Vestri

Áfall og tímabilinu lokið hjá Arnari: „Fæ engu breytt úr þessu“
Það er óhætt að segja að HK-ingar, sem að standa í ströngu í Bestu deildinni um þessar mundir, hafi orðið fyrir áfalli um nýliðna helgi þegar að markvörðurinn reynslumikli, Arnar Freyr Ólafsson, varð fyrir því óláni að slíta hásin í leik gegn Vestra.

Covid-faraldur fyrir vestan: „Maður hélt að þetta væri liðin tíð“
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var án þónokkurra leikmanna þegar lið hans sótti HK heim í Bestu deild karla um helgina. Leiknum lauk 1-1 en veikindi herja á Vestramenn.

Sjáðu Svein Margeir klára meistarana og mörkin úr fallslagnum
Fimmtánda umferð Bestu deildar karla hófst í gær með tveimur leikjum. KA vann óvæntan sigur á Íslands- og bikarmeisturum Víkings á meðan HK og Vestri skildu jöfn í mikilvægum botnslag.

Uppgjörið: HK - Vestri 1-1 | Mistök fyrirliðans reyndust HK dýr
HK og Vestri gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik 15. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Mistök fyrirliða HK-inga, Leifs Andra Leifssonar, reyndust hans mönnum dýr.

Uppgjörið: Vestri - KA 0-2 | Hallgrímur Mar afgreiddi Vestramenn sem bíða enn
KA-menn unnu sinn þriðja sigur í síðustu fjórum deildarleikjum og eru komnir upp í áttunda sæti Bestu deildar karla eftir 2-0 sigur á Vestra á Ísafirði í kvöld.

Sveinn Sigurður farinn vestur
Markvörðurinn Sveinn Sigurður Jóhannesson er genginn í raðir Vestra sem er í 11. sæti Bestu deildar karla.

Uppgjörið: Vestri-Breiðablik 2-2 | Fyrsta stig Vestra á Ísafirði en eru Blikar að missa af lestinni?
Vestri og Breiðablik gerðu 2-2 jafntefli á Kerecis-vellinum á Ísafirði í dag. Það dugar Blikum skammt í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn en stigið var það fyrsta sem Vestri fær á nýja heimavellinum sínum.

Sjáðu Víking rúlla yfir Stjörnuna, Fylki jafna tvisvar í Vesturbænum og góða ferð Fram á Ísafjörð
Tólf mörk voru skoruð í leikjum gærdagsins í Bestu deild karla. Víkingur rústaði Stjörnunni, Fram gerði góða ferð á Ísafjörð og KR og Fylkir skildu jöfn á Meistaravöllum.

„Gaf okkur svar í dag og vonandi fæ ég svar áfram“
Davíð Smári Lamude, þjálfari Bestu deildar liðs Vestra, var svekktur eftir 3-1 tap sinna manna gegn Fram á heimavelli í kvöld. Hann ákvað að gefa sænsk ættaða markverðinum Karl William Eskelinen traustið í markinu þrátt fyrir martraðarframmistöðu Svíans í síðustu umferð gegn Val og fannst hann fá svar frá honum í kvöld.

Uppgjör og viðtöl: Vestri - Fram 1-3 | Þægilegt fyrir Fram á Ísafirði
Vestri og Fram áttust við á Kerecisvellinum í kvöld við frábærar aðstæður. Enduðu leikar 1-3 fyrir Fram sem voru miklu betri allan leikinn, að undanskildum fyrstu tuttugu mínútum leiksins.

Vestri stendur við fyrri yfirlýsingu
Knattspyrnudeild Vestra stendur við fyrri yfirlýsingu sína, það er að leikmaður liðsins hafi orðið fyrir barðinu á kynþáttaníði í leik Vestra og Fylkis þann 18. júní. KSÍ staðfesti í gær, mánudag, að sambandið myndi ekki aðhafast frekar í málinu.

KSÍ mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar Vestra
Knattspyrnusamband Íslands mun ekki aðhafast frekar í kvörtunar Vestra vegna atviks sem átti að hafa átt sér stað í leik liðsins gegn Fylki í Bestu deild karla nýverið.

Sjáðu af hverju Davíð Smári var svona reiður út í atvinnumann í liði sínu
Vestramenn fengu 5-1 skell á móti Val á heimavelli sínum í gær og nú má sjá öll mörkin hér inn á Vísi.

„Gjörsamlega óboðlegt og eitthvað sem ég sætti mig bara alls ekki við“
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var sótillur þegar hann mætti til viðtals eftir að lið hans var kjöldregið 1-5 af Val í dag. Hann var sérstaklega ósáttur með frammistöðu markvarðar síns, William Eskelinen, sem færði gestunum þrjú mörk á silfurfati að hans mati.

Uppgjör: Vestri - Valur 1-5 | Valsmenn eyðilögðu opnunarpartý nýja gervigrassins á Ísafirði
Vestri og Valur áttust við á glænýjum Kerecisvellinum á Ísafirði í dag í 11. umferð Bestu deildar karla.

Fylkir hafnar ásökunum Vestra um kynþáttaníð
Eftir leik Fylkis og Vestra í Bestu deild karla í knattspyrnu sagði Davíð Smári, þjálfari Vestra, að leikmaður sinn hefði orðið fyrir kynþáttaníði.

Tilkynning frá Vestra: Rasísk ummæli Fylkismannsins komin á borð KSÍ
Knattspyrnudeild Vestra hefur tilkynnt ummæli til KSÍ sem leikmaður liðsins varð fyrir af hálfu andstæðings síns í leik gegn Fylki í gær. Í yfirlýsingu Vestra segir að leikmaðurinn hafi orðið fyrir kynþáttaníði.

Sjáðu vítadómana sem gerðu Víkinga brjálaða og tryggðu Val stig
Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjö öll mörkin úr þeim hér inn á Vísi.

Davíð segir Fylkismenn hafa beitt kynþáttaníði: „Rasísk ummæli í garð minna leikmanna“
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var sársvekktur eftir 3-2 tap gegn Fylki í kvöld. Niðurstaða leiksins átti hlut að máli en aðrir, verri hlutir vógu þyngra. Hann segir leikmenn Fylkis hafa beitt sína menn kynþáttaníði.

Uppgjörið: Fylkir - Vestri 3-2 | Markmaðurinn reyndist hetjan í mikilvægum sigri
Fylkir vann gríðarlega torsóttan en mikilvægan sigur á nýliðum Vestra í fyrsta leik 10. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Uppgjör og viðtöl væntanleg.

Hrósaði Davíð Smára í hástert: „Minnir á Arnar Gunnlaugsson í viðtölum“
Atli Viðar Björnsson hefur hrifist af framgöngu Davíðs Smára Lamude, þjálfara Vestra, í sumar.

„Komu inn í leikinn með þennan fína „við erum betri en þið í fótbolta“ hroka
Lárus Orri Sigurðsson segir að Stjarnan hafi einfaldlega bognað undan baráttugleði Vestra í leik liðanna í Bestu deild karla um helgina.

Leitaði ráða hjá Rio Ferdinand áður en hann tók flugið til Ísafjarðar
Það vakti gífurlega athygli þegar að Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United og enska landsliðsins setti inn athugasemd við myndband sem að Besta deildin setti inn á Instagram af marki Toby King, leikmanns Vestra gegn Stjörnunni á dögunum. Ferdinand er náinn fjölskylduvinur Toby og hefur hann geta leitað ráða hjá honum í gegnum sinn feril í fótboltanum.

Rio Ferdinand klappar fyrir leikmanni Vestra
Nýliðar Vestra unnu frábæran sigur á Stjörnunni 4-2 á sunnudaginn. Liðið er með tíu stig í níunda sæti Bestudeildarinnar eftir sigurinn.

Sjáðu Blikamörkin í Kórnum, Vestra skella Stjörnunni og markaflóðið í Víkinni
Fimmtán mörk voru skoruð í leikjunum þremur í Bestu deild karla í fótbolta í gær.

Uppgjör og viðtöl: Vestri-Stjarnan 4-2 | Vestramenn með stjörnuleik
Vestramenn hoppuðu upp fyrir HK og upp í níunda sæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 4-2 heimasigur á Stjörnunni en leikurinn var spilaður í Laugardalnum. Stjörnuliðið hefur fengið á sig níu mörk í síðustu tveimur leikjum.

Uppgjör: KR-Vestri 2-2 | Vesturbæingar geta ekki unnið á Meistaravöllum
KR tók á móti Vestfirðingum í Vestra er liðin mættust í 8. umferð Bestu deild karla í fótbolta. Fyrir leikinn hafði Vestri tapað fjórum leikjum í röð, þremur í deild og einum í bikar. KR var aftur á móti að koma út góðum sigri á FH.

Davíð Smári og Kolla selja glæsilega útsýnishæð
Davíð Smári Lamude þjálfari Vestra og eiginkona hans Kolbrún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna hjá Barnaheill, hafa sett glæsilega 268 fermetra eign við Dalbraut á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 139,9 milljónir.

Sjáðu umdeilda vítið sem KR fékk og öll mörkin úr Bestu í gær
Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær þegar sjöunda umferðin hófst og þar fögnuðu Víkingar, KR-ingar og KA-menn góðum sigrum. Nú má sjá mörkin fjórtán úr leikjunum þremur hér inn á Vísi.

Uppgjörið: Vestri-Víkingur 1-4 | Öruggur meistarasigur gegn nýliðunum
Vestri tók á móti Víkingi á AVIS vellinum í Laugardal í 7. umferð Bestu deildar karla. Víkingar fóru þar með afar öruggan 1-4 sigur.