Bandaríkin

Seinfeld-leikarinn Richard Herd er látinn
Richard Herd var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Mr. Wilhelm sem var yfirmaður George Costanza hjá hafnaboltafélaginu New York Yankees.

Twitter merkir tíst Trump sem misvísandi
Um er að ræða tvö tíst sem snúast um kjörseðla sem sendir eru heim til fólks.

Afgönsk yfirvöld leysa 900 Talíbana úr haldi
Afgönsk yfirvöld tilkynntu í dag að þau hyggðust leysa 900 vígamenn Talíbana úr haldi og báðu hryðjuverkahópinn jafnframt að framlengja þriggja daga vopnahlé sem á að enda á þriðjudagskvöld.

Biður Twitter um að fjarlægja morðsamsærisóra Trump
Ekkill starfsmanns bandarísks fyrrverandi þingmanns sem Donald Trump forseta er í nöp við hefur beðið forstjóra Twitter um að fjarlægja tíst forsetans með samsæriskenningum um dauða konu sinnar. Trump forseti hefur ítrekað slengt fram rakalausum samsæriskenningum sem ýja að því að fyrrverandi þingmaðurinn hafi myrt konuna.

„Ég segi þeim að svartur maður sé að ógna lífi mínu“
Myndband af hvítri konu hóta því að siga lögreglunni á svartan mann sem bað hana um að setja ól á hund sinn í New York hefur valdið miklu fjaðrafoki undanfarinn sólarhring.

Tyson heldur áfram að heimsækja vini sína sem frömdu morð í fangelsi
Boxarinn skrautlegi, Mike Tyson, segist enn heimsækja vini sína í fangelsum Bandaríkjanna en Tyson komst reglulega í kast við lögin á sínum yngri árum. Hann var meðal annars handtekinn 38 sinnum áður en hann var þrettán ára.

WHO stöðvar rannsókn á notagildi malaríulyfs sem Trump segist taka gegn Covid
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO, hefur stöðvað rannsókn á notagildi malaríulyfsins Hydroxychloroquine gegn Covid-19 sýkingu vegna velferðarsjónarmiða.

Varði helginni í golf, móðganir og morðásakanir
Donald Trump varði helginni í að spila golf, í fyrsta sinn um nokkurt skeið, og að tísta móðgunum, lygum og alls konar dylgjum um andstæðinga sína.

Segja póstatkvæði brjóta á rétti kjósenda og höfða mál gegn Kaliforníu
Þrenn samtök Repúblikana, og þar á meðal Landsnefnd Repúblikanaflokksins, hafa höfðað mál gegn Gavin Newsom, ríkisstjóra Kaliforníu. Tilefni málaferlanna er að hann hefur gefið út þá tilskipun að kjörseðlar verði sendir til allra skráða kjósenda í ríkinu í kosningunum í nóvember.

Vonast til að leiðtogafundur G7 geti farið fram í Washington í júní
Leiðtogar G7 ríkjanna munu hittast á fundi í lok júní sagði Robert O‘Brien, þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins í dag.

Segir Kína og Bandaríkin færast nær „köldu stríði“
Utanríkisráðherra Kína segir ákveðin pólitísk öfl í Bandaríkjunum halda samskiptum ríkjanna í gíslíngu. Hann segir þó ekki um hvaða öfl er að ræða.

„Þau voru ekki bara nöfn á lista“
New York Times birtir í dag lista yfir þúsund einstaklinga sem hafa látist af völdum kórónuveirunnar í Bandaríkjunum á forsíðu blaðsins. Heildarfjöldi látinna í landinu nálgast hundrað þúsund.

Dauðsföll í New York færri en hundrað síðasta sólarhring
Dauðsföll af völdum kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 voru 84 í New York-ríki síðastliðinn sólarhring.

Patrick Ewing með kórónuveiruna
Hinn 57 ára gamli Patrick Ewing hefur verið lagður inn á spítala í Washington og er í einangrun eftir að hafa verið greindur með kórónuveiruna.

Biden biðst afsökunar á „yfirlætislegum“ ummælum
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali í gær. Þar sagði hann að þeldökkir kjósendur sem íhuguðu að kjósa Donald Trump, núverandi forseta, væru ekki raunverulega þeldökkir.

Hertz óskar eftir greiðslustöðvun
Bílaleigan Hertz sótti í gær um greiðslustöðvun. Fyrirtækið er eitt þeirra sem komið hefur illa út úr þeim fjárhagslegu hremmingum sem faraldur kórónuveirunnar hefur valdið.

Jerry Sloan látinn
Jerry Sloan, sem þjálfaði Utah Jazz í 23 ár, féll frá í morgun. Hann er einn þekktasti þjálfari í sögu NBA-deildarinnar.

Myrti föður sinn á miðjum Zoom-fundi
Karlmaður á fertugsaldri stakk föður sinn, 72 ára, til bana í miðju hópspjalli á samskiptaforritinu Zoom í gær.

Trump enn og aftur grímulaus þrátt fyrir grímuskyldu
Donald Trump Bandaríkjaforseti mætti grímulaus til fundar við fréttamenn í verksmiðju bílaframleiðandans Ford í Michigan í gær, þrátt fyrir að grímuskylda gildi í ríkinu vegna faraldurs kórónuveiru.

Maðurinn á bak við myndavélina ákærður
William Bryan Jr., maðurinn sem tók upp atburðarásina þegar hinn 25 ára gamli Ahmaud Arbery var myrtur í Georgíuríki í febrúar síðastliðnum, hefur verið ákærður fyrir aðild að morðinu.

Fyrrverandi lögmanni Trump sleppt úr fangelsi vegna Covid-19
Michael Cohen, fyrrverandi lögmaður Trump sem dæmdur var í þriggja ára fangelsi í desember 2018, hefur verið sleppt úr fangelsi og færður í stofufangelsi.

Játa sök í háskólasvikamyllumálinu
Leikkonan Lori Laughlin og Mossimo Giuannulli, eiginmaður hennar, munu játa sök í hinu svokallaða háskólasvikamyllumáli.

Seinagangur stjórnvalda kostaði þúsundir mannslífa
Niðurstaða rannsóknar faraldursfræðinga við Columbia-háskóla í Bandaríkjunum hefur leitt í ljós að ef brugðist hefði verið við faraldri kórónuveirunnar viku fyrr hefði mátt bjarga allt að 36 þúsund mannslífum.

Vara við meiriháttar flóðbylgju í Alaska vegna bráðnandi jökuls
Hópur vísindamanna sem fylgist með landhræringum á norðurskautinu óttast að berghlaup úr fjallshlíð geti valdið gríðarlega stórri flóðbylgju á einu þéttbýlasta svæði Alaska á allra næstu áratugum. Aukin hætta er sögð á hamfaraskriðum og flóðbylgjum vegna hnattrænnar hlýnunar á norðurslóðum.

Hæstiréttur stöðvar afhendingu Mueller-gagna
Hæstiréttur Bandaríkjanna kom í dag í veg fyrir að þingmenn fengu aðgang að skýrslu Robert Mueller úr Rússarannsókninni svokölluðu og önnur undirliggjandi gögn.

Segir að eftirlitsmaðurinn hefði átt að vera rekinn fyrir löngu
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að innri endurskoðandi utanríkisráðuneytisins hefði átt að vera rekinn fyrir löngu.

Framdi skotárás eftir að hafa verið beðinn um að vera með grímu
Lögreglan í Aurora í Colorado-ríki í Bandaríkjunum hefur handtekið 27 ára mann sem grunaður er um skotárás.

Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna flóða
Um tíu þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Michigan-ríki í Bandaríkjunum vegna flóða á svæðinu.

Trump hótar ríkjum sem auðvelda fólki að kjósa í faraldrinum
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í dag tveimur ríkjum Bandaríkjanna að hann myndi stöðva fjárveitingar alríkisstjórnarinnar til þeirra ef þau hættu ekki við áform um að bjóða upp á utankjörfundar- og póstatkvæði til að draga úr smithættu vegna kórónuveirufaraldursins í kosningum á þessu ári.

Sagðist hafa fengið greitt fyrir að tala gegn þungunarrofi
Konan sem Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi að hefði rétt á þungunarrofi og lögleiddi þannig aðgerðina á 8. áratug síðustu aldar hélt því fram að hún hefði fengið greitt til að vinda kvæði sínu í kross og tala gegn þungunarrofi. Þetta kemur fram í nýrri heimildarmynd.