
TikTok

TikTok vinsælasta vefsíða ársins
Samfélagsmiðillinn og myndbandaveitan TikTok tók nýverið fram úr leitarvélinni Google og er orðin vinsælasta vefsíða ársins. Miðillinn hefur náð gríðarlegum vinsældum á stuttum tíma.

Byrjaði sem flöskustrákur á B5 en skemmtir nú fleiri milljónum manns út um allan heim
Fleiri milljónir manns út um allan heim horfa á íslensku TikTok-stjörnuna Lil Curly. Fyrir nokkrum mánuðum flutti Curly til London þar sem hann hugðist stækka TikTok reikning sinn enn frekar. En London ævintýrið reyndist ekki vera það sem hann hafði séð fyrir sér og ákvað hann því að flytja aftur heim. Ekkert lát er þó á vinsældum Curly og bætast um fimm þúsund manns við fylgjendahóp hans á degi hverjum.

TikTok-stjarnan Huey Haha er látin
Bandaríska TikTok-stjarnan og grínistinn Huey Haha er látinn, 22 ára að aldri.

Rúmlega níræð kona ökklabrotin eftir harkalegt dyraat
Kona á tíræðisaldri slasaðist alvarlega þegar gert var dyraat á heimili hennar í upphafi viku. Lögreglu hafa verið að berast tilkynningar undanfarið um dyraat, sem er óvenjulega harkalegt vegna tísku á TikTok.

Sérfræðingar frá TikTok, Spotify og Nike væntanlegir til landsins
Fulltrúar frá alþjóðlegum stórfyrirtækjum á borð við TikTok, Spotify, Nike, Smirnoff og Hubspot koma fram á ráðstefnu sem auglýsingastofan Sahara stendur fyrir í Gamla bíói þann 5. nóvember.

„Þú þarft að vera þú sjálfur því það er það sem mun laða fólk að þér“
„Þetta var bara eitthvað hobbý. Maður var kannski með einhverja drauma en ég bjóst ekkert við því að þeir myndu endilega rætast,“ segir Embla Wigum, ein stærsta TikTok-stjarna okkar Íslendinga. En rúmlega 27 milljónir manns hafa horft á vinsælasta myndbandið hennar.

Lætur æskudrauminn rætast og leggur land undir fót
Æskudraumur athafnamannsins Nökkva Fjalars Orrasonar rætist í dag þegar hann flytur til London, þar sem hann hyggst víkka út starfsemi fyrirtækis síns Swipe Media. Óhætt er að segja að Nökkvi sé kominn langt síðan hann gerði afþreyingarefni fyrir menntskælinga með hópnum 12:00 fyrir rúmum níu árum síðan. Nökkvi segir lykilinn að velgengninni felast í litlu skrefunum.

Kennarar ráðalausir vegna víðtæks en óskiljanlegs þjófnaðar
Það geisar þjófnaðarfaraldur í íslenskum grunnskólum, þar sem eftirsóttasti fengurinn eru fábrotnir innanstokksmunir eins og klukkur eða skilti. Sökudólgarnir eru undir alþjóðlegum áhrifum og æðsta takmark þeirra er að gorta sig af þýfinu á TikTok.

Fyrsti ráðherra Íslands á TikTok
Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra hefur nú birt sitt fyrsta TikTok myndband.

TikTok-stjarna skotin til bana
Hinn nítján ára gamla TikTok-stjarna Anthony Barajas var skotinn til bana í síðustu viku. Fjölskylda hans greindi frá andlátinu á laugardaginn.

Hafði varla snert eldavél en deilir nú uppskriftum með þúsundum fylgjenda
Förðunarfræðingurinn Tinna Þorradóttir var með þeim fyrstu til þess að hleypa fólki inn í líf sitt á samfélagsmiðlinum Snapchat. Fjöldi fylgjenda horfði á förðunarmyndbönd sem hún tók inni í herbergi þar sem hún bjó hjá foreldrum sínum. Í dag er Tinna verðandi tveggja barna móðir og hefur slegið í gegn fyrir uppskriftir sem hún deilir á Instagram og TikTok.

Álit eldri kynslóðarinnar á TikTok: „Að mörgu leyti finnst mér unga fólkið skemmtilegra en það eldra“
Fulltrúum eldri kynslóðarinnar sem fréttastofa ræddi við líst vel á samfélagsmiðilinn TikTok. Þeir segja unga fólkið í dag skemmtilegra en það eldra og ein gæti vel hugsað sér að stofna sinn eigin TikTok reikning.

TikTok stjarna missti það þegar Katrín Jakobsdóttir byrjaði að fylgja henni
Robyn Schall er grínisti frá New York City sem vakti mikla athygli á samfélagsmiðlinum TikTok á árinu.

Hættuleg einkaherbergi, sjálfsmorðsáskoranir og einelti
Elísabet Ólafsdóttir grunnskólakennari á yngsta stigi og móðir tveggja barna í grunnskóla hefur verulegar áhyggjur af samfélagsmiðlanotkun barna og segir foreldra þurfa að átta sig á hættunni sem fylgir þessu miðlum.

Þóra segist ekki bera ábyrgð á fölskum TikTok-aðgangi
„Jæja, nú les ég á hinum ýmsu miðlum að ég sé komin með reikning á Tik Tok. Ég geri ráð fyrir að þeir sem mig þekkja viti að það er ekki rétt,“ skrifar Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eiginkona Bjarna Benedikssonar fjármála- og efnahagsráðherra í færslu á Facebook í dag.

Sprenghlægileg TikTok myndbönd
TikTok er snjallforrit þar sem notendur geta hlaðið upp myndböndum og sömuleiðis horfa á myndbönd annarra notenda.

Förðunartrendin sem hafa slegið í gegn á TikTok
TikTok er heitasti miðillinn í dag til að færa okkur nýjustu trendin beint í lófann, segja Heiður Ósk og Ingunn Sig, eigendur Reykjavík Makeup School. Í hlaðvarpsþættinum HI beauty fóru þær yfir þau förðunar og hár trend sem hafa gert allt vitlaust á TikTok.

Dómari stöðvar bann Bandaríkjastjórnar á WeChat
Bandarískur dómari hefur sett lögbann á tilraunir bandarískra yfirvalda til að banna kínverska samskiptamiðilinn WeChat.

Trump gefur TikTok blessun sína
Kínverska fyrirtækið ByteDance, eigandi samfélagsmiðilsins TikTok hefur óskað eftir því að virði TikTok verði metið á 60 milljarða Bandaríkjadala, eða um 8.178 milljarða íslenskra króna.

Hóta að banna Tiktok af þjóðaröryggisástæðum
Bandaríkjastjórn ætlar að banna fólki sem er statt í Bandaríkjunum að sækja kínverska samfélagsmiðiðlsforritð Tiktok og samskiptaforritið Wechat.

TikTok tekur risastökk meðal Íslendinga
Facebook er þó enn vinsælasti samfélagsmiðillinn á Íslandi.

YouTube keppir við TikTok með forritinu Shorts
Myndbandaveitan YouTube, sem er í eigu Google, tilkynnti í dag að nýtt forrit á vegum fyrirtækisins muni líta dagsins ljós en það mun vera miðill fyrir stutt myndbönd líkt og samfélagsmiðillinn TikTok sem nýtur gríðarlegra vinsælda.

Ekkert verður af kaupum Microsoft á TikTok
Tölvurisinn Microsoft tilkynnti um það í nótt að ekkert verði af fyrirhuguðum kaupum þess á starfsemi kínverska samskiptamiðlilsins TikTok í Bandaríkjunum.

Arnar Gauti ósáttur við Mannlíf og segir þetta leikið myndband
TikTok stjarnan Arnar Gauti, betur þekktur sem Lil Curly á samfélagsmiðlinum, er ósáttur umfjöllun Mannlífs um myndbandið hans. Þar er TikTok myndband hans frá B5 sagt „gróft og fyrirsögn fréttarinnar er Kvenhatur á B5 – Milljónir hafa séð gróft myndband Arnars Gauts: „Svona nálgast þú tíkur.“

Íslenskur tvíkynhneigður prestur slær í gegn á TikTok
Sindri Geir Óskarsson sóknarprestur í Glerárkirkju á Akureyri hefur að undanförnu vakið töluverða athygli fyrir að nýta sér samfélagsmiðilinn TikTok í starfi sínu, en hann byrjaði á miðlinum til að hafa ofan af fyrir sér og börnunum sínum þremur í samkomubanninu í vor.

TikTok höfðar mál gegn ríkisstjórn Trump vegna yfirvofandi banns
Kínverska snjallforritið TikTok ætlar að höfða mál gegn ríkisstjórn Trump vegna yfirvofandi yfirvofandi banns á forritinu í Bandaríkjunum, sem Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti í síðasta mánuði.

Kína erfiðari andstæðingur en Sovétríkin
Vegna efnagsburða Kína er ríkið að mörgu leyti öflugari andstæðingur Bandaríkjanna en Sovétríkin voru á sínum tíma.

Trump skipar fyrirtækjum að slíta tengslum við TikTok
Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifað undir tilskipun sem ætlað er að koma höggi á kínversku samskiptamiðlana TikTok og WeChat.

Segir að Bandaríkin ættu að fá hluta af TikTok-sölunni
Donald Trump Bandaríkjaforseti telur að ríkisstjórn Bandaríkjanna ætti að fá hlut af mögulegri sölu kínverska fyrirtækisins ByteDance á samskiptamiðlinum TikTok til Microsoft, ef af henni verður.

Microsoft heldur áfram viðræðum um kaup á TikTok
Bandaríski tæknirisinn Microsoft hefur staðfest að hann muni áfram eiga í viðræðum við fyrirtækið ByteDance, sem á samskiptamiðilinn TikTok, um kaup þess fyrrnefnda á bandaríska hluta miðilsins.