
Óbarinn, með smjörklípu eða tabasco sósu: Alls konar harðfiskur fyrir útileguna
Farið er að síga á seinnihluta júnímánaðar og fer nú hver að verða síðastur hér á landi að fara í langþráð sumarfrí. Í hönd fara gönguferðir, útilegur, ættarmót og tjaldferðalög þar sem vinsælt er að hafa harðfiskbita um hönd. Harðfiskur fæst af ýmsum stærðum og gerðum, og hver hefur sína skoðun á því hvernig best er að neyta hans.