Dælan anni ekki vatnsmagni Birgir Olgeirsson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 19. mars 2026 15:24 Líkt og sjá má á myndinni er vatnselgurinn nokkuð djúpur. Vísir/Sigurjón Reykjavíkurborg skoðar úrbætur á nýjum undirgöngum undir Breiðholtsbraut við Suðurfell og Jaðarsfell. Ítrekað hefur myndast þar mikill vatnselgur og hafa íbúar haft orð á því á hverfissíðu Breiðhyltinga.
Reykjavíkurborg skoðar úrbætur á nýjum undirgöngum undir Breiðholtsbraut við Suðurfell og Jaðarsfell. Ítrekað hefur myndast þar mikill vatnselgur og hafa íbúar haft orð á því á hverfissíðu Breiðhyltinga. Inga Rún Sigurðardóttir, sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir undirgöngin búin dælu sem virðist ekki anna vatnsmagninu í miklu vatnsveðri. Verið sé að skoða hvað sé hægt að gera til að bæta úr þessu. Gríðarlegt vatn hefur safnast fyrir við undirgöngin. Vísir/Sigurjón Mbl.is hefur eftir Sigrúnu Birgisdóttur, íbúa úr Fellahverfi, að þetta hafi ekki verið vandamál með undirgöngunum sem voru fyrir á móts við Völvufell. Eftir að nýju undirgöngin voru tekin í notkun sé ítrekað vatnselgur. Gömlu göngin voru byggð 1993 og voru ekki talin uppfylla þá staðla sem nú er miðað við fyrir samgöngumannvirki þessarar gerðar, auk þess að ná ekki undir breikkun Breiðholtsbrautar. Undirgöngin eru samstarf Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Veitna. „Þetta eru ný göng og það hefur verið vandræði með vatn á þessum stað og við erum að reyna leysa þetta og munum gera það,“ segir segir Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, í samtali við fréttastofu. Sigríður Inga Sigurðardóttir upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að tekin hafi verið ákvörðun um að loka undirgöngunum fyrir umferð þangað til í fyrramálið og eru dælubílar á leið á svæðið til að dæla vatninu í burtu eins og hægt er. Hún segir að áfram verði fylgst með ástandinu og hvort það þurfi áfram að dæla. Sigríður tekur fram að göngin séu enn þá framkvæmdasvæði og því ekki tilbúin. Dælan sem er þar anni ekki þessu vatnsmagni og er nú leitað lausna við þeim vanda. Fréttin hefur verið uppfærð með viðbrögðum frá Vegagerðinni.
Reykjavík Vegagerð Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira