„Besti tími lífs míns hingað til“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 13. janúar 2026 07:02 Daniel og Davíð giftu sig síðastliðið sumar og fögnuðu með pompi og prakt í Kólumbíu í lok nóvember. Davíð ræddi við blaðamann um alla gleðina sem fylgdi brúðkaupinu. Aðsend „Ef maður hóar góðu fólki saman með nóg af góðum mat og góðum drykkjum þá getur þetta ekki klikkað,“ segir hinn nýlega gifti Davíð Þorláksson. Hann og ástin hans Daniel Barrios Castilla giftu sig síðastliðið sumar á Akureyri og fögnuðu því svo með stæl í borginni Medellín í Kólumbíu.
Davíð starfar sem framkvæmdastjóri Betri samgangna og Daniel er verkfræðingur. „Við kynntumst fljótlega eftir að Daniel flutti til Íslands haustið 2019, þegar hann hóf nám í raforkuverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Við byrjuðum þó saman tæplega ári síðar, síðla sumars 2020,“ segir Davíð um upphaf sambandsins. Blaðamaður ræddi við hann um brúðkaupið og ævintýrin því tengdu. Davíð og Daniel kynntust árið 2019 og urðu par ári síðar.Aðsend Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Við trúlofuðum okkur í fjörunni á Hrauni í Ölfusi, þaðan sem föðurfjölskyldan mín er, 10. febrúar 2024. Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Við byrjuðum að skipuleggja þetta fljótlega í kjölfar trúlofunarinnar. Daniel og Davíð trúlofuðu sig árið 2024 og fóru fljótt að skipuleggja brúðkaupið.Aðsend Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Við giftum okkur hjá Sýslumanninum á Akureyri 25. júlí í sumar í fallegu veðri, eins og er alltaf þar. Fórum svo í myndatöku í Lystigarðinum og svo hýsti móðir mín boð í verðlaunagarðinum sínum í Hörpulund, þar sem ég bjó sem unglingur, fyrir nánustu fjölskyldu og vini. Fyrsta veislan var haldin á Akureyri og svo tæpu hálfu ári síðar var stefnan tekin til Kólumbíu.Aðsend Stóra veislan var svo haldin 29. nóvember í heimaborg Daniels, Medellín í Kólumbíu. Kvöldið fyrir veisluna bauð fjölskylda Daniels fjölskyldu minni og nokkrum vinum í æfingakvöldverð heim til Alejöndru, systur hans. Fyrir veisluna sjálfa leigðu Íslendingarnir sér kólumbíska partýrútu, það sem heimamenn kalla chiva, og mættu á henni saman í veisluna. Þótt flestir hafi gist á hótelum í um tíu mínútna fjarlægð þá lögðu þau snemma í hann og tóku góðan hring í leiðinni og voru því mjög hress þegar þau mættu. Við buðum fyrst upp á fordrykk og smárétti. Daniel bauð fólk velkomið á íslensku og ég á spænsku með stuttum ávörpum. Fólk fylgdist með báðu með þýðingarappi og jafnvel hörðustu naglar felldu tár yfir báðum ávörpum. Svo var sest niður fyrir aðalrétt, köku og skemmtiatriði áður en farið var út á dansgólfið. Það var líf og fjör í veislunni í Medellín!Aðsend Voruð þið sammála í skipulaginu? Já, við vorum nokkuð samstíga. Ég sá um kostnaðaráætlunina, skipuleggja athöfnina og boðið á Akureyri og Daniel veisluna í Medellín, sem var auðvitað talsvert umfangsmeira. Strákarnir voru samstíga í skipulaginu.Aðsend Hvað fannst ykkur mikilvægast? Mikilvægast er bara að hafa gaman saman og með fjölskyldum og vinum. Strákarnir umkringdur þeirra besta fólki.Aðsend Hvaðan sóttuð þið innblástur? Við reyndum að búa til góða blöndu af íslenska kuldanum og kólumbísku hlýjunni. Innblásturinn kom frá hlýju Kólumbíu og kulda Íslands.Aðsend Hvað stendur upp úr? Fyrst og fremst þakklæti til allra þeirra sem lögðu á sig langt ferðalag, bæti til Íslands og Kólumbíu. Fyrir Íslendingana stóð upp úr hjá mörgum hve fallegt og skemmtilegt væri í Medellín. Kólumbía er vanmetin áfangastaður fyrir ferðamenn sem ég spái að muni vaxa mikið á næstunni. National Geographic var að gefa út sinn árlega lista yfir bestu áfangastaði þessa árs. Medellín er þar á meðal tveggja borga í Suður-Ameríku og níu borga í heiminum sem komast á listann. Líf og fjör í Medellín!Aðsend Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Já, Pétur vinur minn, og Carolina, vinkona Daniels, voru veislustjórar og pössuðu upp á dagskrána bæði á ensku og spænsku. Við gerðum ekki kröfu um mikla dagskrá eða ræður. Ef menn vildu halda ræðu var krafa um að hún yrði að vera stutt og skemmtileg. Pabbi minn, mamma Daniels, Hilmar vinur minn og Nelson vinur Daniels héldu ræður. Svo voru vinir mínir, þeir Arnór Pálmi, Kristján, Magnús og Pétur með skemmtilegt tónlistaratriði. Vinir Davíðs tróðu upp!Aðsend Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Nei, þetta var þaulskipulagt af okkur og veislustjórum og ekkert sem kom á óvart. Brúðkaupið var þaulskipulagt og dásamlegt. Aðsend Hvað voru margir gestir? Við erum báðir svo heppnir að eiga marga góða vini. Það voru hátt í 60 Íslendingar sem lögðu leið sína alla leið til Medellín, en gestir voru alls um 120. Auk Íslands og Kólumbíu kom fólk frá Síle, Mexíkó, Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Belgíu, Spáni og Tælandi. Um 60 gestir komu frá Íslandi og alls voru 120 gestir hvaðanaf úr heiminum.Aðsend Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það? Ég pæli lítið í fötum en á góðan smóking frá SuitUp Reykjavík sem ég hef oft notað. Ég ákvað þó að kaupa mér nýjan jakka í mínum uppáhaldslit, úr dökkgrænu flaueli, fyrir þetta tilefni. Daniel var í mjög smekklegum sérsaumuðum bláum jakkafötum frá Bogóta í Kólumbíu. Glæsilegir í bláu og grænu.Aðsend Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Ekki hafa miklar áhyggjur og langa dagskrá. Ef maður hóar góðu fólki saman með nóg af góðum mat og góðum drykkjum þá getur þetta ekki klikkað. View this post on Instagram A post shared by Daniel Barrios Castilla (@dbarrioscasti) Fóruð þið í brúðkaupsferð? Kvöldið eftir veisluna í Medellín fórum við í tæplega tveggja vikna ferð til Santíagó og Pichilemu í Síle, Punta del Este og Montevideo í Úrúgvæ þaðan sem við tókum svo ferju yfir Río de la Plata til Buenos Aires í Argentínu. Dagarnir í Kólumbíu með Daniel, fjölskyldum okkar og vinum og brúðkaupsferðin var besti tími lífs míns hingað til og er þá mikið sagt enda hef ég verið svo heppinn að hafa upplifað marga skemmtilega hluti. View this post on Instagram A post shared by Davíð Þorláksson (@davidthorlaks)
Brúðkaup Ástin og lífið Íslendingar erlendis Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Sjá meira