
Bandaríkin

Halda fleiri heræfingar á Taívansundi
Kínverjar halda nú heræfingar á Taívansundi, á sama tíma og bandarískur erindreki heimsækir eyríkið. Yfirvöld í Kína segja heræfingunum ætlað að tryggja fullveldi ríkisins. Í dag gagnrýndi talsmaður Utanríkisráðuneytis Kína bæði Bandaríkin og Taívan fyrir aukið samráð og að „valda vandræðum“.

Bandaríkin: Styttist óðfluga í kosningar
Það styttist óðum í forsetakosningar í Bandaríkjunum og loksins hefur okkur tekist að taka upp nýjan þátt Bandaríkjanna, hlaðvarps fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, eftir langar tafir sem má að mestu rekja til heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.

Höfundur Forrest Gump fallinn frá
Bandaríski rithöfundurinn Winston Groom er látinn, 77 ára að aldri.

Mikill munur á borgarafundi Biden og Trump
Joe Biden, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins, gagnrýndi Donald Trump, forseta, harðlega á borgarafundi á vegum CNN í gær. Hann sagði meðal annars að viðbrögð Trump við faraldri nýju kórónuveirunnar væru óábyrg og það að Trump hafi vísvitandi gert lítið úr alvarleika faraldursins vera „glæpsamlegt“.

Netflix-stjarna ákærð fyrir framleiðslu barnaníðsefnis
Jeremiah Harris hefur verið ákærður fyrir framleiðslu barnaníðsefnis.

Fyrirsæta sakar Bandaríkjaforseta um kynferðisárás
Fyrrverandi fyrirsæta sakar Donald Trump Bandaríkjaforseta um að hafa ráðist á hana kynferðislega á opna bandaríska tennismótinu fyrir tæpum aldarfjórðungi. Konan lýsir því að árásin hafi valdið henni ógleði og henni hafi fundist á sér brotið.

Giftist manninum sem hún hjálpaði úr fangelsi og fórnaði körfuboltanum fyrir
Ein besta körfuboltakona heims gerði meira en að hjálpa Jonathan Irons að losna úr fangelsi því hún sagði líka já þegar hann bað hennar.

Sally olli miklum flóðum
Hitabeltisstormurinn Sally hefur orsakað rafmagnsleysi hjá hálfri milljón Bandaríkjanna en óveðrinu hafa fylgt gríðarlegar rigningar og flóð.

Gagnrýndi yfirmann sóttvarnastofnunar fyrir ummæli um grímur og bóluefni
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gagnrýnt yfirmann Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC) eftir að sá sagði að bóluefni við Covid-19 yrði ekki komið í almenna notkun fyrr en um mitt næsta ár og að grímur gætu verið skilvirkari en bóluefni.

Greiddu unglingum til að dreifa áróðri til stuðnings Trump
Ungliðahreyfing íhaldsmanna í Bandaríkjunum sem er hliðholl Donald Trump forseta hefur undanfarið greitt unglingum og ungmennum til þess að dreifa áróðri sem styður mál forsetans á samfélagsmiðlum.

Ræða um að greiða milljarða til að láta FIFA-sakir hverfa
Svissneski bankinn Julius Bär gæti greitt bandarískum yfirvöldum jafnvirði milljarða íslenskra króna í sátt til að losna undan ásökunum um aðild að spillingarmáli Alþjóðaknattspyrnusambandsins (FIFA).

Sally byrjar að valda usla með flóðum
Fellibylurinn Sally hefur safnað krafti og skilgreinist nú sem annars stigs fellibylur. Hann ógnar nú Flórída og Alabama með miklum sjávarflóðum, rigningu og roki.

Sagði að Covid myndi hverfa vegna „hjarðeðlis“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, svaraði spurningum á sjónvörpuðum borgarafundi í gærkvöldi þar sem hann sagðist meðal annars ekki hafa gert lítið úr heimsfaraldri nýju kórónuveirunnar.

Trump hampar „dögun nýrra Mið-Austurlanda“
Donald Trump Bandaríkjaforseti fagnaði því í dag að samningar hafi náðst milli Ísrael og Sameinuðu arabísku furstadæmanna og Barein og kallaði undirritun samninganna „dögun nýrra Mið-Austurlanda.“

Fjölskylda Breonnu Taylor fær tólf milljónir dollara
Borgaryfirvöld í Louisville í Kentucky í Bandaríkjunum hafa ákveðið að greiða fjölskyldu Breonnu Taylor tólf milljónir dollara í sátt sem gerð hefur verið á milli fjölskyldunnar og yfirvalda.

Notuðu rússneska þotu í framboðsauglýsingu
Nefnd sem sér um að safna fjármunum fyrir forsetaframboð Donald Trump forseta Bandaríkjanna hefur fjarlægt auglýsingu þar sem hvatt var til stuðnings við bandaríska hermenn.

Segir að árás frá Íran yrði svarað þúsundfalt
Yfirvöld í Íran hafa varað Bandaríkin við því að „gera mistök“ eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði Íran á Twitter.

„Ég held að vísindin viti það ekki, í rauninni“
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, endurvakti í gær afstöðu sína um að slæm umhirða skóga leiði til gróðurelda og að þörf sé á að raka skóglendi til að sporna gegn þeim.

Trump ávarpar grímulausa fundargesti: „Við munum auðveldlega sigrast á Kína-veirunni“
Þvert á ríkisreglur og tilmæli hans eigin stjórnar hélt Donald Trump Bandaríkjaforseti í gær fjöldafund innanhúss, þar sem gestir fundarins stóðu þétt saman án þess að bera grímur fyrir vitum. Trump upplýsti fundargestina í Nevada að þjóðin væri við það að sigrast á faraldrinum.

Fellibylurinn Sally nálgast suðurströnd Bandaríkjanna
Fellibylurinn Sally nálgast nú suðurströnd Bandaríkjanna óðfluga. Talið er að óveðrið muni skella á nokkur ríkja suðurhluta Bandaríkjanna, þar á meðal Flórída, Mississippi og Alabama.

Barnabarn fyrrverandi Bandaríkjaforseta vill láta grafa upp líkamsleifar afa síns
Barnabarn Bandaríkjaforsetans fyrrverandi, Warren G. Harding, hefur leitað til dómstóla og krafist þess að líkamsleifar Harding verði grafnar upp og lífsýni tekið til að sanna fjölskyldutengsl þeirra.

Búa sig undir annan fellibyl
Bandaríkjamenn sem búa við Mexíkóflóa undirbúa sig nú fyrir enn einn fellibylinn sem talið er að muni ná landi á morgun. Sally er nú skilgreind sem óveður en hún er á Mexíkóflóa að safna krafti fyrir ferðina inn á land og er áætlað að Sally nái fellibylsstyrk í kvöld.

Gróðureldar orðnir að pólitísku bitbeini
Íbúar Kaliforníu, Oregon og Washington hafa orðið fyrir barðinu á sögulegu eldhafi en eldarnir hafa brunnið hraðar og meira en nokkru sinni áður. Eldarnir hafa þó orðið að pólitísku bitbeini milli Demókrata og Repúblikana.

Rekinn eftir að hann kýldi mann ítrekað við handtöku
Lögreglumaður í Georgíuríki í Bandaríkjunum var rekinn eftir að hann stöðvaði svartan mann við umferðareftirlit og kýldi hann ítrekað á föstudag.

Ekkert verður af kaupum Microsoft á TikTok
Tölvurisinn Microsoft tilkynnti um það í nótt að ekkert verði af fyrirhuguðum kaupum þess á starfsemi kínverska samskiptamiðlilsins TikTok í Bandaríkjunum.

Aldrei fleiri greinst á einum sólarhring
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin greindi frá því í dag að aldrei hefðu fleiri tilfelli verið staðfest á einum sólarhring.

Sanders segir Biden þurfa að gera meira
Bernie Sanders, fyrrum mótframbjóðandi Joe Biden í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í ár, segir ekki duga til að kosningabaráttan snúist einungis um að svara Trump.

Hræðast að óveður muni dreifa enn frekar úr eldunum
Veðurstofa Bandaríkjanna hefur gefið út rauða viðvörun vegna mikils óveðurs sem nálgast nú vesturströnd landsins. Veðrið boðar ekki gott, en miklum vindum og engri rigningu er spáð, og talið er að gróðureldarnir sem þar geisa muni dreifast enn meira.

Tveir lögreglumenn skotnir í fyrirsát
Árásarmaðurinn gengur laus.

„Ótrúlegur dagur fyrir bandarískan fótbolta“
„Ótrúlegur dagur fyrir bandarískan fótbolta.“ Svona byrja tíst fjölmiðlamannsins Roger Bennett frá því í gær en Bennett stýrir þættinum vinsæla Men In Blazers og er mikill Íslandsvinur.