Bandaríkin

Níu látnir í Bandaríkjunum vegna veðurs
Níu hafa látist í Bandaríkjunum í óveðrinu sem geisar. Látnu létust öll í bílslysum vegna hálku og slæmra akstursskilyrða. Milljónir Bandaríkjamanna eru strandaglópar og þúsundum flugferða hefur verið aflýst vegna veðurs.

Tory Lanez sakfelldur fyrir að hafa skotið Megan Thee Stallion
Kanadíski rapparinn Tory Lanez hefur verið sakfelldur fyrir að hafa skotið rapparann Megan Thee Stallion í fótinn árið 2020. Refsingin gæti numið yfir 22 ára fangelsi. Líklegt er að Lanez verði sendur úr landi.

Evrópa í basli með skotfærabirgðir og framleiðslu
Ríki Evrópu eiga í vandræðum með að auka framleiðslu hergagna, þrátt fyrir að mörg af stærstu vopnaframleiðslufyrirtækjum heims megi finna á heimsálfunni. Vandræðin snúa sérstaklega að framleiðslu skotfæra fyrir stórskotaliðsvopn.

Scott Minerd látinn
Scott Minerd, fjárfestingastjóri Guggenheim Partners, er látinn 63 ára að aldri. Greint er frá andláti Bandaríkjamannsins í Financial Times. Hann var einn helsti stuðningsmaður Hringborðs norðurslóða og sótti hringborðið heim í október síðastliðnum.

Laus gegn tug milljarða tryggingu sakaður um söguleg fjársvik
Umdæmisdómstóll í New York féllst á að sleppa Sam Bankman-Fried, stofnanda rafmyntafyrirtækisins FTX, úr varðhaldi gegn himinhárri tryggingu í gær. Saksóknari sakaði Bankman-Fried um að hafa framið fjársvik af sögulegri stærðargráðu.

Trump sagður hafa kveikt uppreisnarbálið
Ábyrgðin á árás stuðningsmanna Donalds Trump á bandaríska þinghúsið í fyrra er á herðum eins manns: Trumps sjálfs. Þetta er niðurstaða þingnefndar sem rannsakaði árásina. Hún mælir með því að Trump verði bannað að gegna opinberu embætti aftur.

Wagner málaliðahópurinn sagður hafa keypt vopn af Norður-Kóreu
Bandaríkjamenn hafa sakað stjórnvöld í Norður-Kóreu um að hafa séð Wagner málaliðahópnum fyrir vopnun til notkunar í Úkraínu. Þeir segja söluna brjóta gegn ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Einstakt kuldakast ógn við líf manna í Bandaríkjunum og Kanada
Mikið kuldakast gengur nú yfir Bandaríkin og Kanada og vara sérfræðingar fólk við því að kal geti myndast á húð á aðeins nokkrum mínútum. Veðurviðvaranir um helgina ná til 135 milljóna manna á sama tíma og gríðarlega margir eru á faraldsfæti.

Ljóst hvað dró Charlbi Dean til dauða
Suðurafríska leikkonan Charlbi Dean, sem birtist meðal annars í stórmyndinni Triangle of Sadness lést skyndilega í ágúst, 32 ára að aldri. Krufning hefur nú leitt í ljós hvað það var sem dró leikkonuna til dauða.

Lest klessti á flutningabíl í Tennessee
Tveir eru slasaðir eftir að lest klessti á flutningabíl og fór út af sporinu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum. Myndband náðist af því þegar lestin klessti á bílinn.

Bókasafni skellt í lás vegna amfetamínreykinga
Yfirvöld í borginni Boulder í Kolóradó í Bandaríkjunum hafa ákveðið að loka aðalbókasafni borgarinnar. Ástæðan er einföld, fólk hefur reykt of mikið amfetamín á salernum bókasafnsins.

Pútín viðurkennir vandræði og styður stækkun hersins
Vlaldimír Putín, forseti Rússlands, lýsti í gær yfir stuðningi við áætlun Varnarmálaráðuneytisins um að stækka rússneska herinn um um það bil helming. Þá sagði forsetinn að herinn þyrfti að ganga í gegnum ýmsar endurbætur og að engu væri sparað til.

Rafmyntamógúllinn fluttur með fangaflugi til New York
Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, lenti í New York til að svara til saka í einu stærsta fjársvikamáli Bandaríkjanna í nótt eftir að hann var framseldur frá Bahamaeyjum. Tveir samstarfsmenn hans hafa þegar játað sig seka um glæpi.

Ekki ölmusa heldur fjárfesting í öryggi og lýðræði
„Fjárstuðningur ykkar er ekki ölmusa. Hann er fjárfesting í öryggi heimsins og lýðræði, sem við förum með á sem ábyrgastan hátt,“ sagði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti þegar hann ávarpaði Bandaríkjaþing í gærkvöldi.

Úkraínuforseti færir Bandaríkjaforseta áritaðan fána hermanna á vígstöðvunum
Bandarísk stjórnvöld munu staðfesta 45 milljarða dollara aðstoð við Úkraínu í óvæntri heimsókn Úkraínuforseta til Bandaríkjanna í kvöld. Zelenskyy heiðrari hermenn á víglínunni í Bakhmut í gær og sagði þá verja alla Úkraínu fyrir dauða og eyðileggingu sem Rússar skildu alls staðar eftir sig.

Samþykktu að birta skattskýrslur Trumps
Bandarísk þingnefnd samþykkti að birta skattskýrslur Donalds Trump, fyrrverandi forseta, sem hann hefur alla tíð barist gegn að verði opinberar. Hún segir að skatturinn hafi aldrei endurskoðað skattskýrslur Trump þrátt fyrir reglur um það.

Selenskí heimsækir Bandaríkin í dag
Volodomír Selenskí Úkraínuforseti fer í sína fyrstu utanlandsferð í dag frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst.

Musk hyggst hætta þegar arftakinn er fundinn
Bandaríski auðjöfurinn Elon Musk hyggst láta af störfum sem forstjóri samfélagsmiðlarisans Twitter þegar búið er að finna einhvern sem sé „nægilega vitlaus til að taka starfið að sér“.

Tíu þúsund án rafmagns eftir jarðskjalfta upp á 6,4
Jarðskjálfti að stærð 6,4 reið yfir í norður Kaliforníu, á svæði í kringum borgina Eureka, í dag. Um 10 þúsund manns eru án rafmagns og að minnsta kosti tveir eru slasaðir. Skemmdir urðu einnig á vegum á svæðinu.

Leyndardómsfull fjöldagröf gæti hafa verið fæðingarstaður hvaleðla
Fornleifafræðingar hafa fundið vísbendingar um að þekkt steingervingasvæði í Bandaríkjunum sem hefur verið þeim ráðgáta lengi kunni að hafa verið fæðingarstaður hvaleðla fyrir hundruðum milljóna ára.

Ferilskrá verðandi þingmanns talin vera uppspuni
George Santos, sem nýverið var kosinn þingmaður í New York í Bandaríkjunum, virðist hafa falsað stóran hluta ferilskrár sinnar. Santos sem er Repúblikani vann sæti sitt í fulltrúadeildinni í kosningunum í síðasta mánuði, en Repúblikanar náðu mjög naumum meirihluta þar.

Búa sig undir að kveðja jarðskjálftamælinn á Mars
Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur misst samband við lendingarfarið Insight á reikistjörnunni Mars. Orka geimfarsins hefur farið dvínandi undanfarna mánuði og er nú gert ráð fyrir að dagar þess séu taldir.

Musk vill takmarka kannanir við áskrifendur Twitter
Auðjöfurinn Elon Musk segir að breyting verði gerð á framkvæmd kannana um stefnubreytingar hjá samfélagsmiðlinum. Eingöngu áskrifendur muni fá að taka þátt í þeim en hann tilkynnti þessa breytingu eftir að notendur greiddu atkvæði um að hann ætti að stíga til hliðar sem forstjóri Twitter.

Vilja banna ríkisstarfsmönnum að nota Tiktok
Bandarískum alríkisstarfsmönnum verður bannað að nota kínverska samfélagsmiðilinn Tiktok á tækjum í eigum ríkisins verði frumvarp að um útgjöld ríkisins að lögum í óbreyttri mynd. Þarlend yfirvöld telja forritið geta ógnað þjóðaröryggi.

Bankman-Fried samþykkir að vera framseldur
Lögmaður Sams Bankman-Frieds, stofnanda FTX, segir hann tilbúinn að svara til saka í Bandaríkunum vegna falls rafmyntakauphallarinnar. Undirbúningur að framsali hans til Bandaríkjanna hefjist nú.

Farþegar flugu í loftið í gríðarlegri ókyrrð
Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum rannsakar nú atvik sem varð um borð í flugi Hawaiian Airlines frá Phoenix í til Havaí. Gríðarleg ókyrrð varð til þess að ellefu farþegar vélarinnar slösuðust alvarlega.

Weinstein dæmdur fyrir aðra nauðgun
Kviðdómur í Los Angeles í Bandaríkjunum hefur fundið kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein sekan af ákæru um að hafa nauðgað konu.

Mælast til þess að Trump verði ákærður
Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti einróma í kvöld að mælast til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, verði ákærður í fjórum ákæruliðum fyrir þátt hans í árásinni á þinghúsið þann 6. janúar árið 2020.

Risatekjur af Thule-herstöðinni færast til grænlensks fyrirtækis
Gríðarlegar tekjur af Thule-herstöðinni á Grænlandi færast á ný í hendur grænlensks fyrirtækis með verktaka- og þjónustusamningi við bandaríska flugherinn. Samningurinn var kynntur um helgina og hljóðar upp á nærri fimmtíu milljarða íslenskra króna á ári.

Heard hættir við áfrýjun eftir samkomulag
Leikkonan Amber Heard hefur tilkynnt að hún hafi gert samkomulag um að hætta við áfrýjun í meiðyrðamál Johnny Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar. Hún var í fyrra dæmd til að greiða Depp um tvo milljarða króna í skaðabætur vegna greinar sem hún skrifaði í Washington Post árið 2018, þar sem hún sagðist hafa verið fórnarlamb heimilisofbeldis.