Albert skoraði en endurkoma Genoa varð að engu 9. mars 2024 21:43 Albert Guðmundsson skoraði fyrra mark Genoa í svekkjandi tapi í kvöld. Simone Arveda/Getty Images Eftir sex markalausa leiki í röð skoraði Albert Guðmundsson sitt tíunda mark á tímabilinu er Genoa tók á móti Monza í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Liðið þurfti þó að sætta sig við 3-2 tap.
Eftir sex markalausa leiki í röð skoraði Albert Guðmundsson sitt tíunda mark á tímabilinu er Genoa tók á móti Monza í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Liðið þurfti þó að sætta sig við 3-2 tap. Gestirnir í Monza tóku forystuna strax á áttundu mínútu þegar Matteo Pessina kom boltanum í netið eftir stoðsendingu frá Andrea Colpani. Tíu mínútum síðar lagði Colpani upp annað marg Monza fyrir Dany Mota sem skoraði stórglæsilegt mark þegar hann klippti boltann á lofti í fjærhornið. Albert og félagar gengu því til búningsherbergja 2-0 undir, en eftir aðeins fimm mínútna leik í síðari hálfleik fékk Genoa vítaspyrnu. Albert fór á punktinn, en lét Michele Di Gregorio í marki Monza verja frá sér. Boltinn barst þó út í teig, á Albert sem mokaði honum yfir línuna. Það var svo varamaðurinn Vitinha sem jafnaði metin fyrir Genoa með góðu marki á 68. mínútu, en gestirnir náðu forystunni á ný með marki frá Daniel Maldini þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Þrátt fyrir ágæta spretti á lokamínútunum tókst heimamönnum í Genoa ekki að jafna og niðurstaðan varð því 3-2 sigur Monza. Albert og félagar sitja því enn í 12. sæti deildarinnar með 33 stig, sex stigum minna en Monza sem situr í 10. sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Sjá meira