Múlaþing

Um 500 manns óskast til starfa á Egilsstöðum og næsta nágrenni
Um fimm hundruð manns vantar nú til starfa við ýmis störf á Egilsstöðum og næsta nágrenni. En það sem verra er, það er ekkert húsnæði til fyrir það fólk, sem vildi ráða sig til starfa á svæðinu.

Axarvegi frestað um óákveðinn tíma vegna þensluniðurskurðar
Uppbygging heilsársvegar um Öxi, milli Egilsstaða og Djúpavogs, sem til stóð að hefja í vor, er komin í salt vegna niðurskurðar í vegagerð. Hvenær ráðist verður í verkið skýrist væntanlega í vor við gerð næstu fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar.

Frábær fimleikaaðstaða á Egilsstöðum
Fimleikar eru sú íþróttagrein á Egilsstöðum og nágrenni, sem hefur slegið hvað mest í gegn á svæðinu en nú eru um fjögur hundruð börn og unglingar að æfa fimleika hjá Hetti. „Fimleikar eru geggjaðir“, segir formaður Fimleikadeildar Hattar.

„Þau þurftu að skapa sér allt úr því sem þau höfðu hér“
Námið í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað var fyrst til að byrja með tveggja vetra nám í húsmóðurfræðum en þó með mesta áherslu á fög eins og íslensku, dönsku,stærðfræði og matarefnafræði. Einnig var súrkálsgerð kennd. Stúlkur fengu eingöngu inngöngu í skólann á fyrstu árum hans.

Margvíslegar verðhækkanir um áramót
Landsmenn geta átt von á margvíslegum verðhækkunum um áramótin en misjafnt er hvað snertir hvern. Vísir fór á stúfana og skautaði yfir landslagið hvað varðar verðhækkanir á þjónustu á landinu. Eðli máls samkvæmt er listinn þó langt í frá tæmandi.

Málar á gömul gluggatjöld á Seyðisfirði sem heilla þjófa
Listamaðurinn „Tóti Ripper” eins og hann kallar sig á Seyðisfirði kallar ekki allt ömmu sína þegar kemur að því að mála því hann málar myndirnar sínar á gömul gluggatjöld þegar hann hefur ekki efni á því að kaupa striga.

Villi Neto í The Witcher: „Ég er þarna í hlutverki durgslegs álfs“
Leikaranum Vilhelm Neto bregður fyrir í glænýrri seríu af þáttaseríunni vinsælu The Witcher. Þættirnir voru að stórum hluta teknir upp hér á landi á Djúpavogi og Berufirði meðal annars. Villi segir að um stærsta verkefni á hans ferli sé að ræða.

Gerir ekki upp á milli samgönguframkvæmda á Austurlandi
Miklar samgönguframkvæmdir eru að dagskrá á Austurlandi eins og Fjarðarheiðargöng, nýr vegur um Öxi, ný brú yfir Lagafljót og svo stendur til að stækka flugvöllinn á Egilsstöðum.

Áhugamálið varð að atvinnu: Frá Egilsstöðum um alla Evrópu
Stefán Númi Stefánsson er eini atvinnumaður Íslands í amerískum fótbolta og leikur með stórliði Potsdam Royals í Þýskalandi. Sem ungur drengur á Egilsstöðum óraði hann ekki fyrir því að komast á þann stað sem hann er á í dag.

Skipuð í embætti framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur skipað Ingibjörgu Halldórsdóttur í embætti framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs frá 1. janúar.

Skólameistari Hallormsstaðaskóla segir snjallsíma heilsuspillandi
„Við erum að fara inn í nýjan heim, sem er kannski ekki góður og hollur fyrir okkur“, segir skólameistari Hússtjórnarskólans á Hallormsstað á Héraði, og vísar þar í notkun á samfélagsmiðlum, sem hún segir heilsuspillandi. Símar eru bannaðir í hádegismat í skólanum en leyfðir að öðru leyti.

Átta ára fangelsi yfir Árnmari endanleg niðurstaða
Landsréttur staðfesti í dag átta ára fangelsisdóm yfir Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni fyrir skotárás á Egilsstöðum í ágúst í fyrra.

Tillögu fulltrúa VG í Múlaþingi um fýsileika kjarnorkuvers hafnað
Tillögu sveitarstjórnarfulltrúa Vinstri grænna í Múlaþingi um að sveitarfélagið ráðist í gerð fýsileikakönnunar um uppsetningu og rekstur kjarnorkuvers var hafnað á fundi sveitarstjórnar í gær.

Segir mikla ánægju með heimastjórnirnar í Múlaþingi
Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að hinar svokölluðu heimastjórnir sveitarfélagsins hafa reynst einstaklega vel frá því að þeim var komið á fót. Þær eru nefndir í fjórum byggðakjörnum innan sveitarfélagsins og er markmið þeirra að tryggja áhrif og aðkomu heimamanna á hverjum stað að ýmsum ákvörðunum sveitarfélagsins, sem snúa að þeirra nærumhverfi.

Vill bora öll jarðgöng sem þörf er á hérlendis á næstu þrjátíu árum
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vill að á næstu þrjátíu árum verði reynt að bora öll þau jarðgöng sem þörf er á hérlendis en fjármagna þau í allt að fimmtíu ár eftir það.

Efins um sameiningu Skógræktar og Landgræðslu í eina stofnun
Nýjar höfuðstöðvar Skógræktar- og landgræðslu gætu átt heima á Egilsstöðum, Selfossi, Gunnarsholti eða á Akureyri. Þetta segir skógræktarstjóri, sem situr á Egilsstöðum en Landgræðslustjóri er í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Stofnanirnar verða formlega sameinaðar um áramótin 2023 til 2024.

Efna til viðbótar leiðangurs í von um stærri loðnuvertíð
Hafrannsóknastofnun og útgerðir loðnuskipa hafa sameinast um viðbótar leitarleiðangur í von um að meiri loðna finnist fyrir komandi vertíð. Útgerðin mun greiða kostnaðinn og verður lagt í hann strax eftir helgi.

Kröfðust sex hundruð milljóna en fá ekki krónu
Forsvarsmenn tveggja eignarhaldsfélaga utan um fólksflutninga á Austurlandi fá ekki krónu frá Sambandi sveitarfélagi á Austurlandi. Félögin tvö höfðu krafið sambandið um tæpar 600 milljónir króna í skaðabætur lögbanns sem sett var á akstur þeirra á milli Hafnar og Egilsstaða.

Óvissustigi á Austurlandi aflýst
Ríkislögreglustjóri hef ákveðið að aflýsa óvissustigi á Austurlandi vegna skriðuhættu. Óvissustig var sett 23. nóvember síðastliðinn vegna mikillar rigningar á landshlutanum í nóvember.

Eingöngu kennt á ensku í Hallormsstaðaskóla
Fimmtán nemendur eru nú í Hússtjórnarskólanum á Hallormsstað þar sem fjölbreytt kennsla fer fram. Allt nám í skólanum er kennt á ensku.

Móttaka flóttamanna á Austurlandi gengur einstaklega vel
Flóttamönnum frá Úkraínu, sem búa nú á Eiðum býðst nú allskonar atvinna á Austurlandi. Forseti sveitarstjórnar Múlaþings vonar að fólkið verði ekki lengi á Eiðum, heldur komi inn í samfélagið, sem fyrst, hvort sem það er í Múlaþingi eða Fjarðabyggð.

Barnshafandi kona á Egilsstöðum þarf að flytja með fjölskyldu sína
Barnshafandi kona á Austurlandi þarf að flytja suður með fimm manna fjölskyldu sína og hundinn yfir jól og áramót því hún getur ekki fætt barnið sitt í Neskaupstað. Ástæðan er sú að það verður engin skurðlæknir þar á vakt yfir jólahátíðina.

Staðan á Seyðisfirði mun betri núna en fyrir tveimur árum
Yfirlögregluþjónn á Austurlandi segir að óvissuástand vegna skriðuhættu verðu áfram í gildi fram yfir helgi. Minna hafi rignt en búist var við og staðan mun betri en þegar aurskriður féllu á Seyðisfirði fyrir tveimur árum.

Seyðfirðingar áhyggjufullir vegna mikilla rigninga
Íbúar á Seyðisfirði hafa áhyggjur, sem eðlilegt er af mikilli rigningu og hættu á aurskriðum í bæjarfélaginu en þar hefur rignt meira og minna síðustu viku og ekkert lát virðist vera á rigningu þar á næstunni.

Funda með íbúum vegna mikillar úrkomu
Sveitarstjórn Múlaþings hefur boðað til íbúafundar með íbúum Seyðisfjarðar vegna mikillar úrkomu undanfarinna daga.

Eðlilegt að menn séu á tánum vegna rigninga á Seyðisfirði
Eftirlit með hreyfingu í jarðvegi á Seyðisfirði hefur verið aukið vegna mikillar úrkomu sem er spáð næstu vikuna. Veðurfræðingur segir úrkomuákefð á landinu nokkuð óeðlilega miðað við árstíma.

Vök Baths hlutu Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar
Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar voru afhent í dag í nítjánda sinn en það voru Vök Baths á Egilsstöðum sem hlutu verðlaunin að þessu sinni. Eliza Reid afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Talsmenn Súðavíkur- og Fljótaganga segja ekki boðlegt að bíða í áratugi
Talsmenn sveitarfélaga sem þrýsta á Súðavíkurgöng fyrir vestan og Fljótagöng fyrir norðan segja þessi verkefni það brýn að ekki sé hægt að bíða eftir því að jarðgangagerð klárist á Mið-Austurlandi. Áformað er að samgönguáætlun verði endurskoðuð á Alþingi eftir áramót.

Fönguðu lifandi leðurblöku
Leðurblaka, svokölluð trítilblaka, fannst um borð í skipi á veiðum djúpt suðaustur af Íslandi í síðustu viku. Skipverjar fönguðu hana lifandi og komu til Náttúrustofu Austurlands.

Um leiðarval að Fjarðarheiðargöngum
Á fundi sveitarstjórnar Múlaþings þann 14. september síðastliðinn var ákvörðun umhverfis- og framkvæmdaráðs um leiðarval vegna Fjarðarheiðarganga Héraðsmegin staðfest. Var þar með samþykkt að vegur að Fjarðarheiðargöngum liggi um þá leið sem Vegagerðin hefur kynnt sveitarfélaginu og kölluð er hin nýja suðurleið.