Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Jamaíku

„Erfitt að vinna með einhverjum betri en Heimi“
Samstarf Heimis Hallgrímssonar og Guðmundar Hreiðarssonar teygir sig mörg ár aftur í tímann og hefur Guðmundur fylgt Eyjamanninum í alls konar ævintýri víðs vegar um heiminn. Hann segir erfitt að vinna með einhverjum betri en Heimi sem laði fram það besta í fólki.

Steve Bruce gæti tekið við gamla starfi Heimis Hallgríms
Steve Bruce er sagður vera í viðræðum við knattspyrnusamband Jamaíku um að taka við þjálfun karlalandsliðs þjóðarinnar.

Heimir og eyjarnar hans
Heimir Hallgrímsson er sannkallaður Eyjamaður. Á því leikur enginn vafi. Það er ekki nóg með að hann sé uppalinn á Heimaey í Vestmannaeyjum þá hefur hann þjálfað hvert eyríkið á fætur öðru. Nú síðast tók hann við sem landsliðsþjálfari Írlands.

Skilur við Jamaíka í góðu og telur liðið á betri stað nú en þegar hann tók við
Heimir Hallgrímsson hefur látið af störfum sem þjálfari karlalandsliðs Jamaíka í knattspyrnu. Hann vill horfa á það jákvæða sem liðið hefur áorkað undir hans stjórn ásamt því að sjá liðið vaxa og dafna þegar fram líða stundir.

Heimir lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Jamaíku
Heimir Hallgrímsson hefur sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari Jamaíku. Tilkynningin kemur í kjölfar Copa America, Jamaíka lauk keppni þar í nótt og endaði stigalaust í riðlinum.

Fyrsta markið kom loksins en Reggístrákarnir hans Heimis úr leik
Möguleikar Jamaíku á að komast í átta liða úrslit Suður-Ameríkukeppninnar eru úr sögunni eftir tap fyrir Ekvador, 3-1, í öðrum leik liðsins í B-riðli keppninnar.

Tap hjá Heimi Hallgríms en fyrirliði Mexíkó fór grátandi af velli
Mexíkó vann 1-0 sigur á lærisveinum Heimis Hallgrímssonar í Jamaíka í nótt í fyrsta leik í liðanna í Suðurameríkukeppninni, Copa América.

Heimir Hallgrímsson: Usain er frábær manneskja og mikill aðdáandi landsliðsins
Heimir Hallgrímsson unir sér vel í hitanum í Jamaíka. Hann er spenntur fyrir Ameríkukeppninni síðar í mánuðinum og telur góðar líkur á að landsliðið komist á næsta heimsmeistaramót. Það muni þeir gera með góðum stuðningi landsmanna, þeirra á meðal fyrrum spretthlauparans Usain Bolt.

Heimir Hallgríms þegar búinn að tryggja sambandinu 277 milljónir
Suðurameríkukeppnin í fótbolta, Copa América, fer fram í sumar og við Íslendingar eigum þar flottan fulltrúa.

Rugluðust á Heimi Hallgríms og Guðmundi Hreiðars
Heimir Hallgrímsson hefur vakið athygli fyrir að gera flotta hluti með landslið Jamaíka en það getur greinilega verið stundum erfitt að þekkja Íslendingana hjá jamaíska landsliðinu í sundur.

Heimir Hallgríms og Reggístrákarnir unnu bronsið
Jamaíska fótboltaboltalandsliðið varð í þriðja sæti í Þjóðadeild Norður- og Mið-Ameríku eftir sigur í bronsleiknum í nótt.

Heimir andartaki og ótrúlegu sjálfsmarki frá því að slá út Bandaríkin
Afar slysalegt sjálfsmark á allra síðustu stundu kom í veg fyrir að Heimir Hallgrímsson og hans menn í Jamaíka næðu að slá út Bandaríkin, á útivelli, í undanúrslitum Þjóðadeildar CONCACAF, eða Mið- og Norður-Ameríku.

Heimir Hallgríms henti tveimur úr landsliðinu vegna agabrots
Það er óhætt að segja að Heimir Hallgrímsson mæti með vængbrotið lið í undanúrslitaleik Þjóðadeildar Norður- og Mið-Ameríku.

Heimir myndi elska það að vera með Greenwood í sínu liði
Heimir Hallgrímsson talaði á ný um áhuga sinn á því að Mason Greenwood verði landsliðsmaður Jamaíku.

Heimir mætir ekki Messi nema með því að komast upp úr riðlinum
Nú er orðið ljóst hvaða liðum lærisveinar Heimis Hallgrímssonar, í jamaíska karlalandsliðinu í fótbolta, mæta á Copa America næsta sumar.

Lars ítrekar meðmæli sín með Heimi sem hann treystir að fullu
Án þess að hika, myndi Lars Lagerback, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, mæla með fyrrum samstarfsmanni sínum Heimi Hallgrímssyni í hvaða þjálfarastarf sem er. Hann er yfir sig hrifinn af starfi Heimis með Jamaíka upp á síðkastið.

Lars með lausnina fyrir Svía: Ráðið Heimi
Svíar eru í leit að nýjum þjálfara fyrir karlalandslið sitt í fótbolta. Lars Lagerbäck bendir löndum sínum á að tala við sinn gamla samstarfsmann og vin, Eyjamanninn Heimi Hallgrímsson.

Komu Heimi á óvart í beinni í Bítinu
Heimi Hallgrímssyni, landsliðsþjálfara karlaliðs Jamaíka í fótbolta, var komið skemmtilega á óvart í beinni útsendingu í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem að hann var til viðtals frá Vestmannaeyjum. Umsjónarmenn Bítisins brustu í söng, Heimi til heiðurs, í upphafi viðtalsins.

Reggístrákarnir mæta Bandaríkjunum í undanúrslitum
Rétt í þessu var dregið í undanúrslit CONCACAF Þjóðadeildarinnar eftir að 8-liða úrslit keppninnar kláruðust í gær. Heimir Hallgrímsson mun stýra Jamaíku gegn ríkjandi meisturum mótsins, Bandaríkjunum. Í hinni viðureign undanúrslitanna mætast Panama og Mexíkó.

Heimir Hallgríms kom Jamaíku í undanúrslitin og inn á Copa America
Jamaíska fótboltalandsliðið sló Kanada út í nótt í átta liða úrslitum Þjóðadeildarinnar og skrifaði um leið söguna á margvíslegan hátt.

Stórleik Reggístrákanna frestað vegna veðurs
Leik Jamaíka og Kanada í útsláttarkeppni Þjóðadeildar Norður- og Mið Ameríku var frestað í nótt vegna veðuraðstæðna. Sigurvegari einvígisins tryggir sér sæti á Copa America næsta sumar.

Heimir með HM-drauma í allt öðrum kúltúr: Þú getur ekki breytt öllum í Íslendinga
Heimir Hallgrímsson hefur nú verið eitt ár í starfi sem landsliðsþjálfari Jamaíka. Hann er nú heima á Íslandi áður en hann fer aftur yfir Atlantshafið til að hjálpa jamaíska landsliðinu að tryggja sér sæti í Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu.

„Alltaf haft þá skoðun að allir eigi rétt á að fá annað tækifæri til að sýna sig og sanna“
Heimir Hallgrímsson segir ekkert launungarmál að hann vilji fá framherjann Mason Greenwood til að spila með jamaíska landsliðinu.

Sigur á Kanada kemur Reggístrákunum hans Heimis í Suður-Ameríkukeppnina
Til að komast í Suður-Ameríkukeppnina í Bandaríkjunum á næsta ári þarf Jamaíka að slá Kanada út.

Skipting Heimis gerði gæfumuninn í sigri Jamaíku
Strákarnir hans Heimis Hallgrímssonar í jamaíska fótboltalandsliðinu héldu áfram á sigurbraut þegar þeir lögðu Haítí að velli, 2-3, í B-riðli A-deildar Þjóðadeildar Norður- og Mið-Ameríku.

Heimir opnar á leið Greenwood til Jamaíka
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Jamaíka er opinn fyrir því að fá enska sóknarmanninn Mason Greenwood til liðs við sitt lið.

Lærisveinar Heimis úr leik í Gullbikarnum
Jamaíka er úr leik í Gullbikarnum í knattspyrnu eftir 3-0 tap gegn Mexíkó í undanúrslitum í nótt.

Jamaíka í undanúrslit Gullbikarsins
Jamaíka tryggði sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum norður-ameríska Gullbikarsins eftir að hafa lagt Gvatemala að velli í 8-liða úrslitum. Jamaíka mætir Mexíkó í undanúrslitum.

Reggí strákarnir hans Heimis unnu stórt en töpuðu samt markastríðinu
Jamaíska fótboltalandsliðið tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Gullbikarsins í nótt með sínum öðrum sigurleik í röð í keppninni. Heimir Hallgrímsson fór því taplaus með liðið í gegnum riðlakeppnina.

Fyrsti sigur Heimis með Jamaíka í höfn og hann var af glæsilegri gerðinni
Heimir Hallgrímsson stýrði landsliði Jamaíka til sigurs í fyrsta sinn í nótt þegar liðið vann frábæran 4-1 sigur á Trínidad og Tóbagó í Gullbikarnum sem fer fram í Bandaríkjunum.