Tjaldsvæði
1 2 ›
Lokað vegna linnulausrar rigningar Tjaldsvæðinu í Reykholti hefur verið lokað vegna mikilla rigninga. Framkvæmdastjóri segir þetta gert til að verja grasið og jarðveginn en nær linnulaus væta hefur verið þar að undanförnu. Innlent 7.8.2024 12:47
Afstaða borgarstjóra „blaut tuska í andlit margra“ Oddviti Flokks fólksins í borginni kveðst sleginn yfir ummælum borgarstjóra um stöðu fólks sem býr í hjólhýsum í borginni. Fólkið hafi fengið fyrirheit um úrlausn sinna mála, sem nú virðist úr sögunni. Innlent 20.7.2024 13:01
Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Ásta Halla Ólafsdóttir sér um tjaldstæðið á Hvolsvelli og þar getur gengið á ýmsu. Þannig lenti hún í einum í gær sem ekki er hægt að kalla annað en tjaldstæðadólg. Hann neitar að borga eftir skammir fyrir að kveikja í einnota grilli á túni og hótaði að bera út kjaftasögur um tjaldstæðið á netinu. Innlent 5.7.2024 11:55
„Öll aðstaða er til fyrirmyndar“ Rekstraraðili tjaldsvæðisins í Þrastaskógi segir að svæðið sé búið að vera lokað síðan í september á síðasta ári. Hann segir heilbrigðiseftirlitið hafa tekið svæðið út í vikunni og að það muni opna um mánaðamótin. Innlent 21.6.2024 21:15
Starfsleyfi afturkallað vegna óviðunandi aðbúnaðs og umgengni Heilsbrigðisnefnd Suðurlands hefur fellt úr gildi starfsleyfi á tjaldsvæðinu í Þrastaskógi í Grímsnesi. Nefndin segir aðbúnað og umgengni með öllu óviðeigandi og að gistiþjónusta sé rekin án allra leyfa. Innlent 21.6.2024 20:01
Ferðamenn elska íslenska veðrið þó allt sé á floti Þeim var brugðið ferðamönnunum á tjaldsvæðinu á Selfossi þegar þeir vöknuð í morgun og tjaldsvæðið var allt á floti eftir nóttina og slydda á staðnum. Ferðamennirnir höfðu þó lúmskt gaman af veðrinu og segja það skapa skemmtilega minningar frá Íslandsheimsókninni. Innlent 12.10.2023 20:30
Parka Camping auðveldar lífið í útilegunni Parka Camping appið virkar bæði sem sjálfsafgreiðslu- og forbókunarkerfi fyrir ferðalanga sem ferðast um landið með tjald, húsbíl, tjaldvagn eða fellihýsi. Samstarf 3.7.2023 11:22
Orkumótið hófst með hvelli þegar tjöld fuku og stangir brotnuðu Mikið rok lék skipuleggjendur og þátttakendur Orkumóts ÍBV í Vestmannaeyjum grátt í gær þegar tjöld tókust á loft og tjaldstangir brotnuðu á tjaldstæðinu í Herjólfsdal. Eyjamenn ruku til að veita gestum aðstoð og var einhverjum komið í skjól en vel gekk að bjarga öllu, að sögn mótsstjóra. Innlent 29.6.2023 11:23
Nýr vefur sem sýnir bestu tjaldsvæðin eftir veðri Veðursíðan Blika.is býður upp á tjaldvefinn Tjald en þar má sjá nákvæmar upplýsingar um öll tjaldsvæði landsins. Ekki nóg með það heldur er hægt að flokka tjaldsvæðin eftir því hvar besta veðrið er hverju sinni. Innlent 12.6.2023 17:30
Tjaldsvæðinu í Mosó lokað um óákveðinn tíma Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur ákveðið að loka tjaldsvæði Mosfellsbæjar á Varmárhóli um óákveðinn tíma. Innlent 16.2.2023 11:05
Ekki á dagskrá að sjá hjól- og fellihýsaeigendum fyrir geymsluplássi á sumrin Ekki er á dagskrá Reykjavíkurborgar að útvega eigendum hjól- og fellihýsa sérstakt geymslupláss fyrir farartækin yfir sumartímann. Innlent 22.9.2022 14:25
Ekki af baki dottin þótt meirihlutinn hafi rifið upp ræturnar Hópur hjólhýsaeigenda við hjólhýsabyggðina við Laugarvatn virðist ekki af baki dottinn þrátt fyrir kröfu sveitarfélagsins um að hjólhýsi og tengd mannvirki verði fjarlægð. Hópurinn hefur fengið lögmann í málið og búið er að senda inn stjórnsýslukæru til innviðaráðuneytisins. Um sextíu hýsi af um tvöhundruð eru eftir. Innlent 31.8.2022 10:35
Bréfið að fara hryllilega í alla Í dag fengu íbúar hjólhýsasvæðisins á Laugarvatni bréf frá sveitarstjórn þar sem þeim var sagt að þeir þyrftu að yfirgefa húsin innan tveggja vikna. Formaður félags hjólhýsaeigenda á Laugarvatni segir bréfið fara hryllilega í alla íbúa en sveitarstjóri í Bláskógabyggð segir að fólki hafi átt að vera þetta ljóst. Innlent 18.8.2022 17:00
Lífshættulegt að slökkva ekki á búnaði í útilegum Öryggisfræðingur segir nauðsynlegt að fólk hugi vel að búnaði í ferðahýsum fyrir ferðalög. Lífshættulegt geti verið að sofa með kveikt á gas-, olíu- eða rafmagnsbúnaði. Innlent 6.8.2022 22:55
„Ég hugsaði, ég er bara að fara að deyja núna“ Aðeins sekúndum mátti muna að heil fjölskylda léti lífið vegna koltvísýringseitrunar í fellihýsi á dögunum. Þau segjast þakklát fyrir að ekki fór verr og að tveggja ára sonur þeirra eigi nú allt lífið fram undan. Innlent 5.8.2022 19:25
Harmoníkkuhátíð á Borg í Grímsnesi alla helgina Mikið stuð og stemming er á Borg í Grímsnesi um helgina þar sem harmonikkusnillingar landsins eru komnir saman til að skemmta sér og öðrum. Harmonikkuböll eru haldin á kvöldin í félagsheimilinu og þess á milli er spilað saman á tjaldsvæðinu. Einnig er spilað á sög á svæðinu og á saxófóna. Innlent 30.7.2022 23:02
„Maður grætur á kvöldin þegar maður fer að sofa“ Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur ákveðið að hjólhýsabyggðin við Laugarvatn fái ekki að vera áfram. Eigendur hýsanna eru þegar byrjaðir að pakka saman og rífa niður og tilfinningarnar eru miklar. Innlent 22.7.2022 22:36
Allir og amma þeirra í góða veðrinu í Stykkishólmi Það eru allir og amma þeirra í Stykkishólmi í kvöld samkvæmt einum tjaldgesta tjaldsvæðisins þar í bæ. Það er glampandi sól á öllu Snæfellsnesinu og á að vera það alla helgina. Innlent 22.7.2022 20:07
Óvissa um hjólhýsasvæðið í Laugardal sé kvíðavaldandi Tólf manns hafa kosið að búa í hjólhýsabyggðinni í Laugardal. Mikil óvissa ríkir um framtíð svæðisins þar sem einungis eru gerðir skammtímaleigusamningar við íbúa og til stendur að loka svæðinu. Borgarfulltrúi segir óvissuna valda íbúum kvíða. Innlent 21.7.2022 13:10
Eins og Íslendingar hafi farið til sólarlanda þetta sumarið Mun færri Íslendingar hafa sést á tjaldsvæðum Austfjarða í ár en í fyrra og þar spyrja menn sig hvort sólarlandafrí hafi orðið ofan á hjá landsmönnum þetta sumarið. Tímabil erlendra ferðamanna virðist hins vegar vera að lengjast. Innlent 19.7.2022 09:30
Ákvörðun um að loka hjólhýsabyggð á Laugarvatni endanleg Hjólhýsaeigendur á Laugarvatni verða að vera búnir að koma öllum hjólhýsum, pöllum og öðrum fylgihlutum í burtu fyrir næstu áramót samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar. Formaður félags hjólhýsaeigenda á Laugarvatni ætlar ekki að gefast upp en sveitarstjóri Bláskógabyggðar segir ákvörðunina endanlega. Innlent 14.7.2022 16:06
Erfið nótt hjá ferðamönnum í Laugardalnum Vonskuveður gekk yfir landið í dag og útlit fyrir áframhaldandi lægðagang næstu daga. Hundruð ferðamanna sátu föst í skálum á hálendinu og hér á höfuðborgarsvæðinu var allt á floti á tjaldstæðinu í Laugardal eftir nóttina. Innlent 7.7.2022 21:00
Tjaldsvæði vinsæl víða um land Ferðasumarið virðist vera að hefjast og af því tilefni ákvað fréttastofa að taka saman og staðfesta verð og bókunarferli á tjaldsvæðum víða um land. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um tjaldsvæðin á tjalda.is. Neytendur 1.7.2022 15:28
Lok, lok og læs á hjólhýsasvæðið á Laugarvatni Hjólhýsaeigendur á Laugarvatni verða að vera búnir að koma öllum sínum hýsum, pöllum og öðru í kringum hjólhýsin í burtu fyrir næstu áramót samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar. „Við erum sár og fólk er niðurbrotið“, segir formaður hjólhýsaeigenda á svæðinu. Innlent 30.6.2022 20:05
„Gríðarlegt andlegt og félagslegt sjokk og fjárhagslegt tjón“ Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnaði í dag tilboði Samhjóla, félags hjólhýsaeigenda á Laugarvatni, um að hjólhýsabyggðin fái að vera áfram gegn því að félagið sinni nauðsynlegum framkvæmdum. Formaður félagsins segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði og að sveitarfélagið hefði getað farið mannlegri leið að niðurstöðunni en hún gerði. Innlent 29.6.2022 20:47
Salan eykst þó Íslendingar flykkist til útlanda Sala á hjólhýsum er í hæstu hæðum þetta sumarið, þrátt fyrir að frelsið til utanlandsferða sé mun meira en síðustu tvö sumur. Sölumaður telur að kórónuveirufaraldurinn hafi valdið því að fólk hafi uppgötvað landið upp á nýtt. Aukin ferðalög innanlands séu komin til að vera. Viðskipti innlent 26.6.2022 23:19
Blíðviðri og ekkert lúsmý Sólin kemur til með að leika við Austfirðinga næstu dagana ef veðurspár ganga eftir. Blíðu á Austurlandi fylgja jafnan margir gestir á tjaldsvæðum á svæðinu og er því undirbúningur á fullu á tjaldsvæðunum í Atlavík og Höfðavík. Innlent 13.6.2022 10:44
Komu að tjaldsvæðinu lokuðu og enduðu sem tjaldverðir Tveir ungir karlmenn höfðu ætlað sér að búa í tjaldi á Eskifirði í sumar á meðan þeir ynnu í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Skömmu eftir að þeir höfðu komið sér vel fyrir á tjaldsvæði kom í ljós að loka átti tjaldsvæðinu vegna skorts á tjaldvörðum. Þeir voru ekki lengi að taka starfið einfaldlega að sér sjálfir. Lífið 12.6.2022 11:00
Parka Camping bókunarvélin bjargar buguðum ferðafjölskyldum „Það gerir ferðalagið svo miklu ánægjulegra og þægilegra að geta kíkt í símann að morgni og séð hvort það er laust pláss þar sem besta veðrið er í stað þess að komast að því að allt er fullt þegar við erum mætt á staðinn með bugaða og grenjandi krakka í aftursætinu,“ segir Arna Haraldsdóttir markaðsstjóri Parka en á vefsíðu Parka er hægt að bóka pláss á tjaldstæðum um allt land á einfaldan hátt. Samstarf 2.6.2022 11:51
Nýir eigendur Galtalækjar taka því rólega en stefna á deiliskipulagningu Vinjar ehf., félag í eigu nokkurra fjárfesta, hefur gengið frá kaupum á Galtalækjarskógi og hluta af Merkihvolslandi, sem liggur austur af skóginum. Stjórnarformaður félagsins segir stefnuna fyrst og fremst vera að koma svæðinu í sómasamlegt ástand. Sem stendur eru engin frekari áform um nýtingu landsins. Viðskipti innlent 2.6.2022 11:09