
Skotvopn

Rannsóknin færð annað tuttugu dögum eftir að nafn Guðjóns kom upp
Tæpar þrjár vikur liðu frá því að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varð kunnugt um tengsl föður ríkislögreglustjóra við ólöglega byssu, sem fannst við húsleit sumarið 2018, þar til málinu var vísað til annars lögregluembættis.

Ekkert bendi til að föður Sigríðar hafi verið hlíft af lögreglunni
Dómsmálaráðherra segir ekkert benda til að föður ríkislögreglustjóra hafi verið hlíft af lögreglu eftir að hann var sakaður um að hafa selt ólögleg skotvopn. Samkvæmt dómsgögnum voru vopnin hvorki skoðuð né upprunavottorð afhent lögreglu þegar hún skráði vopnin á sínum tíma.

Tugir óskráðra vopna hafi fundist á heimili föður ríkislögreglustjóra
Á fjórða tug óskráðra skotvopna eru sögð hafa fundist á heimili Guðjóns Valdimarssonar, föður ríkislögreglustjóra, í september síðastliðnum. Vopnin eru sögð hafa fundist við húsleit í tengslum við meinta skipulagningu hryðjuverka og gat Guðjón ekki gert grein fyrir vopnunum.

Mál vopnasalans sýni að lögreglu sé ekki treystandi
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður telur fráleitt að veita lögreglu auknar forvirkar rannsóknarheimildir í ljósi máls vopnasalans, föður Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra.

vopnasalinn.net
Í fréttum er þetta helst: „Faðir ríkislögreglustjóra sagður hafa selt ólöglega riffla” (mbl.is), „Faðir ríkislögreglustjóra hafi selt ólögleg vopn” (fréttablaðið.is), Faðir ríkislögreglustjóra smíðaði og seldi ólöglega riffla” (dv.is), „Faðir ríkislögreglustjóra sagður hafa selt ólöglega hálfsjálfvirka riffla” (vísir.is), Sagan af vélbyssusöfnurunum og föður ríkislögreglustjóra (kveikur/ruv.is), „Pabbi Vopnasali” (eiríkurjónsson.is).

„Trúverðuleiki embættisins með hana í stafni er enginn“
Hæstaréttarlögmaður gagnrýnir harðlega vinnubrögð lögreglu og ákæruvalds í tengslum við meint vopnalagabrot föður ríkislögreglustjóra. Hann telur að Sigríður Björk Guðjónsdóttir hljóti að íhuga stöðu sína vegna málsins.

„Það vildi enginn koma nálægt þessu máli hjá lögreglunni“
Byssusmiður, sem segist hafa breytt tveimur ólöglegum og hálfsjálfvirkum rifflum sem faðir ríkislögreglustjóra seldi, segir engan innan lögreglunnar hafa viljað snerta á málinu. Engin svör hafa fengið hjá lögreglu vegna málsins í dag.

Getur ekki upplýst um stöðu föður ríkislögreglustjóra í hryðjuverkarannsókn
Héraðssaksóknari segist ekki geta gefið upp hvaða stöðu faðir ríkislögreglustjóra hefur í rannsókn embættisins á meintri tilraun til hryðjuverka. Ríkislögreglustjóri þurfti að segja sig frá rannsókninni eftir að nafn föður hans var nefnt við skýrslutöku sakborninga.

Faðir ríkislögreglustjóra sagður hafa selt ólöglega hálfsjálfvirka riffla
Guðjón Valdimarsson, faðir ríkislögreglustjóra, er sagður hafa smíðað og selt ólöglega hálfsjálfvirka riffla. Heimildarmenn segja að húsleit hafi verið gerð heima hjá honum nýverið í kjölfar rannsóknar á meintum hryðjuverkum.

Ungmenni með loftbyssu veittust að einstaklingi
Tvö ungmenni voru í gærkvöldi kærð fyrir vopnalagabrot. Þau höfðu verið að leika sér með loftbyssu og veittu sér að öðrum einstakling. Engin meiðsli urðu á fólki en barnavernd og foreldrum var tilkynnt um atvikið.

Á að bíta barn sem bítur?
Fréttaflutningur af alvarlegum ofbeldisbrotum á Íslandi hefur verið svo hávær að undanförnu að fólk er farið að spyrja hvort ofbeldisbrotum sé að fjölga. Svarið við þeirri spurningu er því miður einfalt: já.

Beitti seljanda loftriffils rafvopni
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi tvo vegna brota á vopnalögum þar sem maður hafði ætlað að selja öðrum loftriffil. Kaupandinn hafði þar reynt að hafa af riffillinn af seljandanum án þess að greiða fyrir og beitt viðkomandi rafvopni (tazer).

Stóralvarlegt ef mikið vopnabúr fylgi öfgafullum skoðunum
Það er eitt að hafa skoðanir en það er stóralvarlegt og getur leitt af sér mikinn skaða ef því fylgir að búið sé að safna miklu vopnabúri, segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, aðspurð um hvort að hún hafi áhyggjur af því að öfgafullar skoðanir og viðhorf hafi hreiðrað um sig hér á landi.

Eru sagðir hafa sýnt árshátíð lögreglumanna sérstakan áhuga
Árásir sem lögregla telur sig hafa komið í veg fyrir þegar fjórir voru handteknir í umfangsmiklum aðgerðum á þriðjudag, voru taldar yfirvofandi á næstu dögum.

Norðurvígi segist ekki tengjast handtökunum
Nýnasistasamtökin Norðurvígi sem einnig eru þekkt sem Norræna mótstöðuhreyfingin hefur neitað því að tengjast öfgahópum og það sé ekki fólk innan samtakanna sem ætli sér að fremja hryðjuverk.

„Við höfum meira og minna verið laus við þessar hreyfingar“
Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur segist brugðið eftir fréttir af því að lögreglan hafi lagt hald á mikið magn vopna og byssuskota í gær og mögulega komið í veg fyrir hryðjuverkaárás. Enn sé þó tiltölulega lítið vitað um málið og best sé að halda ró sinni.

„Getum alveg átt von á svona atburðum eins og nágrannaþjóðir okkar“
Tveir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri eru í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á Íslandi. Að sögn lögreglu má ætla að áformuð hryðjuverk hafi jafnvel beinst gegn Alþingi, stjórnmálamönnum eða lögreglunni. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir atburðinn gríðarlega alvarlegan.

Lögreglumenn slegnir: „Við viljum öll komast lifandi heim úr vinnunni“
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld, að lögreglumenn væru slegnir yfir fregnum síðustu daga. Þeir væru slegnir yfir því að þurfa að óttast um líf sín í vinnunni.

Ætla ekki að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að ekki standi til að hækka hættumat vegna hryðjuverkaógnar í tengslum við handtökurnar í gær. Aðgerðir sérsveitar ríkislögreglustjóra hafi verið vel heppnaðar og að gripið hafi verið inn í, áður en eitthvað gerðist.

Mögulegt að árásin hefði beinst gegn Alþingi eða lögreglu
Mennirnir fjórir sem grunaðir eru um að hafa haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi voru allir íslenskir karlmenn á þrítugsaldri en refsing fyrir hryðjuverk er allt að lífstíðarfangelsi. Að sögn lögreglu má ætla að möguleg árás hefði beinst gegn Alþingi eða jafnvel lögreglu. Tengsl við erlend öfgasamtök eru til skoðunar.

Grunaðir um að undirbúa hryðjuverk
Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Lögreglu grunar að mennirnir hafi haft í hyggju að undirbúa hryðjuverk hér á landi sem áttu að beinast gegn borgurum og stofnunum ríkisins.

Stefndu að því í gær að taka skýrslu af Kára
Kári Kárason, maðurinn sem var skotinn á Blönduósi og hefur legið þungt haldinn á Landspítalanum er kominn til meðvitundar. Er líðan hans þannig að í gær var stefnt að því að taka af honum skýrslu um atburðarásina morguninn 21. ágúst síðastliðinn.

Vill herða löggjöf um skotvopn og hefur áhyggjur af fjölgun hnífamála
Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að herða skotvopnalöggjöf hér á landi. Hann hefur jafnframt áhyggjur af fjölgun mála þar sem hnífar eru notaðir. Verið er að skoða hvort endurskoða þurfi vopnaburð lögreglu.

Notaðist við afsagaða haglabyssu
Upplýsingar liggja ekki fyrir um það hver það var sem lét lögreglu vita af skotárásinni á Blönduósi á sunnudag en lögregla var komin á vettvang um 15 til 20 mínútum eftir að tilkynning barst.

Þeir tuttugu sem eiga flest skotvopn eiga að meðaltali 103 vopn hver
Sjö hafa látist eftir að hafa verið skotin á Íslandi frá árinu 1990. Þar af voru fimm karlmenn og tvær konur. Fram kemur í tölum frá Ríkislögreglustjóra að þeir tuttugu sem eiga flest skotvopn hér á landi eigi samanlagt 2.052 vopn.

Fólk með geðrænan vanda hræðist fordóma vegna umræðunnar
Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir fólk með geðrænan vanda verða hrætt þegar mál á borð við Blönduósmálið komi upp. Engar rannsóknir sýni tengsl milli geðræns vanda og þess að beita ofbeldi.

Áhyggjur af andlegri heilsu mannsins rötuðu ekki á borð lögreglustjóra
Engin formleg tilkynning um áhyggjur forsvarsmanna skotfélagsins Markviss um andlega heilsu mannsins sem talinn er hafa skotið einn til bana og sært annan á Blönduósi um helgina barst á borð lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Þess í stað var um óformlegar samræður að ræða og ræddi lögreglumaður við árásarmanninn.

„Við verðum að gera eitthvað, við eigum engan kost í stöðunni“
Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra segir löngu orðið tímabært að grípa inn í þá þróun sem eigi sér stað með skotvopn hér á landi. Tæplega níutíu þúsund skotvopn eru skráð hér á landi. Konu var banað og eiginmaður hennar særður í skotárás á Blönduósi aðfaranótt sunnudags.

Skotfélagið tilkynnti manninn til lögreglu í nóvember
Skotfélagið Markviss á Blönduósi tilkynnti árásarmanninn í manndrápsmáli á Blönduósi í gær til lögreglu í nóvember á síðasta ári. Maðurinn hafði áður keppt fyrir hönd félagsins og gegnt trúnaðarstörfum þar.

Svipting skotvopnaleyfis var í ferli
Lögregla lagði hald á skotvopn í eigu árásarmannsins, sem myrti konu í morgun og særði eiginmann hennar alvarlega í dag, fyrir nokkrum vikum. Að sögn lögreglustjórans á Norðurlandi vestra var í ferli að svipta manninn skotvopnaleyfi til bráðabirgða.