Sambandsdeild Evrópu

Tottenham með bakið upp við vegg fyrir lokaumferðina
Slóvenska liðið NS Mura vann óvæntan og dramatískan 2-1 sigur gegn Tottenham Hotspur í næst síðustu umferð G-riðils Sambandsdeildar Evrópu þar sem að seinasta snerting leiksins réði úrslitum.

Íslendingalið FCK fær íslenska dómara í Sambandsdeildinni
Dómarinn Helgi Mikael Jónasson verður með flautuna á fimmtudagskvöld þegar Íslendingalið FC Köbenhavn heimsækir Lincoln Red Imps til Gíbraltar í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Conte: Þetta var klikkaður leikur
Antonio Conte, nýráðinn knattspyrnustjóri Tottenham, var hálf ringlaður eftir 3-2 sigur liðsins gegn Vitesse í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Hann segir að liðið þurfi að bæta sig á mörgum sviðum.

Alfons lagði upp er Bodø/Glimt hélt áfram að stríða Roma
Alfons Sampsted lagði upp seinna mark norksa liðsins Bodø/Glimt er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn José Mourinho og lærisveinum hans í Roma í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Albert skoraði í sigri í Sambandsdeildinni
Alls er nú tíu leikjum lokið af þeim 16 sem fara fram í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Albert Guðmundsson skoraði fyrra mark AZ Alkmaar er liðið vann 2-0 sigur gegn CFR Cluj í D-riðli.

„Vorum ellefu leikmenn sem unnum eins saman sem lið en þeir ellefu leikmenn sem unnu eins og einstaklingar“
Alfons Sampsted segir að leikmenn Bodø/Glimt, hafi haft trú á sigri gegn Roma í Sambandsdeild Evrópu í fyrradag. En ekki að þeir myndu vinna 6-1.

Skotið á Mourinho á forsíðu VG: „Hinir sérstöku“
Stórsigur Bodø/Glimt á Roma í Sambandsdeild Evrópu vakti verðskuldaða athygli og rataði meðal annars á forsíðu íþróttablaðs Verdens Gang. Þar var skotið smekklega á José Mourinho, knattspyrnustjóra Roma.

Mourinho eftir stórtapið í Noregi: Betra liðið með betri leikmenn vann
José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, sendi leikmönnum sínum tóninn eftir stórtapið fyrir Bodø/Glimt, 6-1, í Sambandsdeild Evrópu í gær. Hann sagði að lið Bodø/Glimt í leiknum í gær hefði einfaldlega verið betra en það sem hann tefldi fram.

Stærsta tap Mourinho á ferlinum á köldu kvöldi í Noregi
José Mourinho, knattpyrnustjóri Roma, mátti þola sitt stærsta tap á ferlinum er liðið heimsótti Alfons Sampsted og félaga í Bodø/Glimt í Sambandsdeild Evrópu í gær. Alfons lagði upp þriðja mark heimaliðsins, en lokatölur urðu 6-1.

Albert hafði betur í Íslendingaslag Sambandsdeildarinnar
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar er liðið vann 1-0 sigur gegn Rúnari Má Sigurjónssyni og félögum hans í CFR Cluj í Sambandsdeild Evrópu.

Tottenham í slæmum málum í Sambandsdeildinni
Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur heimsótti hollenska liðið Vitesse í þriðju umferð Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Tottenham situr nú í þriðja sæti G-riðils eftir 1-0 tap.

Alfons lagði upp er Bodø/Glimt burstaði Roma | Elías Rafn og félagar björguðu stigi gegn toppliðinu
Alfons Sampsted lagði upp þriðja mark Bodø/Glimt er liðið vann 6-1 sigur gegn Roma í Sambandsdeild Evrópu og Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í marki Midtjylland gerði 1-1 jafntefli við serbneska liðið Rauðu Stjörnuna í Evrópudeildinni.

KR-ingar vonast eftir tugmilljóna rúsínu: „Á mjög erfitt með að halda með öðrum“
„Við getum sjálfum okkur um kennt um stöðuna en það gæti verið rúsína [í pylsuendanum],“ segir Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR. Mikið er í húfi fyrir KR-inga á morgun þegar Víkingur og ÍA mætast í úrslitaleik Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Tíu árum síðar skoraði annar Guðmundsson fyrir AZ á móti Jablonec
AZ Alkmaar rifjaði upp tíu ára mark eins Guðmundssonar fyrir Evrópuleik í gær þar sem annar Guðmundsson skoraði sigurmarkið

Kane með þrennu í stórsigri Tottenham
Illa hefur gengið hjá Tottenham að undanförnu og liðið þurti því nauðsynlega á sigri að halda gegn slóvenska liðinu Mura. Tvö mörk á fyrstu átta mínútum leiksins lögðu grunninn að 4-1 sigri Lundúnaliðsins.

Albert tryggði AZ Alkmaar sigur í Sambandsdeildinni
Albert Guðmundsson og félagar hans eru á toppi D-riðils í Sambandsdeild Evrópu eftir 1-0 sigur gegn Jablonec. Albert skoraði eina mark leiksins.

Pellegrini fyrsti leikmaðurinn til að skora í öllum Evrópukeppnunum
Ítalski knattspyrnumaðurinn Lorenzo Pellegrini varð í gær fyrsti leikmaðurinn til að skora í öllum þrem Evrópukeppnunum.

Enn lengist meiðslalisti Tottenham
Nuno Espirito Santo, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur, segir að félagið hafi verið hræðilega óheppið með meisli að undanförnu. Kantmennirnir Lucas Moura og Steven Bergwijn höltruðu báðir af velli þegar að liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Rennes í Sambandsdeildinni í kvöld.

Daninn bjargaði stigi fyrir Tottenham í Sambandsdeildinni
Tottenham heimsótti franska liðið Rennes í fyrsta leiknum sínum í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar en hún er ný keppni hjá Knattspyrnusambandi Evrópu. Lokatölur 2-2, en það var danski miðjumaðurinn Pierre-Emile Højbjerg sem bjargaði stigi fyrir Lundúnaliðið.

Ensku liðin þurfa ekki að spila á hlutlausum velli í keppnum á vegum UEFA
Ensku liðin sem taka þátt í Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildinni og nýstofnaðri Sambandsdeild Evrópu þurfa ekki að spila leiki sína á hlutlausum velli, þrátt fyrir að andstæðingar þeirra komi frá landi á rauðum lista bresku ríkisstjórnarinnar.

Kennir „hræðilegri skammsýni“ bæjaryfirvalda um vanda Blika
„Því miður er það hræðileg skammsýni bæjarfulltrúa í bæjarráði Kópavogs sem veldur því að Kópavogsvöllur stenst ekki kröfur UEFA.“ Þetta segir Pétur Hrafn Sigurðsson í grein þar sem hann gagnrýnir bæjaryfirvöld í Kópavogi vegna aðstöðuleysis meistaraflokka Breiðabliks í Evrópukeppnum í fótbolta.

Framkvæmdastjóri Víkings: Brekka framundan og við þurfum að girða okkur í brók
Þrátt fyrir frábærara frammistöðu Breiðabliks á Evrópumótunum í knattspyrnu á þessari leiktíð er ljóst að Pepsi Max deild karla í fótbolta fær aðeins þrjú sæti í Evrópu næstu tvö árin, ekki fjögur eins og vonast var til.

Sambandsdeild Evrópu: Alfons fer til Rómar, Íslendingaslagir í D og F-riðli
Búið er að draga í riðlakeppni Sambandsdeild Evrópu þar sem Íslendingar eiga fjóra fulltrúa. Um er að ræða þá Alfons Sampsted, Albert Guðmundsson, Rúnar Má Sigurjónsson og Sverri Inga Ingason. Þá eru Tottenham Hotspur einnig í keppninni.

Harry Kane skoraði tvö og Tottenham fer í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar
Enska knattspyrnufélagið Tottenham Hotspur tryggði sæti sitt í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar með sannfærandi 3-0 sigri gegn portúgalska liðinu Pacos de Ferreira. Þeir síðarnefndu unnu fyrri leikinn 1-0 og samanlögð niðurstaða því 3-1 sigur Tottenham.

Jón Guðni skoraði tvö en Hammarby er úr leik eftir vítaspyrnukeppni
Jón Guðni Fjóluson og félagar hans í sænska liðinu Hammarby tóku á móti svissneska liðinu Basel í seinni leik liðanna um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu. Eftir 3-1 tap í fyrri leiknum tryggði Jón Guðni Hammarby framlengingu með tveimur mörkum, en liðið tapaði 4-3 í vítaspyrnukeppni.

Alfons og félagar í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar eftir nauman sigur
Alfons Sampsted og félagar hans í norska liðinu Bodø/Glimt verða í pottinum þegar dregið verður í riðla Sambandsdeildar Evrópu á morgun.

Þjálfari Tottenham segist ekki sjá eftir liðsvalinu þrátt fyrir óvænt tap í Sambandsdeildinni
Nuno Espirito Santo, þjálfari Tottenham Hotspur, gerði ellefu breytingar á byrjunarliði sínu frá sigrinum gegn Englandsmeisturum Manchester City seinasta sunnudag þegar að liðið tapaði óvænt 1-0 gegn Pacos De Ferreira í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Tap hjá Tottenham í fyrsta leik Sambandsdeildarinnar
Enska knattspyrnuliðið Tottenham Hotspur heimsótti Pacos de Ferreira frá Portúgal í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Heimamenn höfðu betur 1-0, og Lundúnaliðið hefur því verk að vinna í seinni leik liðanna að viku liðinni.

Hólmar Örn og félagar þurfa sigur á heimavelli
Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar hans í norska liðinu Rosenborg þurfa á sigri að halda þegar að liðið tekur á móti franska liðinu Rennes í Sambandsdeild Evrópu eftir 2-0 tap í kvöld.

Jón Guðni og félagar með bakið upp við vegg fyrir seinni leikinn
Jón Guðni Fjóluson og félagar hans í sænska liðinu Hammarby heimsóttu svissneska liðið Basel í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Tvö mörk heimamanna á lokamínútunum tryggðu þeim 3-1 sigur og Hammarby hefur því verk að vinna í seinni leik liðanna.