

Napoli steig stórt skref í átt að Ítalíumeistaratitlinum með torsóttum sigri á Þóri Jóhanni Helgasyni og félögum í Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.
Internazionale varð af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti í fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni.
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku reyndist hetja Inter er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Juventus í ítölsku bikarkeppninni í fótbolta í gærkvöldi. Lukaku jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma, en fékk svo að líta sitt annað gula spjald í leiknum fyrir að fagna fyrir framan stuðningsmenn Juvenstus.
Juventus og Inter skildu jöfn í fyrri leik liðanna í undanúrslitum ítölsku bikarkeppninnar í fótbolta í kvöld. Lokatölur 1-1 í leik þar sem allt var á suðupunkti undir lokin.
José Mourinho gerði Dejan Stankovic vinargreiða í leik Roma og Sampdoria í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Mourinho stöðvaði nefnilega rasíska níðsöngva stuðningsmanna Roma í garð Stankovic.
Ítalíumeistarar AC Milan unnu afar sannfærandi 4-0 útisigur er liðið heimsótti verðandi meistara Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Fiorentina vann mikilvægan sigur á Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Alexandra Jóhannsdóttir var í byrjunarliði Fiorentina í leiknum.
Juventus vann lífsnauðsynlegan sigur í Serie A, úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Ítalíu, í kvöld. Með sigrinum á liðið enn möguleika á að ná Meistaradeildarsæti. Það er magnað fyrir þær sakir að fyrr á leiktíðinni voru 15 stig dregin af liðinu.
Allt bendir til þess að ein af skærustu stjörnum Evrópuboltans í vetur, Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia, framlengi samning sinn við Napoli.
Albert Guðmundsson er ekki aðeins að raða inn mörkum í ítölsku b-deildinni heldur er hann einnig að gera varnarmönnum erfitt fyrir með því að sóla þá upp úr skónum.
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrrum fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta er aftur að komast á fulla ferð eftir meiðsli og hefur nú skorað í tveimur leikjum í röð.
Guðný Árnadóttir gaf tvær stoðsendingar þegar AC Milan gerði 3-3 jafntefli við Fiorentina í ítölsku deildinni í knattspyrnu í dag. Alexandra Jóhannsdóttir var í liði gestanna.
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt marka Juventus þegar liðið lagði Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Cristian Bunino gat ekki haldið í sér í miðjum fótboltaleik og var rekinn í sturtu áður en hann komst inn á völlinn.
Sænsk knattspyrnukona segir ömurlega sögu af upplifun sinni sem leikmaður ítalska félagsins Fiorentina. Íslenska landsliðskonan Alexandra Jóhannsdóttir spilar með ítalska liðinu.
Þrátt fyrir að fimmtán stig hafi verið tekin af liðinu þá heldur Juventus enn í vonina um Meistaradeildarsæti að leiktíðinni lokinni. Liðið vann gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á Inter Milan í kvöld.
Lazio hafði betur gegn Roma í slagnum um Rómarborg í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lokatölur í leik dagsins 1-0 Lazio í vil.
Það virðist vera fátt sem getur komið í veg fyrir það að Napoli tryggi sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnuí fyrsta skipti síðan árið 1990. Liðið er með 21 stigs forskot eftir afar sannfærandi 4-0 sigur gegn Torino í dag.
Sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic skráði sig á spjöld sögunnar í gærkvöldi er AC Milan mátti þola 3-1 tap gegn Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Albert Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir Genoa er liðið vann góðan 3-0 útisigur gegn botnliði Brescia í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag.
Alexandra Jóhannsdóttir skoraði eina mark Fiorentina í 5-1 tapi liðsins gegn Roma í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Aron Einar Gunnarsson og félagar í Al Arabi eru komnir á toppinn í Katar eftir 4-1 sigur á Al Sailiya.
Guðmundur Benediktsson, íþróttafréttamaður og faðir knattspyrnukappans Alberts Guðmundssonar, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna máls sonar hans og landsliðsþjálfarans, Arnars Þórs Viðarssonar.
Manchester United ætti frekar að kaupa Lautaro Martínez en Victor Osimhen. Þetta segir Paul Scholes, einn leikjahæsti og sigursælasti leikmaður í sögu United.
Lánsdvöl belgíska framherjans Romelu Lukaku hjá Inter Milan á Ítalíu hefur ekki gengið að óskum. Framkvæmdastjóri félagsins hefur staðfest að Lukaku fari aftur til Chelsea að dvölinni lokinni.
Georgímaðurinn Khvicha Kvaratskhelia, mögulega betur þekktur sem Kvaradona, hefur undanfarna mánuði heillað knattspyrnuaðdáendur á Ítalíu sem og um gervalla Evrópu með ótrúlegum hæfileikum sínum. Reikna má með að hann spæni upp vænginn þegar Napoli tekur á móti Eintracht Frankfurt í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Inter Milan er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir markalaust jafntefli við Porto í Portúgal. Inter vann fyrri leikinn 1-0 og er því komið áfram.
Luciano Spalletti, knattspyrnustjóri Napoli, segist vera með besta miðvörð heims í sínu liði.
Ítalíumeistarar AC Milan þurftu að sætta sig við 1-1 jafntefli er liðið tók á móti fallbaráttuliði Salernitana í kvöld.
Janne Andersson útilokar ekki að velja hinn 41 árs Zlatan Ibrahimovic aftur í sænska landsliðið.
Paul Pogba verður ekki með Juventus næstu þrjár vikurnar eftir að hann meiddist þegar hann tók aukaspyrnur á æfingu.