
Fótbolti á Norðurlöndum

Steinþór og Jón Daði í stuði í sigri Viking
Steinþór Freyr Þorsteinsson skoraði tvö mörk og Jón Daði Böðvarsson eitt þegar Viking vann 3-5 sigur á C-deildarliði Arendal í 3. umferð norsku bikarkeppninnar í kvöld. Jón Daði lagði einnig upp fyrsta mark Viking í leiknum.

Ögmundur samdi við Hammarby til þriggja ára
Landsliðsmarkvörðurinn færir sig um set frá Danmörku til Svíþjóðar.

Hjálmar hélt hreinu hjá toppliðinu
Hjálmar Jónsson hélt sæti sínu í byrjunarliði IFK Gautaborgar sem náði í eitt stig í kvöld.

Flottustu tilþrif Elmars á tímabilinu | Myndband
Landsliðsmaðurinn Theodór Elmar Bjarnason hefur átt góðu gengi að fagna með Randers í dönsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Syngjandi og dansandi þjálfari fékk Hólmfríði næstum til að hætta í fótbolta
Hólmfríður Magnúsdóttir fer frábærlega af stað með liði sínu Avaldsnes. Hana langaði til að hætta í fótbolta í fyrra þegar syngjandi og dansandi þjálfari lét leikmenn liðsins koma inn á völlinn í víkingaskikkju.

Arnór Ingvi eini Íslendingurinn á lista yfir þá bestu 50 í Svíþjóð
Norskur landsliðsmaður hefur borið af í fyrstu tíu umferðum sænsku úrvalsdeildarinnar.

Matthías skoraði í tapi Start
Matthías Vilhjálmsson var á skotskónum fyrir Start gegn Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Matthías skoraði eina mark Start í leiknum.

Haukur Heiðar lagði upp mark í baráttunni um Stokkhólm
Haukur Heiðar Hauksson lagði upp annað mark AIK í 2-2 jafntefli gegn Djurgården í nágrannaslag í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Norrköping á miklu skriði
Arnór Ingvi Traustason var í sigurliði IFK Norrköping sem bar sigurorð af GIF Sundsvall í Íslendingarslag í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Jón Daði skoraði í stórsigri
Jón Daði Böðvarsson skoraði fjórða mark Viking í 4-0 sigri á Álasund í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Rosenborg kom til baka gegn Stabæk og vann 3-2 sigur eftir að hafa lent 2-0 undir.

Ótrúleg innkoma hjá Færeyingnum í sigri FCK
Brandur Olsen reyndist hetja FC Kaupmannahöfn gegn OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en Brandur skoraði eina mark leiksins.

Lilleström með þriðja sigurinn í röð
Lilleström vann sinn þriðja leik í röð þegar þeir unnu öruggan 3-0 sigur á Bodø/Glimt í tíunda umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Randers steig risa skref í átt að Evrópusæti
Theodór Elmar Bjarnason lagði upp síðara mark Randers í 2-0 sigri á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en með sigrinum steig Randers stórt skref í átt að Evrópusæti.

Guðmundur lagði upp mark í fyrsta sigri Nordsjælland í mánuð
Nordsjælland vann sinn fyrsta sigur í heilan mánuð í dönsku úrvalsdeildinni, en Nordsjælland valtaði yfir Hobro, 4-2, í dag.

Annar sigur Örebro í röð
Örebro vann sinn annan leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, en Örebro vann 2-1 sigur á Gefle í dag.

Kjartan Henry með bæði mörk Horsens í jafntefli
Kjartan Henry Finnbogason heldur áfram að skora fyrir AC Horsens í dönsku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Kjartan skoraði bæði mörk Horsens í 2-2 jafntefli gegn Brønshøj.

Helgi Valur og félagar með annan fótinn upp í úrvalsdeild
Helgi Valur Daníelsson spilaði í 75 mínútur fyrir AGF sem gerði 1-1 jafntefli við Skive í dönsku B-deildinni í knattspyrnu.

Jón Daði: Hafnaði einu tilboði og hef ekkert heyrt síðan
Óvíssa ríkir um hversu margir leikmenn hverfa á braut frá Viking frá Stavangri. Indriði Sigurðsson flytur heim eftir tímabilið og óvíssa ríkir um hvað Jón Daði Böðvarsson gerir.

Sara Björk ein af fjórum frá Rosengård inn á topp fimm á markalistanum
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar hennar í Rosengård eru með með fullt hús á toppi sænsku deildarinnar eftir 7-0 sigur á Kristianstad í gær Rosengård-stelpurnar eru líka mjög áberandi á listanum yfir markahæstu konur deildarinnar.

Rosengård valtaði yfir lið Elísabetar
Íslendingarnir í Kristianstad áttu ekki roð í Söru Björk Gunnarsdóttur og félaga í Rosengård í kvöld.

Lið Hjálmars á toppinn
Hjálmar Jónsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson voru í sigurliðum í sænska boltanum í kvöld..

Rúrik skoraði sigurmark FCK
Rúrik Gíslason var hetja FCK í danska fótboltanum í kvöld.

Norðmenn án stærstu stjörnu sinnar á HM í fótbolta
Norska kvennalandsliðið í fótbolta verður án lykilleikmanns í úrslitakeppni HM í Kanada sem hefst í næsta mánuði því Caroline Graham Hansen er meidd.

Indriði á heimleið eftir tímabilið í Noregi
Indriði Sigurðsson flytur aftur heim til Íslands eftir að samningur hans við Viking í Noregi rennur út eftir tímabilið.

Reksturinn gengur verst hjá Íslendingaliðunum
Íslendingaliðin Viking og Start eru verst stöddu félögin í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta þegar kemur að fjármálunum og eru í raun einu félögin í deildinni sem þurfa að grípa strax til aðgerða til að taka til í rekstrinum.

Elmar lék í jafnteflisleik
SönderjyskE nældi sér í mikilvægt stig í botnbaráttu dönsku deildarinnar í kvöld er Randers kom í heimsókn.

Íslendingahersveit Nordsjælland tapaði enn og aftur
Rúnar Alex Rúnarsson lék sinn fyrsta leik fyrir Nordsjælland í dönsku deildinni í kvöld.

Sara hafði betur gegn Glódísi í toppslag
Sara Björk Gunnarsdóttir hafði betur gegn Glódís Perlu Viggósdóttur í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Rosengård vann 2-1 sigur á Eskilstuna.

Björn Bergmann: Er að nálgast mitt besta form
Björn Bergmann Sigurðarson, framherji FCK, líður vel hjá danska félaginu. Íslendingurinn hefur staðið sig vel, en hann er á láni frá Wolves.

Lilleström og Rosenborg með sigra
Íslendingaliðin Lilleström og Rosenborg unnu góða sigra í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.