
Bandaríkin

Nýtt avókadóafbrigði lítur dagsins ljós eftir fimmtíu ár í þróun
Sérfræðingar við Riverside-háskólann í Kaliforníu hafa nú kynnt nýtt afbrigði af ávextinum vinsæla eftir fimmtíu ár af þróunarvinnu. Afbrigðið ber nafnið Luna.

Hóta samtökum gegn hatursorðræðu lögsókn
Forsvarsmenn samtaka sem vakta hatursorðræðu á samfélagsmiðlum segja að þeim hafi borist hótunarbréf frá lögmönnum X Corp, áður Twitter. Í bréfinu segja lögmenn X Corp að samtökin The Center for Countering Digital Hate (CCDH) séu að reyna að skaða samfélagsmiðilinn sem nú heitir X og hóta þeir að höfða mál gegn samtökunum.

Hitinn í methæðum í mánuð
Hitinn í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum hefur farið yfir 43 gráður á selsíus þrjátíu og einn dag í röð. Ekkert lát virðist á sumarhitunum í Bandaríkjunum en júlímánuður verður sennilega heitasti mánuður sem mælingar hafa nokkru sinni sýnt.

Bað eigin sjóð um sextíu milljóna endurgreiðslu
Kosningasjóður Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur farið fram á að sextíu milljónir dala sem veittar voru til pólitískrar aðgerðanefndar (PAC) Trumps sem kallast Save Amcerica, verði endurgreiddar. Krafan þykir benda til þess að Trump eigi í fjárhagskröggum.

Bandaríkjamenn þurfa að greiða gjald áður en komið er til Íslands
Til stendur að taka upp nýtt ETIAS-ferðaheimildakerfi á Schengen-svæðinu sem gerir það að verkum að handhafar vegabréfa sem þurftu áður ekki vegabréfsáritun munu þurfa að sækja um ferðaheimild áður en lagt er af stað til Íslands.

Grýtti hljóðnema í aðdáanda
Framkoma rapparans Cardi B á tónleikum í Las Vegas í gær fór ekki sem skyldi. Við flutning á laginu Bodak yellow grýtti hún hljóðnema í konu sem kastaði drykk yfir rapparann á sviðinu.

Bankaræningi náðist eftir að hann datt ofan í endurvinnslutunnu
Bankaræningi datt ofan í bláa endurvinnslutunnu þegar hann reyndi að flýja af vettvangi í Huron í Ohio. Lögregluþjónar biðu eftir honum við tunnuna og var hann í kjölfarið handtekinn.

Málsókn Trump gegn CNN vísað frá
Alríkisdómari í Bandaríkjunum hefur vísað frá 475 milljóna dala málsókn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem hann höfðaði gegn fréttamiðlinum CNN fyrir að líkja sér við Adolf Hitler.

Gefur nýja kærastanum svigrúm til að skilja við eiginkonuna
Söngkonan Ariana Grande og nýr kærasti hennar, leikarinn Ethan Slater, hafa ekki hist í nokkurn tíma. Er það vegna þess að Ariana vill veita Ethan svigrúm til að ganga frá skilnaði við eiginkonu hans, Lilly Jay.

Drapst eftir ákafar samfarir með bróður sínum
Sækýrin Hugh drapst eftir að hafa stundað ákaft kynlíf með bróður sínum, Buffett, í heilan dag á sædýrasafninu Mote Marine Laboratory & Aquarium í Flórída.

Sveik níræðan mann um hundruð milljóna
Peaches Stergo, 36 ára gömul kona frá Flórída ríki í Bandaríkjunum, hefur verið dæmd í fangelsi í rúm fjögur ár fyrir að hafa ævisparnaðinn af 87 ára gömlum manni sem lifði af helförina. Alls sveik Stergo rúmlega 2,8 milljónir dala af manninum, það samsvarar um 368 milljónum í íslenskum krónum.

Tupperware á blússandi siglingu á ný
Gengi hlutabréfa í bandaríska fyrirtækinu Tupperware, sem þekktast er fyrir framleiðslu á samnefndum ílátum, jókst um 56 prósent í núliðinni viku.

Fékk sjaldgæft sjónarspil í afmælisgjöf
Karlmaður frá New Hampshire í Bandaríkjunum var að fagna afmælinu sínu með þremur dætrum sínum þegar hann náði ótrúlegu atviki á myndband. Þrír hvalir stukku á sama tíma upp úr sjónum og virtist vera sem um væri að ræða þaulæft atriði hjá þeim.

Fyrsti bassaleikari the Eagles er látinn
Randy Meisner, fyrsti bassaleikari og einn stofnenda hljómsveitarinnar the Eagles, lést á miðvikudag.

Nicki Minaj og Snoop Dogg mögulegar drápsvélar í skotleik
Rappararnir Snoop Dogg og Nicki Minaj bætast við sem karakterar í nýjustu seríu tölvuleikjanna Call of Duty: Modern Warfare II og Call of Duty: Warzone 2.

Færast nær því að ákæra Biden fyrir embættisbrot
Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa færst nær því að hefja rannsókn á því hvort tilefni finnist til að ákæra Joe Biden, forseta, fyrir embættisbrot. Donald Trump, fyrrverandi forseti sem var tvisvar ákærður fyrir embættisbrot, vill ólmur að Biden verði einnig ákærður.

Ása þreytt á áreiti gulu pressunnar við heimili hennar
Ása Guðbjörg Ellerup, eiginkona meinta Gilgo Beach-raðmorðingjans Rex Heuermann, sást fyrir framan hús þeirra í bænum Massapequa Park í New York fylki í gærmorgun. Þegar fréttamenn gáfu sig á tal við hana við húsið brást hún ósátt við og lyfti löngutöng.

Sakaður um að hafa skipað starfsmanni að eyða myndbandsupptökum
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið sakaður um að hafa skipað starfsmanni sínum að eyða upptökum úr öryggismyndavélum á heimili hans í Flórída. Það er sagt hafa verið gert til þess að hindra rannsókn á meintum brotum hans í tengslum við leyniskjöl sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu.

Heuermann til rannsóknar vegna fjögurra morða í Atlantic City
Lögreglan í Bandaríkjunum er nú með það til rannsóknar hvort að Rex Heuermann hafi myrt fjórar konur í borginni Atlantic City í New Jersey árið 2006. Heuermann heimsótti borgina oft og fór á nektardansklúbba.

Kveikti í sér til að mótmæla ofríki kvikmyndarisa
Áhættuleikarinn Mike Massa kveikti í sér á fjöldafundi SAG-AFTRA, verkalýðsfélagi starfsfólks í bandarísku sjónvarpi og útvarpi, til að mótmæla ofríki kvikmyndastúdíóa. Umfangsmestu verkföll í Hollywood í áratugi standa nú yfir.

Segist við góða heilsu
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, segist hafa heilsu til að sinna starfi sínu. Það er eftir að hann fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í gærkvöldi og starði áfram í um tuttugu sekúndur, áður en hann var leiddur á brott.

Týnd í fjögur ár en er nú fundin
Stúlka sem týndist þegar hún var fjórtán ára gömul fyrir um fjórum árum síðan er nú fundin. Stúlkan sem um ræðir gekk inn á lögreglustöð og óskaði eftir því að vera fjarlægð af listanum yfir týnt fólk.

Hélt fram áratuga yfirhylmingu á fljúgandi furðuhlutum á þinginu
Fyrrverandi starfsmaður hjá leyniþjónustu bandaríska flughersins hélt því fram á þinginu í gær að Bandaríkin hefðu haldið leyndu áratugalöngu verkefni sem snerist um að hafa upp á fljúgandi furðuhlutum til að endurgera þá. Pentagon segir ekkert renna stoðum undir yfirlýsingar mannsins.

Fraus í miðri setningu og var teymdur út af blaðamannafundi
Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríska þingsins, fraus í miðri setningu á blaðamannafundi embættisins í dag. Hann var teymdur í burtu frá ræðupúltinu en sneri aftur skömmu síðar og sagðist vera „í lagi“.

Hagnast mikið og dæla peningum í gervigreind
Bæði Alphabet (móðurfélag Google) og Microsoft birtu í gær góð ársfjórðungsuppgjör sem sýndu aukinn hagnað og aðrar jákvæðar vendingar í rekstri fyrirtækjanna. Fyrirtækin eru í samkeppni um innleiðingu gervigreindar í leitarvélar Google og Bing og annan hugbúnað þeirra.

Sekta fólk sem tekur myndir af húsi Heuermann
Lögreglan í Nassau sýslu í New York hefur ákveðið að sekta þá sem stoppa og mynda hús Rex Hauermann sem grunaður er um að vera raðmorðingi. Sektin er 150 dollarar, eða 20 þúsund krónur.

Enda einangrun með heimsókn frá Rússlandi og Kína
Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa boðið sendinefndum frá Rússlandi og Kína til að taka þátt í hátíðarhöldum vegna þess að á morgun verða sjötíu ár liðin frá því skrifað var undir vopnahlé í Kóreustríðinu. Einræðisríkið hefur verið mjög einangrað á undanförnum árum vegna faraldurs Covid.

Einkakokkur Obama-fjölskyldunnar drukknaði í tjörn
Einkakokkur Baracks Obama, fyrrverandi Bandaríkjarforseta, og fjölskyldu drukknaði í tjörn nálægt sumarhúsi fjölskyldunnar í Martha's Vineyard í Bandaríkjunum.

Rússar skemmdu bandarískan dróna með blysum
Rússneskir flugmenn tveggja orrustuþota eru sagðir hafa skemmt bandarískan dróna yfir Sýrlandi með því að varpa blysum á hann. Atvikið átti sér stað þann 6. júlí en flugher Bandaríkjanna birti myndband af því í dag.

Fangelsi fyrir barsmíðar með fánastöng
Vörubílstjóri sem barði lögregluþjón með fánastöng í árásinni á þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar 2021 hefur verið dæmdur til rúmlega fjögurra ára vistar í alríkisfangelsi. Maðurinn játaði að hafa ráðist á lögregluþjón með hættulegu vopni.