Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé Kristján Már Unnarsson skrifar 19. janúar 2026 11:34 Vegarkaflinn sem á að endurbyggja og klæða bundnu slitlagi nær frá gömlu Tungufljótsbrúnni og að Hrunamannavegi ofan Brúarhlaða. Bláskógabyggð Vegagerðin hefur boðið út lagningu bundins slitlags á 7,4 kílómetra kafla Einholtsvegar í Bláskógabyggð í uppsveitum Árnessýslu. Þetta er fyrsta framkvæmdaútboð sem auglýst er í vegagerð frá því í júlí síðastliðið sumar, ef frá er talið lítið útboð í gerð hringtorgs í Garðabæ í september.
Einholtsvegur verður styrktur, breikkaður og klæddur á kaflanum frá gömlu Tungufljótsbrúnni ofan Tungnarétta og að Hrunamannavegi ofan við Brúarhlöð. Endurbyggður vegur fylgir sömu veglínu en verður hærri og aðeins breiðari en núverandi vegur, með bundnu slitlagi, bættum sjónlengdum og öruggum hliðarsvæðum, samkvæmt kynningu Vegagerðarinnar. Verktími er áætlaður um hálft annað ár. Í útboðsauglýsingu er gert ráð fyrir að verkinu skuli að fullu lokið fyrir 15. ágúst 2027. Tilboðsfrestur rennur út þriðjudaginn 27. janúar næstkomandi. Framkvæmdin er fjármögnuð með fjárveitingu á tengivegaáætlun 2025-2029. Frá Einholtsvegi.Vegagerðin Vegagerðin segir að framkvæmdin hafi fremur lítil umhverfisáhrif nema hvað varðar betri samgöngur og bætt umferðaröryggi vegfarenda. Markmið framkvæmdarinnar sé að bæta vegsamgöngur á svæðinu, auka umferðaröryggi íbúa og annarra vegfarenda á Einholtsvegi og stuðla að greiðari samgöngum í Bláskógabyggð. Þegar G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, var spurður hversvegna verkútboð hefðu legið meira og minna niðri frá því í júlí sagði hann að flest verk Vegagerðarinnar væru boðin út á fyrri hluta árs þar sem flest þeirra væru tengd því að undirbúa og vinna þegar tíð sé hagstæð, það er að segja ekki að vetri. Sama gildi í ár þar sem á fyrri helmingi ársins verði boðinn út fjöldi verkefna. Hluti þeirra verði kynntur á væntanlegu útboðsþingi. Kort Vegagerðarinnar af þeim kafla Einholtsvegar sem á að klæða.Vegagerðin Í greinargerð fjárlagafrumvarps í haust og nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar eru taldar upp helstu nýju framkvæmdirnar sem ætlunin er að hefjast handa við á þessu ári. Á höfuðborgarsvæðinu eru það Fossvogsbrúin, sem búið er að semja um við verktaka, og breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes að Hvalfjarðargöngum. Á Vesturlandi fá kafli í Helgafellssveit milli Stykkishólmsafleggjara og Álftafjarðar brautargengi, og á Vestfjörðum lokaáfanginn í Gufudalssveit; stálbogabrú yfir Djúpafjörð, sem áformað er að bjóða út í næsta mánuði. Í Þingeyjarsýslum á að fara í smíði nýrrar brúar yfir Skjálfandafljót í Kinn. Loks á að hefjast handa við langþráð verkefni í Bárðardal; að leggja slitlag á vegarkafla í dalnum vestanmegin. Á útboðsþingi í fyrra boðaði samgönguráðherra kraftmikla vegagerð í landinu, en þó ekki fyrr en búið væri að ná niður verðbólgu og vöxtum:
Vegagerð Samgöngur Samgönguáætlun Bláskógabyggð Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Ferðaþjónusta Öryggi á ferðamannastöðum Tengdar fréttir Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Gert er ráð fyrir að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mæli fyrir samgönguáætlun á Alþingi í dag. Um er að ræða fyrstu samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar en hún er fyrir árin 2026 til 2040 og henni fylgir einnig fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. 19. janúar 2026 07:30 Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Vegagerðin vonast til að liðlega tvöhundruð kílómetrar af malarvegum á landinu verði malbikaðir á næstu fimm árum. Innviðaráðherra segir mikið ákall úr dreifbýlinu að fá bundið slitlag á sveitavegi. 17. desember 2025 22:11 Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Breikkun Suðurlandsvegar meðfram Rauðavatni og Norðlingaholti frestast fram á næsta áratug, sem og breikkun Reykjanesbrautar milli Njarðvíkur og Leifsstöðvar. Endurbætur á Reykjanesbraut um Hafnarfjörð bíða og einnig gerð mislægra gatnamót við Bústaðaveg. 8. desember 2025 23:36 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira
Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Gert er ráð fyrir að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mæli fyrir samgönguáætlun á Alþingi í dag. Um er að ræða fyrstu samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar en hún er fyrir árin 2026 til 2040 og henni fylgir einnig fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026 til 2030. 19. janúar 2026 07:30
Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Vegagerðin vonast til að liðlega tvöhundruð kílómetrar af malarvegum á landinu verði malbikaðir á næstu fimm árum. Innviðaráðherra segir mikið ákall úr dreifbýlinu að fá bundið slitlag á sveitavegi. 17. desember 2025 22:11
Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Breikkun Suðurlandsvegar meðfram Rauðavatni og Norðlingaholti frestast fram á næsta áratug, sem og breikkun Reykjanesbrautar milli Njarðvíkur og Leifsstöðvar. Endurbætur á Reykjanesbraut um Hafnarfjörð bíða og einnig gerð mislægra gatnamót við Bústaðaveg. 8. desember 2025 23:36