Spænski boltinn

Messi á von á lífstíðarsamning líkt og Iniesta skrifaði undir
Framkvæmdarstjóri Barcelona, Oscar Grau, segir að sambærilegur lífstíðarsamningur og Andres Iniesta skrifaði undir hjá félaginu á dögunum sé handan hornsins fyrir Lionel Messi.

Kolólöglegt mark kom Börsungum á bragðið í sigri
Barcelona náði fjögurra stiga forskoti á toppi spænsku deildarinnar á ný með 2-0 sigri á Malaga í kvöld en fyrsta mark Barcelona hefði aldrei átt að standa og voru gestirnir skiljanlega ósáttir.

Nou Camp fær nýtt nafn
Hinn heimsfrægi Nývangur, eða Camp Nou, heimavöllur Barcelona mun fá nýtt nafn á næstu árum.

Leicester City fékk meiri Meistaradeildarpening en Real Madrid 2016-17
Real Madrid vann Meistaradeildina 2016-17 en enska félagið Leicester City fékk engu að síður meiri pening og ítalska félagið fékk mest allra félaga.

Neymar færði Messi vondar fréttir í brúðkaupsgjöf
Lionel Messi bauð þáverandi liðsfélaga sínum Neymar í brúðkaup sitt síðasta sumar en það er óhætt að segja að þar hafi Brasilíumaðurinn stolið senunni af Argentínumanninum.

Enn ein þrennan hjá Messi
Lífið leikur við Lionel Messi þessa dagana. Honum gengur ekki bara allt í haginn innan vallar, heldur einnig utan hans.

Börsungar björguðu stigi gegn Atletico
Luis Suárez bjargaði stigi fyrir Barcelona í 1-1 jafntefli með skalla þegar stutt var til leiksloka í lokaleik dagsins í spænska boltanum.

Ronaldo hetjan í þriðja sigri Real í röð
Mark Cristiano Ronaldo á 85. mínútu reyndist vera sigurmarkið í 2-1 sigri Real Madrid gegn Getafe á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni en þetta var þriðji sigur Madrídinga í röð.

Vafasöm auglýsing Canal+ vekur athygli
Franska sjónvarpsstöðin Canal+ hefur farið af stað með heldur betur vafasama auglýsingu fyrir stórslag Barcelona og Real Madrid sem mun fara fram í desember.

Wenger: Erfitt fyrir alla ef Barcelona kæmi í ensku úrvalsdeildina
Vangaveltur um framtíð Barcelona í spænsku deildinni eru háværar í erlendum fjölmiðlum í dag eftir að Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, talaði um það í gær að Barcelona þyrfti möguleika að flýja spænsku deildina.

Tala um möguleika á því að Barcelona spili í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni
Framtíð Barcelona í spænsku deildinni gæti verið í uppnámi lýsi Katalónía yfir sjálfstæði frá Spáni eins og samþykkt var í kosningum í Katalóníu um helgina.

Harry Kane er ofar en Messi á 2017-listanum
Harry Kane bætti við tveimur mörkum í ensku úrvalsdeildina um helgina og hefur þar með skorað 36 mörk á árinu 2017.

Leikmenn Barcelona taka þátt í verkfallinu í Katalóníu
Barcelona liðið mun taka þátt í verkfallinu sem hefur verið skipulagt í Katalóníu á morgun þriðjudag.

Isco sá um Espanyol
Real Madrid vann góðan sigur á Espanyol í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn fór 2-0 fyrir heimamenn.

Börsungar skoruðu þrjú í þögninni
Barcelona er með fullt hús stiga eftir sjö umferðir í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir öruggan 3-0 sigur á Las Palmas á Nou Camp í dag.

Bæði kynin saman á liðsmynd
Leikmenn Barcelona sátu fyrir framan myndavélar í árlegri liðsmyndatöku eins og gengur og gerist. Það vakti hins vegar athygli að leikmenn karla- og kvennaliða félagsins sátu saman á mynd.

Varane dreymir um að spila út ferilinn með Real Madrid
Franski varnarmaðurinn Raphael Varane skrifaði nýverið undir nýjan samning við spænska stórveldið Real Madrid og gildir samningurinn til ársins 2022.

Fimmti lykilmaðurinn sem framlengir við Real Madrid
Raphaël Varane hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Real Madrid.

Stjóri Valencia meiddi sig við að fagna sigurmarki sinna manna
Marcelino García Toral, stjóri spænska liðsins Valencia, leyndi ekki gleði sinni þegar lið hans tryggði sér 3-2 sigur á Real Sociedad í gær.

Messi er magnaður en þessir tveir skora samt örar fyrir sín lið
Lionel Messi hefur verið magnaður að vanda með Barcelona í fyrstu umferðum spænsku deildarinnar en þrátt fyrir öll mörkin hans Messi eru tveir leikmenn í bestu deildum Evrópu með betri tölfræði.

Barcelona fór létt með Girona
Girona tók á móti Barcelona í síðasta leik dagsins í spænsku deildinni en fyrir leikinn var Barcelona í 1.sæti með 15 stig , einu stigi meira en Atletico Madrid í 2. sætinu.

Ivan Rakitic: Það er ekki auðvelt að spila með Messi
Króatinn Ivan Rakitic hefur talað um það hvernig sé að spila með argentínska knattspyrnusnillingnum Lionel Messi.

Tuttugu sendinga og 70 sekúndna sókn fyrir sigurmark Real Betis á móti Real Madrid | Myndband
Real Betis fór með öll þrjú stigin af Estadio Santiago Bernabéu í gærkvöldi eftir 1-0 sigur á heimamönnum í Real Madrid.

Costa-flækjan leyst
Diego Costa er genginn í raðir Atlético Madrid á nýjan leik. Madrídarliðið og Chelsea hafa komist að samkomulagi um kaup á framherjanum öfluga.

Ótrúleg markahrina Real Madrid á enda
Cristiano Ronaldo snéri aftur í lið Real Madrid í kvöld eftir leikbann en það breytti engu því liðið tapaði, 0-1, á heimavelli fyrir Real Betis.

Benzema á Bernabeu til 2021
Karim Benzema hefur skrifað undir nýjan fjögurra ára samning við Real Madrid.

Ronaldo loksins laus úr banninu
Cristiano Ronaldo snýr aftur í lið Real Madrid þegar það tekur á móti Real Betis í 5. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Gat ekki skorað fyrir West Ham en gerði þrennu á níu mínútum í gær
Ítalski framherjinn Simone Zaza fór á kostum þegar Valencia vann 5-0 sigur á Malága í spænsku úrvalsdeildinni í gær.

Í beinni: Barcelona - Eibar | Börsungar geta náð fimm stiga forskoti á toppnum
Barcelona hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa í spænsku úrvalsdeildinni með markatölunni 11-1.

Góð ferð meistaranna til Baskalands
Real Madrid gerði góða ferð til Baskalands og vann 1-3 sigur á Real Sociedad í 4. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.