Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. mars 2026 17:57 Vilhjálmur Árnason og Daði Már Kristófersson. Samsett Fjármála- og efnahagsráðherra tekur fram að mögulega verði hægt að skoða að setja mannvirki á við Reykjanesbraut og Suðurlandsveg inn í fyrirhugað innviðafélag. Með því væri hægt að innheimta veggjöld á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir hugmyndina harðlega.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, lagði fram frumvarp í dag á Alþingi um stofnun innviðafélags í eigu ríkisins sem ætlað er að hraða uppbyggingu stórra samgönguverkefna. Félagið á að vera opinbert hlutafélag í eigu ríkisins sem annist fjármögnun, þróun, uppbyggingu og rekstur tiltekinna samgönguinnviða. Í greinargerð frumvarpsins segir að við vinnslu frumvarpsins hafi verið skoðað að leggja félaginu til mannvirki sem þegar hafa verið byggð og taka upp innheimtu veggjalda. Framkvæmd var greining og miðað við að Hvalfjarðargöng yrðu hluti af félaginu. Með því að setja á „hófleg veggjöld“, en ekki kemur fram hversu há þau voru, væri hægt að lækka framlag ríkisins um 27 milljarða. „Mögulegt er að skoða fleiri þegar byggð mannvirki í þessu samhengi, til að mynda Reykjanesbraut og Suðurlandsveg, en með slíkum aðgerðum væri innheimta veggjalda á öllum helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðinu sem í fælist ákveðin sanngirni þar sem byrðum yrði dreift á vegfarendur hvar sem þeir byggju eða störfuðu,“ segir í greinargerðinni. „Ekki liggur fyrir nákvæm greining á því hvað framlag ríkisins myndi lækka við slíka ráðstöfun en ljóst er að hún getur lækkað verulega.“ Ákvörðun var tekin um að skoða innheimtu veggjalda á áðurnefndum stöðum þar sem kostnaður við fyrirhuguð verkefni á borði félagsins, Sundabraut, Fljótagöng og Ölfusárbrú, er áætlaður rúmir 190 milljarðar króna. Ríkissjóður þurfi því að leggja 75 milljarða framlög til félagsins. „Til að mæta þeim kostnaði var skoðað að afhenda félaginu Vaðlaheiðargöng og Hornafjarðarfljót en þar er nú þegar verið að innheimta eða stendur til að innheimta veggjöld.“ Verði að bregðast strax við Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti á lista flokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ, gagnrýnir það að ríkisstjórnin hafi tekið til skoðunar að innheimta veggjöld. „Eftir að ríkisstjórnin samþykkti meingallað frumvarp um kílómetragjöld á flestalla landsmenn, m.a. undir formerkjum þess að „þeir borgi sem nota“, stefnir hún nú á að leggja á umfangsmikla vegtolla sem gætu bitnað á langflestum landsmönnum. Ekki síst á Suðurnesjamönnum,“ segir hann í færslu á Facebook. „Það eru ýmsar leiðir til að fjármagna vegakerfið. Ríkisstjórnin hefur hins vegar valið að fara allar í einu. Fyrst átti að sækja milljarðana með hækkun veiðigjalda. Þegar það gekk ekki eftir var gripið til kílómetragjalda og snarhækkunar vörugjalda á bíla. Nú á að bæta vegtollum ofan á.“ Hann hvetur sveitarstjórnir þeirra svæða sem aðgerðin myndi bitna mest á, til að mynda Reykjanesbæ, til að bregðast strax við. „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga nema kílómetragjöld og vörugjöld á bifreiðar séu afnumin áður.“ Fréttin hefur verið uppfærð. Fyrst stóð að um væri að frumvarp innviðaráðherra en rétt er að þetta er frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra.
Samgöngur Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vegtollar Vegagerð Reykjanesbær Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira