Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Smári Jökull Jónsson skrifar 4. apríl 2026 18:01 Unnið er að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar. Vísir/Egill Danska fyrirtækið DHI vinnur nú að tillögum er varða lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar í samvinnu við Vegagerðina. Reiknað er með niðurstöðum vinnunnar nú í vor og í kjölfarið verður það stjórnvalda að ákveða næstu skref.
Þetta kemur fram í svörum Vegagerðarinnar við fyrirspurn fréttastofu. Í umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja um samgöngumál þann 25. mars kemur fram að ekki hafi verið hægt að dýpka í Landeyjahöfn í langan tíma vegna veðuraðstæðna. Í bókun kemur fram að staðan á höfninni sýni hversu aðkallandi það sé að höfnin verði kláruð og jafnframt tekið fram að danska straumlínustofnunin DHI vinni nú að tillögum að breytingum á höfninni í samvinnu við Vegagerðina. Stjórnvalda að ákveða framhaldið Í svörum Vegagerðarinnar við fyrirspurn fréttastofu kemur fram að í lokafasa verkefnsins sé verið að skoða nokkur atriði. Til dæmis lengingu á brimvarnargörðum, byggingu garða á rifinu svokallaða rétt utan við höfnina og einnig hvort hægt sé að fara í svokallaða „buffer“ dýpkun sem felist í því að dýpkaðar verði stórar holur sitt hvoru megin við höfnina. Verið sé að leita eftir leiðum til að auka nýtingu Landeyjahafnar með mannvirkjum, bæði hvað varðar sandburð og siglingar. Reiknað er með að niðurstöður verði kynntar nú í vor og í kjölfarið metið hvað þær kosta. Það sé síðan stjórnvalda að taka ákvörðun um framhaldið. Nýr aðili mun sinna dýpkun frá og með haustinu Landeyjahöfn hefur verið lokuð síðustu vikurnar vegna ónægs dýpis í höfninni. Fyrirtækið Björgun hefur séð um dýpkun í höfninni síðustu árin en lenti í vandræðum nýlega eftir að bilun kom upp í skipinu og gat þá ekki sinnt dýpkun við mikla óánægju yfirvalda í Eyjum. Skip Björgunar, Álfsnes, hefur ekki unnið að dýpkun í höfninni undanfarna daga og vikur vegna veðuraðstæðna. Nýlega voru kynntar niðurstöður úr útboði vegna dýpkun hafnarinnar á árunum 2026-2029 og var í kjölfarið samið við belgíska fyrirtækið Jan De Nul sem tekur við verkinu í haust. Fyrirtækið sinnti dýpkun í Landeyjahöfn á árunum 2015 til 2018 og sérhæfir sig í framkvæmdum sem þessum.
Samgöngur Landeyjahöfn Vestmannaeyjar Herjólfur Vegagerð Rangárþing eystra Tengdar fréttir „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. 4. mars 2026 08:30 „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp. 3. mars 2026 13:02 Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. 4. mars 2026 08:30
„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp. 3. mars 2026 13:02