, búlgarska liðið Ludogorets Razgrad, austurríska liðið Red Bull Salzburg og þýska liðið Eintracht Frankfurt eru öll með níu stig af níu mögulegum eftir þrjár fyrstu umferðirnar í Evrópudeildinni í fótbolta.

Gylfi hvíldur í fimmta Evrópusigri Tottenham í röð
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham eru með fullt hús og fimm stiga forystu í K-riðli Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 2-0 sigur á Sheriff Tiraspol í Moldavíu í kvöld.

Jóhann Berg áfram á skotskónum í Evrópudeildinni
Jóhann Berg Guðmundsson tryggði AZ Alkmaar jafntefli í Evrópudeildinni í kuldanum í í Kasakstan í kvöld.

Íslendingadagur á Sportstöðvunum
Áhugamenn um íslenska knattspyrnumenn- og dómara á erlendri grundu ættu að fylgjast grannt með gagngi mála á Sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

Kristinn dæmir í Swansea og í beinni á Stöð 2 Sport
Knattspyrnudómarinn Kristinn Jakobsson verður í sviðsljósinu á fimmtudagskvöldið þegar hann mun dæma leik velska liðsins Swansea á móti Kuban Krasnodar frá Rússlandi í Evrópudeild UEFA í fótbolta.

FH-vinirnir í Genk með fullt hús á topppnum - úrslit í Evrópudeildinni
Belgíska félagið Genk er í góðum málum í Evrópudeildinni í fótbolta eftir 2-1 sigur á svissneska liðinu Thun í kvöld. Genk hefur fullt hús eftir tvo fyrstu leiki sína.

Stórt tap hjá Ólafi Inga og félögum í Rússlandi
Ólafur Ingi Skúlason og félagar hans í belgíska liðinu Zulte-Waregem urðu að sætta sig við 0-4 tap á móti Rubin Kazan í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. Rubin Kazan er búið að vinna tvo fyrstu leiki sína með markatölunni 9-2.

Blóðugur og brjálaður Michu | Öll úrslit kvöldsins í Evrópudeildinni
Swansea hélt áfram sigurgöngu sinni í Evrópudeildinni þegar liðið vann svissneska liðið St. Gallen 1-0 á heimavelli í kvöld en bæði lið höfðu unnið leik sinn í fyrstu umferðinni.

Frábær innkoma Jóhanns Bergs dugði næstum því
AZ Alkmaar og PAOK eru jöfn á toppnum í L-riðli Evrópudeildarinnar eftir 1-1 jafntefli í Hollandi í kvöld. AZ virtist hafa tryggt sér sigurinn í leiknum þegar Grikkirnir jöfnuðu í uppbótartíma.

Gylfi spilaði í 20 mínútur í öruggum sigri Tottenham
Tottenham er í flottum málum í sínum riðli í Evrópudeildinni í fótbolta eftir 2-0 útisigur á rússneska liðinu AZhi í Moskvu í kvöld. Bæði mörk Tottenham-manna komu í fyrri hálfleiknum.Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign Anzhi og Tottenham í riðla keppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu.

Swansea pakkaði Valencia saman á Mestalla
Swansea City byrjaði frábærlega í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA í fótbolta í kvöld þegar liðið burstaði spænska liðið Valencia 3-0 á útivelli. Ólafur Ingi Skúlason og félagar í Zulte Waregem gerðu á sama tíma markalaust jafntefli á móti Wigan á heimavelli.

Jóhann Berg tryggði AZ sigur í Ísrael
Íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson var hetja hollenska liðsins AZ Alkmaar í kvöld í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Jóhann Berg skoraði þá eina mark leiksins í 1-0 útisigri á ísraelska liðinu Maccabi Haifa.

Defoe með tvö mörk og Gylfi spilaði 90 mínútur í sigri Tottenham
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham áttu ekki í miklum vandræðum með norska liðið Tromsö í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA í fótbolta í kvöld. Tottenham vann leikinn 3-0 en spilað var á White Hart Lane í London.

FH-banarnir unnu í Úkraínu - öll úrslit kvöldsins
FH-banarnir í Genk byrja vel í riðlakeppni Evrópudeildarinnar því þeir sóttu þrjú stig til Úkraínu í kvöld með því að vinna 1-0 sigur á Dynamo Kiev. Julien Gorius skoraði eina mark leiksins 28 mínútum fyrir leikslok.

Ribéry söng sigursöngva með stuðningsmönnunum í stúkunni
Franck Ribéry var í aðalhlutverki í kvöld þegar Bayern München tryggði sér Ofurbikar Evrópu eftir sigur á Chelsea í vítakeppni. Ribéry skoraði annað marka Bayern í leiknum sjálfum og var síðan einn af fimm leikmönnum þýska liðsins sem skoruðu í vítakeppninni.

Mourinho: Betra liðið tapaði í kvöld
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var aðeins nokkrum sekúndum frá því að landa fyrsta titlinum í kvöld eftir að hann snéri aftur á Stamford Bridge þegar Chelsea tapaði í vítakeppni á móti Bayern München í leiknum um Ofurbikar Evrópu í Prag.

Petr Cech: Þetta var grimmur endir
Petr Cech og félagar hans í Chelsea voru sekúndum frá því að vinna Ofurbikar Evrópu í kvöld en urðu að lokum að sætta sig við tap fyrir Bayern München eftir vítakeppni. Bæjarar skoruðu jöfnunarmarkið með síðustu spyrnu framlengingarinnar og unnu síðan vítakeppnina 5-4.

Bayern vann Ofurbikarinn í vítakeppni
Bayern München er meistari meistaranna í Evrópu eftir 5-4 sigur á Chelsea í vítakeppni í leiknum um Ofurbikar Evrópu í Prag í kvöld en þetta er árlegur leikur á milli Evrópumeistaraliðanna frá síðustu leikíð.

Löng ferðalög framundan hjá Gylfa Þór
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Tottenham eiga fyrir höndum ferðalög til Rússlands, Makedóníu og Noregs. Dregið var í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í Mónakó í dag.

Aron og Jóhann Berg komust áfram
AZ Alkmaar er komið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu þrátt fyrir 2-0 tap gegn Atromitos í morgun. Leikurinn var flautaður af á 59. mínútu í gærkvöldi þar sem eldur kom upp á leikvanginum.

Heppnin ekki með FH í lottóinu
Stuðningsmenn kýpverska liðsins APOEL fögnuðu í morgun þegar félagið datt í lukkupottinn og hreppti lausa sætið í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í vetur.

Síðustu 33 mínúturnar í AZ-leiknum verða spilaðar í fyrramálið
Jóhann Berg Guðmundsson, Aron Jóhannsson og félagar þeirra í hollenska liðinu AZ Alkmaar verða vakna snemma í fyrramálið því síðustu 33 mínúturnar í leik þeirra í Evrópudeildinni á móti gríska liðinu Atromitos verða spilaðar fyrir hádegi á morgun.

Ólafur Ingi og félagar komust áfram í Evrópudeildinni
Ólafur Ingi Skúlason og félagar hans í belgíska liðinu Zulte-Waregem tryggðu sér í kvöld sæti í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA eftir dramatískan 2-1 sigur á Apoel Nicosia á Kýpur. Belgíska liðið vann þar með 3-2 samanlagt.

Gylfi lagði upp mark þegar Tottenham fór auðveldlega áfram
Tottenham var ekki í miklum vandræðum með að tryggja sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í kvöld en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar unnu þá 3-0 sigur á Dinamo Tbilisi frá Georgíu. Tottenham vann samanlagt 8-0.

Blikarbanarnir í Aktobe teknir í karphúsið í Kiev
Aktobe frá Kasakstan sem sló Breiðablik út úr Evrópudeildinni fyrr í sumar komst ekki áfram í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Aktobe steinlá nefnilega 5-1 á móti Dynamo Kiev í Úkraínu í kvöld og tapaði því samanlagt 8-3.

FH komst yfir í Belgíu en tapaði 2-5
FH-ingar eru úr leik í Evrópudeild UEFA eftir 2-5 tap í seinni leiknum á móti belgíska félaginu Genk í kvöld. FH tapaði því einvíginu samanlagt 2-7. FH-ingar eiga reyndar smá von um að komast í riðlakeppni Evrópudeildarinnar en þeir taka þátt í happadrætti á morgun.

Leikur AZ Alkmaar flautaður af
Það þurfti að flauta af leik AZ Alkmaar og gríska liðsins Atromitos í Evrópudeildinni í kvöld en rýma þurfti leikvanginn vegna elds í þaki leikvangsins.

FH gæti komist bakdyramegin í riðlakeppni Evrópudeildarinnar
Þó svo FH falli úr Evrópudeildinni í kvöld á liðið enn möguleika á því að komast í riðlakeppnina. Það er nefnilega búið að opna bakdyrnar.

Úrslitaleikur í Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík mætir gríska liðinu Athina '90 í lokaleik H-riðils í undankeppni Futsal Cup kl. 20:00 í kvöld. Leikið verður í íþróttahúsinu á Ólafsvík.

Erfitt verkefni í Belgíu
FH mætir K.R.C. Genk í síðari leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í dag. Belgarnir hafa tveggja marka forskot úr fyrri leiknum.