Gönguleið yfir Elliðaár í stað hitaveitustokksins Kristján Már Unnarsson skrifar 4. janúar 2026 07:07 Göngustígurinn verður með rauðum rörum sem eiga að minna á hitaveituna. Reykjavíkurborg Þrjár nýjar göngubrýr verða lagðar yfir Elliðaár neðst í Elliðaárdal á árinu til að endurheimta eldri gönguleið sem fylgdi gamla hitaveitustokknum yfir árnar. Með brúnum kemur 250 metra langur göngustígur sem liggja mun þvert yfir árkvíslar skammt ofan við veiðihús Elliðaánna en neðan við Toppstöðina.
Hitaveitustokkurinn var lagður á árunum 1939 til 1943 til að flytja heitt vatn sautján kílómetra leið úr Mosfellssveit til Reykjavíkur og lá hann að hitaveitugeymunum á Öskjuhlíð. Þar sem stokkurinn flutti heitt vatn var hann ylvolgur og festi hvorki snjó né klaka á honum og varð hann vinsæl gönguleið. Svona var gamla gönguleiðin þegar tveir hitaveitustokkar lágu samsíða yfir Elliðárnar.Vísir Borgarbúar höfðu notið þess í hartnær áttatíu ár að geta gengið eftir stokknum yfir Elliðaár þar til gönguleiðin var rofin með framkvæmdum sem hófust árið 2019. Hitaveituæðin var þá endurnýjuð og lögð undir árbotninn og stokkurinn rifinn en dregist hefur að opna gönguleiðina að nýju með brúagerð í staðinn. Hitaveitustokkurinn árið 1942. Myndin er birt í fornleifaskráningu Borgarsögusafns árið 2024 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar.Loftur Guðmundsson/Borgarsögusafn Á fundi í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur í vikunni fyrir jól, þegar staða hjólreiðaáætlunar borgarinnar var kynnt, voru framkvæmdir við endurheimt gönguleiðarinnar boðaðar á árinu 2026. Í fréttatilkynningu frá borginni segir að þar hafi verið kynntar brýr sem koma í staðinn fyrir hitaveitustokkinn gamla. Tveir strákar ganga eftir stokknum árið 1963 með fötu á milli sín. Sama mynd birtist í fornleifaskrá Borgarsögusafns Reykjavíkur árið 2011 vegna endurnýjunar veitukerfa í Elliðaárdal. Hesthús Fáks til hægri en Toppstöðin fjær.Þjóðviljinn/Borgarsögusafn „Þar sem áður var hitaveitustokkur sem gengið var yfir verður gerður stígur með þremur nýjum brúm. Hann mun meðal annars nýtast vel fyrir útivist í dalnum. Við hönnun hans er horft til þess að miðla og varðveita verksummerki um starfsemi Veitna á svæðinu og er framkvæmdin í samstarfi við Veitur,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Nýi stígurinn verður 3,5 metra breiður og 250 metra langur.Reykjavíkurborg Í kynningu umhverfis- og skipulagsráðs sumarið 2023 á verkefninu sagði: „Stokkurinn var löngum mikilvæg gönguleið inn í borgina en nú er búið að rífa hann. Stöplarnir standa eftir og verða þeir nýttir í undirstöður undir brýrnar, sem verða 3,5 metrar á breidd.“ Gömlu stöplarnir verði nýttir undir nýju brýrnar.Reykjavíkurborg „Rautt rör, sem er 20 sentímetrar í þvermál, gengur eftir brúnni og aðlagar sig að þörfum hennar. Rörin sveigjast og breytast í ljós, útskot og fleira með þessa vísun í hitaveituna. Ljósin eru lág og vel er gætt að því að lýsingin hafi ekki truflandi áhrif á umhverfið eða berist út í árnar. Þau verða dempuð á skynjurum svo lýsingin eykst aðeins þegar farið er um þessa gönguleið.“ Rauðu rörin verða nýtt sem ljósastaurar.Reykjavíkurborg „Á áningarstaðnum verða rörin líka notuð til að móta set og leiksvæði, til dæmis í hringlaga formum, sem byggja á algengri gerð heitra potta í sundlaugum borgarinnar.“ Áningarstaður verður í Elliðaárhólma.Reykjavíkurborg
Reykjavík Göngugötur Samgöngur Borgarstjórn Hjólreiðar Vegagerð Tengdar fréttir Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Áætlað er að hefja framkvæmdir við hjóla- og göngustíga við Suðurfell í Breiðholti, Vínlandsleið í Grafarholti og í Elliðaárdal í stað stokks á næsta ári. Til viðbótar verður haldið áfram við gerð stíga í Skógarhlíð og við Arnarnesveg í samvinnu með Betri samgöngum. Áætlað er að framkvæmdir við sérstaka hjólastíga í borginni verði um fjórir kílómetrar á árinu 2026 þannig að í lok árs verði þeir rúmlega 50 kílómetrar. 19. desember 2025 15:43 Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast Báðar nýju göngu- og hjólabrýrnar yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hafa verið opnaðar umferð. Vinna við þær er á lokametrunum en búið að tengja þær báðar við stígakerfi Elliðaárdals. 4. október 2025 06:56 Gamla þjóðleiðin yfir Elliðaárnar endurvakin í göngu- og hjólastíg Tvær nýjar brýr yfir Elliðaár voru opnaðar í dag. Þær eru hluti af nýrri hjóla- og gönguleið þvert yfir Elliðaárhólma. 30. maí 2016 18:15 Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á hámarksrefsingu yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira
Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Áætlað er að hefja framkvæmdir við hjóla- og göngustíga við Suðurfell í Breiðholti, Vínlandsleið í Grafarholti og í Elliðaárdal í stað stokks á næsta ári. Til viðbótar verður haldið áfram við gerð stíga í Skógarhlíð og við Arnarnesveg í samvinnu með Betri samgöngum. Áætlað er að framkvæmdir við sérstaka hjólastíga í borginni verði um fjórir kílómetrar á árinu 2026 þannig að í lok árs verði þeir rúmlega 50 kílómetrar. 19. desember 2025 15:43
Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast Báðar nýju göngu- og hjólabrýrnar yfir Elliðaár í Víðidal, eða Dimmu, eins og áin nefnist einnig á þessum kafla, hafa verið opnaðar umferð. Vinna við þær er á lokametrunum en búið að tengja þær báðar við stígakerfi Elliðaárdals. 4. október 2025 06:56
Gamla þjóðleiðin yfir Elliðaárnar endurvakin í göngu- og hjólastíg Tvær nýjar brýr yfir Elliðaár voru opnaðar í dag. Þær eru hluti af nýrri hjóla- og gönguleið þvert yfir Elliðaárhólma. 30. maí 2016 18:15