
Sambandsdeild Evrópu

Umfjöllun: Zorya Luhansk - Breiðablik 4-0 | Martraðaendir á Evrópuævintýrinu
Breiðablik tapaði síðasta leik sínum í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar 4-0 gegn Zorya Luhansk. Þar með lauk Evrópuævintýri þeirra þetta tímabilið en Breiðablik varð fyrsta íslenska liðið til að komast alla leið í riðlakeppnina. Þar töpuðu þeir öllum sex leikjunum með –13 markatölu.

Leverkusen áfram með fullt hús stiga
Ótrúlegt gengi Bayer Leverkusen heldur áfram en liðið vann 3-0 sigur á Molde í Evrópudeildinni og flýgur áfram með fullt hús stiga. Þá hefur liðið ekki enn tapað leik heima fyrir.

Getur náð því að vera í sólarhring inn á vellinum í Evrópuleikjum í ár
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, er eini leikmaður Blikaliðsins sem hefur spilað alla fimmtán Evrópuleiki liðsins í ár frá upphafi til enda.

Síðasti séns á stórum jólabónus
Karlalið Breiðabliks spilar sinn síðasta leik á löngu keppnistímabili í kvöld, þegar lokaumferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta fer fram. Félagið gæti tryggt sér 75 milljónir króna.

Kristian Nökkvi lagði upp í súru tapi
Ajax á enga möguleika á að komast áfram í Evrópudeildinni eftir 4-3 tap gegn Marseille í kvöld. Kristian Nökkvi Hlynsson lét til sín taka eftir að koma inn af bekknum.

Leikur stöðvaður því snjóboltum rigndi yfir markvörð gestanna
Stöðva þurfti leik HJK og Aberdeen í Sambandsdeild Evrópu þar sem stuðningsfólk heimamanna gat ekki hætt að kasta snjóboltum í markvörð Skotanna.

Robbie Keane rauk úr viðtali eftir leikinn gegn Breiðablik
Maccabi Tel Aviv sótti 2-1 sigur gegn Breiðablik í 5. umferð riðlakeppni Sambands-deildarinnar. Írska knattspyrnugoðsögnin Robbie Keane þjálfar liðið og gaf sig til tals við undirritaðan strax að leik loknum en rauk út þegar talið barst að ísraelska fánanum sem leikmaður liðsins flaggaði við fögnuð opnunarmarksins.

„Vorum betra liðið á vellinum í 90 mínútur“
Breiðablik tapaði leik sínum gegn Maccabi Tel Aviv á Kópavogsvelli í 5. umferð riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Þeir grænklæddu voru lengst af með yfirhöndina í leiknum en tókst aðeins að skora eitt mark og klaufaleg mistök leiddu til tveggja marka hjá gestunum sem dugði þeim til 1-2 sigurs.

KSÍ vill að ríkið taki þátt í að greiða fyrir pylsuna
Knattspyrnusamband Íslands hefur formlega óskað eftir aðkomu íslenska ríkisins að fjármögnun á leigu sambandsins á hitapylsunni svokölluðu sem notuð hefur verið til að gera Laugardalsvöll, þjóðarleikvang Íslendinga, leikfæran fyrir leikina sem fram hafa farið á vellinum núna undanfarnar vikur.

Sjáðu mörkin á Kópavogsvelli
Breiðablik laut í lægra haldi fyrir Maccabi Tel Aviv, 1-2, þegar liðin áttust við í Sambandsdeild Evrópu á Kópavogsvelli í dag.

Markaskorarinn ögraði með ísraelska fánanum
Dan Biton, leikmaður Maccabi Tel Aviv, fagnaði marki sínu gegn Breiðabliki í Sambandsdeild Evrópu á Kópavogsvelli með ísraelska fánann.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Maccabi 1-2 | Hársbreidd frá fyrsta stiginu
Breiðablik komst hársbreidd frá sínu fyrsta stigi í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar eftir stórfína frammistöðu á Kópavogsvelli, en tapaði leiknum á endanum 1-2 gegn Maccabi Tel Aviv.

Gleðitíðindi að spila á Kópavogsvelli þar sem Blikar „þekkja hvert gervigras“
Höskuldur Gunnlaugsson fagnar því að Blikar fá að spila leikinn á móti ísraelska félaginu Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu á þeirra eigin heimavelli í riðlakeppninni en ekki í Laugardalnum. Það kom þó ekki af góðu því færa þurfti leikinn af Laugardalsvellinum vegna veðuraðstæðna.

„Ég er ráðinn til að skipuleggja liðið og hafa klárt plan“
Blikar mæta Macabbi Tel Aviv í Sambandsdeildinni á morgun. Leikurinn hefur verið færður af Laugardalsvelli yfir á Kópavogsvöll.

Þriggja vikna vinna í vaskinn
Það er enn ekki ljóst hver mun taka á sig að kostnaðinn við undirbúning Laugardalsvallar fyrir Evrópuleiki Breiðabliks í vetur. Undirbúningur síðustu þriggja vikna fyrir síðasta heimaleikinn, sem fara átti fram á Laugardalsvelli annað kvöld, er farinn í vaskinn með einhliða ákvörðun UEFA í gær og hyggst framkvæmdastjóri KSÍ taka málið upp á fundi UEFA um komandi helgi.

Svona var blaðamannafundur Blika fyrir leikinn gegn Maccabi Tel Aviv
Halldór Árnason, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta, og Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði liðsins sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Kópavogsvelli í dag fyrir leik liðsins gegn Maccabi Tel Aviv í 5.umferð riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun.

Ákvörðun UEFA kom vallarstjóra Laugardalsvallar á óvart: „Virkilegt högg“
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, segir það hafa verið virkilegt högg fyrir sig og starfsfólk vallarins í gærkvöldi þegar að þau fengu veður af ákvörðun Evrópska knattspyrnusambandsins að færa leik Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu af vellinum yfir á Kópavogsvöll. Margra vikna vinn er nú farin í súginn og segir Kristinn að vel hefði verið hægt að spila leikinn á Laugardalsvelli sem sé í mjög góðu ásigkomulagi.

Blikar munu mæta til leiks gegn Ísraelum
Karlalið Breiðabliks mun mæta til leiks og spila við ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu á morgun. Þetta segir Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks en Blikar hafa verið hvattir til að sniðganga leikinn sökum mannúðarkrísunnar fyrir botni Miðjarðarhafs vegna átaka Ísraelshers og Hamas á Gasaströndinni. Sniðganga gæti hins vegar haft afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir Breiðablik.

Blikar mæta Maccabi Tel Aviv á Kópavogsvelli
Leikur Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv í Sambandsdeild Evrópu í knattspyrnu mun fara fram á Kópavogsvelli. Líkt og aðrir heimaleikir Breiðabliks átti leikurinn að fara fram á Laugardalsvelli en vetur konungur hefur sett strik í reikninginn.

Ekkert Hátíðarlaufabrauð í ár
Fótboltatímabil Höskuldar Gunnlaugssonar, fyrirliða Breiðabliks, hefur lengst um nokkra mánuði sökum þátttöku Blika í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu og því mun hann ekki geta sinnt hliðarstarfi sínu, að steikja Hátíðarlaufabrauð, fyrir komandi jólahátíð.

Vallarstjórinn vill blöndu af gervi- og alvöru grasi
Kristinn V. Jóhannsson, vallarstjóri Laugardalsvallar segist vel geta haldið vellinum leikfærum tíu mánuði á ári, en til þess þurfi hann réttan aðbúnað.

Hægt að hjálpa Jasoni Daða að verða leikmaður vikunnar
Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö fyrstu mörk Breiðabliks í sögu riðlakeppni Sambandsdeildarinnar á Laugardalsvellinum í gær. Mörkin dugðu Blikum ekki til sigurs en gæti tryggt honum útnefninguna leikmaður vikunnar.

West Ham og Aston Villa með annan fótinn í útsláttarkeppni eftir sigra kvöldsins
Ensku úrvalsdeildarfélögin West Ham og Aston Villa eru komin með annan fótinn í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar eftir sigra sína í kvöld.

Jason Daði: Pirrandi að fá ódýr mörk á sig
Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö mörk fyrir Blika í tapi þeirra fyrir Gent, 2-3, fyrr í kvöld. Jason þurfti að viðurkenna að gestirnir hafi verið á betri stað en þeir.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - Gent 2-3 | Breiðablik var leyft að dreyma en sigurinn kom ekki í kvöld
Breiðablik þurfti að lúta í gras fyrir Gent í fjórða leik sínum í Sambandsdeild Evrópu fyrr í kvöld 2-3. Breiðablik var einu marki yfir í hálfleik og það var verðskuldað eftir að Jason Daði Svanþórsson skoraði tvö keimlík mörk af stuttu færi. Gent kláraði verkefnið síðan í seinni hálfleik en Gift Orban skoraði öll mörk gestanna.

„Ég spilaði náttúrulega þennan leik en þú varst varla fæddur“
Breiðablik mætir í kvöld belgíska liðinu Gent í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar og í tilefni af þeir fóru tveir leikmenn liðsins í lauflétta spurningakeppni um Sambandsdeildina.

Svona var blaðamannafundur Blika fyrir leikinn á móti toppliðinu
Breiðablik spilar við belgíska félagið KAA Gent í Sambandsdeild Evrópu á Laugardalsvellinum annað kvöld. Þjálfari og leikmenn Blika ræddu við fjölmiðlamenn í dag og það má sjá fundinn hér á Vísi.

Hefur ekki tíma til að vera stressaður
Laugardalsvöllurinn er vaktaður allan sólarhringinn þessa vikuna. Pulsan er mætt aftur og er um fjórtán gráðu heitt fyrir innan hana. Blikar leika í Sambandsdeild Evrópu annað kvöld.

Leikmaður Villa huggaði stuðningsmann eftir að öryggisvörður grætti hann
Moussa Diaby, leikmaður Aston Villa, bjargaði deginum fyrir ungan stuðningsmann í gær.

Aston Villa fór illa með AZ Alkmaar og KÍ Klaksvík vann stórsigur
Enska úrvalsdeildarfélagið Aston Villa vann öruggan 1-4 sigur er liðið heimsótti AZ Alkmaar í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Á sama tíma vann færeyska liðið KÍ Klaksvík 3-0 sigur gegn Olimpija Ljubljana.