Fótbolti á Norðurlöndum

Efnilegasti fótboltamaður í heimi heldur með Liverpool
Norðmaðurinn Martin Ödegaard er efnilegasti fótboltamaður heims samkvæmt samantekt breska vefmiðilsins Teamtalk.

Þjálfari Hjálmars náði "bara" silfrinu og var rekinn
Mikael Stahre var látinn taka pokann sinn hjá sænska úrvalsdeildarliðinu IFK Gautaborg í morgun en hann hefur þjálfað Hjálmar Jónsson og félaga undanfarin þrjú tímabil.

Viðar Örn á fimmtánda vinsælasta lagið í Noregi
Sóknarmaðurinn slær í gegn með Creed-ábreiðu.

Kristinn: Skoða þá möguleika sem koma upp
Kristinn Steindórsson spilaði vel með Halmstad á tímabilinu og hefur heyrt af áhuga annarra liða.

Jafnt í Íslendingaslag í Danmörku
Þrír Íslendingar voru í eldlínunni í dag í danska fótboltanum, en enginn þeirra komst á blað.

Sandnes fékk tvö mörk á sig í uppbótartíma og féll
Guðmundur Kristjánsson hjálpaði til við að fella annað Íslendingalið úr deildinni.

Jón Guðni og Rúnar Már upp um deild
GIF Sundsvall, lið Jóns Guðna Fjólusonar og Rúnars Más Sigurjónssonar, tryggði sér í dag sæti í sænsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð með markalausu jafntefli gegn Landskrona.

Hólmfríður og Þórunn fá nýjan þjálfara
Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir munu fá nýjan þjálfara hjá Avaldsnes því Arne Møller er hættur sem þjálfari liðsins. Þetta var tilkynnt eftir leik liðsins í dag.

Guðbjörg meistari með Lilleström
Guðbjörg Gunnarsdóttir og liðsfélagar í Lilleström urðu norskir meistarar eftir öruggan 3-0 sigur á Stabæk í úrslitaleik um titilinn.

Hólmfríður lagði upp tvö
Hólmfríður Magnúsdóttir lagði upp tvö mörk í stórsigri Avaldsnes á Kolbotn í lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag, 5-0.

Gunnar Heiðar skoraði fyrir Häcken
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var á skotskónum þegar lið hans Häcken steinlá fyrir Örebro á útivelli í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Þriðja tapið í röð hjá Óla Kristjáns
Það gengur ekki vel þessa dagana hjá Ólafi Kristjánssyni og strákunum hans í Nordsjælland en liðið tapaði 2-0 á móti toppliði Midtjylland í kvöld og hefur ekki fengið eitt einasta stig í síðustu þremur leikjum.

Creed-lagið með Viðari komið út - hægt að kaupa það í iTunes
Markahæsti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta safnar pening fyrir félagið með því að gefa út lag.

Enginn veit hvað er að Eyjólfi
Knattspyrnumaðurinn Eyjólfur Héðinsson hefur ekki átt sjö dagana sæla síðustu tvo ár en miðjumaðurinn úr Breiðholtinu hefur glímt við nárameiðsli þennan tíma og nánast ekkert getað spilað með liðið Midtjylland sem er nú á toppi dönsku deildarinnar.

Hólmbert skoraði fyrir Bröndby
Kom inn á sem varamaður og skoraði er Bröndby komst áfram í bikarnum.

Ögmundur hélt hreinu og Randers komst áfram
Randers er komið áfram í 16-liða úrslit dönsku bikarkeppninnar.

Viðar og Ronaldo í baráttunni um gullskó Evrópu
Viðar Örn Kjartansson og Cristiano Ronaldo eru báðir meðal þriggja hæstu á listanum yfir markahæstu leikmenn Evrópu á tímabilinu 2014-15 en sigurvegarinn hlýtur að launum Gullskó Evrópu.

Þrjú karlalið vildu frá Elísabetu sem þjálfara
Elísabet Gunnarsdóttir er búin að gera nýjan samning við sænska liðið Kristianstad og mun þjálfa liðið næstu þrjú árin eins og hún hefur gert frá árinu 2009. Elísabet segir frá því í viðtali við Morgunblaðið í dag að þrjú karlalið hafi sóst eftir starfskröftum hennar.

Sif ólétt og verður lítið með á árinu 2015
Sif Atladóttir verður ekki með íslenska landsliðinu í fótbolta á næstu mánuðum en miðvörðurinn snjalli á von á sínu fyrsta barni. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun.

Hallgrímur hafði betur eftir vítapsyrnukeppni
SönderjyskE er komið áfram í dönsku bikarkeppninni.

Sjálfsmark felldi lið Ólafs
Mun betri gegn Danmerkumeisturum Álaborgar en töpuðu á sjálfsmarki í uppbótartíma.

Viðar Örn syngur Creed-lag inn á plötu til styrktar Vålerenga
Selfyssingurinn hjálpar til í herferð félagsins að safna pening og fá fólkið til að fjárfesta.

Íslensku leikmennirnir komnir með 70 mörk í Noregi
Pálmi Rafn Pálmason og Sverrir Ingi Ingason voru báðir á skotskónum í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær en Pálmi Rafn skoraði þrennu fyrir Lilleström á móti Start.

Birkir er á förum frá Brann
Áhugi á Birki Má frá bæði Danmörku og Svíþjóð.

Kristinn skoraði í öruggum sigri
Kristinn Steindórsson skoraði þriðja mark Halmstad í 4-0 sigri á Falkenberg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Pálmi með þrennu fyrir Lilleström
Pálmi Rafn Pálmason stal senunni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar hann skoraði þrennu fyrir Lilleström sem lagði Start 4-1.

Theodór Elmar skoraði í sigri Randers
Theodór Elmar Bjarnason skoraði fyrsta mark Randers í 3-0 sigri á OB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Rúnar á leið í erfiðar aðstæður?
Margt bendir til þess að Rúnar Kristinsson fyrrverandi þjálfari KR taki við þjálfun norska knattspyrnuliðsins Lilleström en Rúnar gæti komið inn í mjög erfiðar aðstæður.

Íslensk drottning í Rósagarðinum
Sara Björk Gunnarsdóttir tók við Svíþjóðarbikarnum um helgina sem fyrirliði FC Rosengård en hún hefur þrisvar orðið meistari á fyrstu fjórum árum sínum í atvinnumennskunni.

Norskur knattspyrnumaður fannst látinn
Thomas Andrew Morgan hafði verið saknað frá því á sunnudag.