Vegagerð
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 14 ›
Grindavíkurvegur opnaður á nýjan leik Búið er að opna leið um Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut að nýrri vegtengingu að Bláa lóninu sunnan varnargarðs. Nýr hluti Bláalónsvegar er allur innan varnargarðsins. Þessi leið er öllum opin en lokað er til Grindavíkur nema þeim sem um mega fara. Innlent 22.2.2024 12:25
Í vörn fyrir hálendið: Andmæli við hugmyndir um endurnýjun Kjalvegar Í ljósi þingsályktunartillögu nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins frá síðasta hausti um endurnýjun Kjalvegar, sem hefur vakið athygli og umræðu, finnst mér mikilvægt að koma á framfæri afstöðu minni - ég er algjörlega andvígur þessari tillögu. Skoðun 21.2.2024 12:00
Einn dregið sig úr útboðinu vegna Ölfusárbrúar og fleiri að íhuga það Að minnsta kosti einn aðili af fimm hefur dregið sig formlega úr tilboðsferlinu vegna byggingar Ölfusárbrúar og samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis eru fleiri að íhuga að gera slíkt hið sama. Innlent 21.2.2024 08:01
Ökumenn stoppi stutt á nýjum vegi yfir heitt hraun Unnið er að gerð nýs vegar innan varnargarðanna við Svartsengi sem opnar leið til Grindavíkur og í starfsemi í Svartsengi, þar á meðal Bláa lónið. Hraun fór yfir hluta Grindavíkurvegar og Bláalónsvegar í síðustu viku. Með nýju vegtengingunni verður hægt að fara frá Grindavíkurvegi að Bláalónsvegi sem tengist inn á Nesveg. Innlent 17.2.2024 11:28
Dagur svarar fyrir sig varðandi dýrari Fossvogsbrú Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, segir eðlilegt að hækkun á kostnaðaráætlun Fossvogsbrúar sé sett í samhengi við samgönguverkefni víða um land af hendi ríkisins. Innlent 14.2.2024 13:12
Vegagerð yfir hraunið er lokið Framkvæmdir næturinnar við hjáveitulögn Njarðvíkuræðar gengu vel og örugglega fyrir sig samkvæmt HS Orku. Vegur liggur nú yfir heitt hraunið. Þjónusta á Suðurnesjum verður skert næstu daga en fyrirkomulag skólahalds er til skoðunar. Innlent 11.2.2024 10:44
Unnið að viðgerð og vegagerð í alla nótt „Þetta gekk vel. Það var tíðindalítið þegar kemur að eldgosinu en það hefur mikil vinna farið fram í nótt,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, um fregnir næturinnar. Innlent 9.2.2024 07:09
Samgöngumál í Mýrdal Þann 29. janúar s.l. rann út frestur til að gera athugasemdir til Skipulagsstofnunar vegna umhverfisskýrslu VSÓ um breytta veglínu í Mýrdal. Skoðun 8.2.2024 09:30
Vegagerð á villigötum Í fjölmiðlum undanfarna daga hefur verið töluverð umfjöllun um Fossvogsbrú því samkvæmt nýjustu áætlunum er verðmiðinn á brúnni orðinn 8,8 milljarðar króna og hefur allavega fjórfaldast frá því lagt var af stað. Skoðun 6.2.2024 11:01
Ný mislæg gatnamót í hrauninu fyrir framtíðar byggingarsvæði Gerð nýrra mislægra gatnamóta í hrauninu milli Straumsvíkur og Hvassahrauns fylgir breikkun Reykjanesbrautar, sem hófst fyrr í vetur. Gatnamótunum er ætlað að greiða leið að nýjum framtíðar byggingarsvæðum Hafnarfjarðar, að því er fram kom í fréttatilkynningu Vegagerðarinnar. Innlent 2.2.2024 09:11
Verktakar sjá fram á metár í útboðum Met verður slegið í útboðum verklegra framkvæmda í ár, miðað við þau áform sem kynnt voru á Útboðsþingi í dag. Aðgerðir vegna Grindavíkur gætu þó sett strik í reikninginn en Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir að frestun stórframkvæmda gæti orðið ein af mótvægisaðgerðunum. Viðskipti innlent 30.1.2024 20:20
Kalla eftir jarðgöngum: Flestir íbúar hafa fests í snjóflóði eða rétt sloppið Súðavíkurhlíð var lokað fyrirvaralaust í gær eftir að snjóflóð féll á veginn. Sveitarstjóri segir bíla hafa verið báðu megin við flóðið og kallar eftir jarðgöngum til að auka öryggi íbúa. Innlent 30.1.2024 13:41
Miklar framkvæmdir boðaðar á árinu Opinberir verkkaupar boða ríflega tvöföldun í útboðum verklegra framkvæmda. Umfangsmestu útboðin boða Landsvirkjun, Vegagerðin og Nýr Landspítali. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greiningu Samtaka iðnaðarins vegna Útboðsþings 2024 sem fram fer í dag. Viðskipti innlent 30.1.2024 13:01
Fleiri banaslys í boði Vegagerðarinnar? Þegar janúar er rétt hálfnaður hafa fimm manns látist í bílslysum á þjóðvegum landsins. Slysið við Skaftafell hinn 12. janúar vakti sérstaka athygli mína, enda keyri ég nær vikulega þessa leið austur í Suðursveit. Í slysinu létu tvær manneskjur lífið og sex aðrir slösuðust. Aðkoma á slysstað var með því ljótara sem þaulreyndir viðbragðsaðilar hafa séð. Skoðun 20.1.2024 14:01
Nýjar sprungur myndast og þær eldri stækka Margar sprungur hafa myndast í og við Grindavík í jarðhræringum síðustu sólarhringa. Eldri sprungur, sem unnið hafði verið að því að fylla upp í og gera við, hafa einnig stækkað. Innlent 15.1.2024 17:29
Skorar á Fjarðabyggð að draga til baka stuðning við jarðgöng Forsvarsmaður undirskriftasöfnunar um breytta forgangsröðun jarðganga á Austfjörðum, Mjófirðingurinn Erlendur Magnús Jóhannsson, skorar á bæjarfulltrúa Fjarðabyggðar að draga til baka stuðning Fjarðabyggðar innan Sambands sveitarfélaga á Austurlandi við Fjarðarheiðargöng. Jafnframt hvetur hann þá til þess að fara fram á nýja úttekt á gangnakostum á Mið-Austurlandi. Fréttir 10.1.2024 23:33
Tíu tonna hámark á Suður- og Vesturlandi Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður ásþungi ökutækja takmarkaður við tíu tonn bæði á Suðurlandi og Vesturlandi. Innlent 8.1.2024 15:56
„Bílstjórinn stendur sig mjög vel en þessar aðstæður eru óviðunandi“ Íbúi Borgarbyggðar segir vegi ekkert hafa verið hálkuvarða þrátt fyrir yfirlýsingar sveitarfélagsins um að í forgangi séu vegir þar sem er skólaakstur. Skólarútan ferðist löturhægt um fljúgandi hálar ósaltaðar brekkur. Innlent 7.1.2024 22:32
„Hver ber ábyrgð á vegum þegar þeir eru orðnir dauðagildra?“ Sumarhúsaeigandi við Jarðlangsstaði í Borgarbyggð segir hvorki sveitarfélagið né Vegagerðina vilja taka ábyrgð á hálkuvörnum á veginum sem leiðir að sumarhúsabyggðinni. Í henni eru meira en 150 sumarbústaðir og segir hann flughálku hafa verið á veginum í fleiri daga. Litlu megi muna að þar verði mannskæð bílslys nánast daglega. Innlent 6.1.2024 15:01
Til hvers eru markmið? Undanfarna daga og vikur hef ég lesið yfir umhverfismatsskýrslu Vegagerðinnar vegna færslu hringvegar um Mýrdal sem nú er í kynningu. Þar leggur Vegagerðin til leið norðan við Víkurþorp, svokallaðan valkost 4, vitandi það að sú leið komi ekki til greina hjá Mýrdalshreppi. Skoðun 20.12.2023 11:01
Vegagerðin tekur við rekstri Sævars Vegagerðin mun sjá um rekstur Hríseyjarferjunnar Sævars frá og með 1. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Innlent 12.12.2023 15:51
Gleðjast yfir því að þurfa ekki í hálkuna á Hjallahálsi Vegfarendur sem ekið hafa nýja veginn um Teigsskóg eru byrjaðir að lýsa reynslu sinni og birta myndir á samfélagsmiðlum. Vegurinn var opnaður umferð í gær, átján mánuðum eftir að Vegagerðin og Borgarverk undirrituðu samning um vegagerðina, sem sannarlega má telja einhverja þá umdeildustu hérlendis, en áður hafði verið deilt hart um vegstæðið í tvo áratugi. Innlent 2.12.2023 12:40
Óvissan heldur áfram um útboð næstu jarðganga Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vísar því til Alþingis að ákvarða hvort bíða eigi með útboð næstu jarðganga þar til séð verður hvernig ný bortækni reynist. Hann vonast til að það skýrist fyrir vorið hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð. Innlent 1.12.2023 22:55
Umferð hleypt á nýja veginn um Teigsskóg Stór stund rennur upp í vegamálum Vestfirðinga á morgun þegar vegurinn umdeildi um Teigsskóg verður opnaður umferð. Í dag var jafnframt skrifað undir verksamning um næsta verkáfanga; gerð vegfyllinga yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Innlent 30.11.2023 21:00
Hönnun og smíði nýrrar Ölfusárbrúar boðin út Vegagerðin hefur sent út útboðsgögn vegna hönnunar og smíði nýrrar Ölfusárbrúar til fimm fyrirtækja sem sóttu um að fá að taka þátt í útboðinu. Frestur til að skila inn tilboðum rennur út þann 12. mars næstkomandi. Áætlað er að verkinu ljúki haustið 2027, eftir fjögur ár. Innlent 29.11.2023 18:29
Hellisheiðinni lokað á morgun Hellisheiðinni verður lokað tímabundið á morgun vegna malbiksviðgerða á veginum. Innlent 28.11.2023 21:28
Segir jarðgangaáætlun miklu raunhæfari með kyndilborun Ný tækni með kyndilborun jarðganga gerir áform um stórfellda jarðgangagerð hérlendis miklu raunhæfari, að mati Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra, sem segir tækifærið það spennandi fyrir Íslendinga að ekki sé hægt að sitja hjá. Innlent 27.11.2023 20:10
Býður Íslendingum að fá fyrstu kyndilboruðu jarðgöng Evrópu Íslensk stjórnvöld eiga í viðræðum við bandarískt frumkvöðlafyrirtæki á sviði kyndilborunar um að bora jarðgöng mun ódýrar og hraðar en áður hefur þekkst. Fyrirtækið býðst til að byrja á því að bora lagnagöng til Vestmannaeyja á næsta ári á eigin ábyrgð. Innlent 26.11.2023 20:10
Vilja Fjarðagöng fremur en Fjarðarheiðargöng Undirskriftasöfnun er hafin á netinu þar sem skorað er á samgönguyfirvöld að setja Fjarðagöng á Austfjörðum í forgang á samgönguáætlun, tvenn göng sem tengja myndu Seyðisfjörð og Norðfjörð um Mjóafjörð. Slík göng yrðu þannig sett fram fyrir Fjarðarheiðargöng, milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, sem núna eru áformuð sem næstu jarðgöng á samgönguáætlun. Innlent 25.11.2023 09:09
Fossvogsbrúin „fyrst og fremst samgöngumannvirki, ekki útivistarsvæði“ Vegagerðin og Landssamtök hjólreiðamanna segja núverandi hönnun Fossvogsbrúarinnar tryggja öryggi og skjól hjólreiðamanna. Það þurfi ekki að breyta hönnun brúarinnar eins og byggingarverkfræðingur vill gera svo gangandi geti notið sólarlags og útsýnis betur. Innlent 24.11.2023 07:00