Ástin á götunni

KR með gríðarlegt tak á fornu fjendunum frá Akranesi
Besta deild karla í fótbolta hefst að nýju í kvöld eftir dágóða pásum sökum leikja íslenska A- og U-21 árs landsliðsins. Íslands- og bikarmeistarar Víkings heimsækja Vestmannaeyjar á meðan KR tekur á móti ÍA í Vesturbænum.

Breiðablik vildi áfrýja leikbanni Omar Sowe: Beiðninni hafnað
Breiðablik, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, óskaði eftir að áfrýja niðurstöðu aga- og úrskurðarnefndar Knattspyrnusambands Íslands í máli Omar Sowe. Hann var dæmdur í tveggja leikja bann eftir að stuðst var við myndbandsupptöku af atviki sem átti sér stað í leik Leiknis Reykjavíkur og Breiðabliks.

Elín Metta fór meidd af velli og EM mögulega í hættu
Elín Metta Jensen, framherji Íslandsmeistara Vals og íslenska landsliðsins, meiddist er Valur heimsótti Selfoss í Bestu deild kvenna á þriðjudag. Gestirnir frá Hlíðarenda unnu 1-0 útisigur en Elín Metta þurfti að fara meidd af velli eftir rúmlega klukkustundarleik.

„Auðvitað þarf að fagna góðum sigrum“
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, varð eðlilega sáttur með 3-0 útisigur liðsins gegn Þrótti í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þróttur R.-Breiðablik 0-3 | Blikar skutu sér upp í annað sæti
Eftir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Breiðablik nú unnið þrjá leiki í röð. Liðið er komið upp í annað sæti Bestu-deildar kvenna í fótbolta eftir 0-3 sigur gegn Þrótti í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA-KR 3-3 | Sex marka jafntefli fyrir norðan
Þór/KA og KR buðu upp á markaveislu á Akureyri í kvöld þegar liðin skildu jöfn í Bestu deild kvenna, 3-3.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss-Valur 0-1| Anna Rakel hetja Vals
Valur gerði góða ferð á Suðurlandið og vann 0-1 sigur á Selfossi. Anna Rakel Pétursdóttir kom Val yfir á 19. mínútu og reyndist það vera sigurmark leiksins.

„Ég er mjög ánægður með þessi þrjú stig“
Jonathan Glenn, þjálfari ÍBV, var sáttur með sigurinn á móti Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Með sigrinum lyfti ÍBV sér upp í 2. sæti deildarinnar, í bili. Mark ÍBV kom undir lok fyrri hálfleiks, lokatölur 1-0.

Umfjöllun og viðtöl: Afturelding-ÍBV 0-1 | Eyjakonur sóttu stigin þrjú
Nýliðar Aftureldingar tóku á móti ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta. Afturelding er í fallsæti á meðan ÍBV er í 6. sæti. Eina mark leiksins kom rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og var það Olga Sevcova sem kom ÍBV í 1-0.

Stórleikir í Laugardal og á Selfossi
Níunda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta fer fram í kvöld. Tveir stórleikir eru á dagskrá og þá verða herlegheitin gerð upp í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport klukkan 22.00 í kvöld.

„Fyrsta skipti í langan tíma sem þú sérð ekki Val og Breiðablik tróna tvö á toppnum“
Mikil spenna ríkir fyrir 9. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Ásamt því að fara yfir komandi umferð ræddi Helena Ólafsdóttir, þáttastjórnandi, aðeins íslenska kvenna landsliðið en gestir hennar að þessu sinni eiga samtals að baki 217 A-landsleiki.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik-Þróttur R. 3-1 | Bikarmeistararnir seinasta liðið í undanúrslit
Breiðablik er komið áfram í undanúrslit Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu eftir að liðið hafði betur gegn Þrótti í átta liða úrslitunum 3-1.

Boðaðir í landsliðsverkefni rétt fyrir miðnætti | Einum lofað byrjunarliðssæti sem ekkert varð úr
Þrír leikmenn Breiðabliks voru kallaðir inn í A-landslið karla í fótbolta á dögunum er ljóst var að U-21 árs landsliðið ætti óvænt möguleika á að komast á lokamót EM. Forráðamenn Breiðabliks voru ósáttir með hvernig staðið var að málum og hafa komið sínum kvörtunum áleiðis til KSÍ.

Leggur skóna á hilluna eftir enn ein meiðslin og fer að þjálfa í heimalandinu
Taylor Bennett, varnarmaður Aftureldingar í Bestu deild kvenna, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla á mjöðm. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins.

„Sé annan brag á Kristínu Ernu núna en ég hef séð í langan tíma“
Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði sigurmark ÍBV er liðið lagði Keflavík 3-2 í 8. umferð Bestu deildar kvenna á dögunum. Farið var yfir frammistöðu Kristínar Ernu í Bestu mörkunum að leik loknum.

„Mikil áhætta í því fólgin að halda sig við þetta á meðan það gengur ekki betur“
„Það er alltaf gott þegar þjálfari er ánægður, þá er ekkert hægt að kvarta,“ sagði Helena Ólafsdóttir, stjórnandi Bestu markanna, eftir viðtal þjálfara Aftureldingar sem hafði rétt á undan tapað 6-1 fyrir Íslandsmeisturum Vals.

Sjáðu hraðþrennu Kötlu, sigurmark Hildar og Eyjakonur bæta fyrir mistökin
Mörkunum rigndi í 8. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta og hér á Vísi má sjá öll mörkin úr umferðinni. Sautján ára leikmaður Þróttar skoraði þrennu á tuttugu mínútum.

Þrennuhetja Þróttar best og Hildur skoraði flottasta markið
Áttunda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta var gerð upp í síðasta þætti af Bestu mörkunum. Lið umferðarinnar var valið sem og besti leikmaðurinn ásamt besta markinu.

Dæmdur í tveggja leikja bann eftir að stuðst var við myndbandsupptöku
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur dæmt Omar Sowe, framherja Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta, í tveggja leikja bann.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-Afturelding 6-1 | Meistararnir ekki í vandræðum með botnliðið
Íslandsmeistarar Vals fengu nýliða og botnlið Aftureldingar í heimsókn á Hlíðarenda í Bestu deild kvenna. Valskonur mættu töluvert ákveðnari til leiks og unnu leikinn með fimm marka mun, 6-1.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik-Selfoss 1-0 | Heimaliðið upp fyrir gestina í töflunni
Breiðablik vann Selfoss 1-0 í lokuðum leik. Bæði lið sköpuðu sér lítið af færum en Breiðablik var sterkari aðilinn og átti sigurinn skilið. Með sigri komst Breiðablik upp fyrir Selfoss i töflunni.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Keflavík 3-2 | Eyjakonur tóku stigin þrjú í markaleik
Það gustaði duglega úr austri þegar ÍBV tók á móti Keflavík á Hásteinsvelli í dag í fimm marka leik sem endaði 3-2 fyrir Eyjastúlkum. Þó stigin hafi öll orðið eftir í Vestmannaeyjum voru þau ekki auðfengin.

Umfjöllun: Stjarnan - Þór/KA 5-0 | Stjarnan komst upp að hlið Vals á toppi deildarinnar
Stjarnan jafnaði Val að stigum á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta með afar sannfærandi 5-0 sigri sínum þegar liðið fékk Þór/KA í heimsókn á Samsung-völlinn í áttundu umferð deildarinnar í dag.

Stjarnan setur gríðarlega pressu á Val með sigri
Fari svo að Stjarnan vinni Þór/KA í Bestu deild kvenna í dag þá er liðið með jafn mörg stig og Íslandsmeistarar Vals á toppi deildarinnar.

Valgeir og Logi kallaðir inn í U21 landsliðið
Tvær breytingar verða á leikmannahópi U21 árs landsliðsins í fótbolta milli leikja í undankeppni EM.

Skiptir máli að vera með leikmann sem brennur fyrir klúbbinn
Farið var yfir fjörugan leik Þór/KA og Keflavíkur í Bestu Mörkunum. Liði Þórs/KA var hrósað í hástert en þó bent á að þær þyrftu að ná meiri stöðugleika í leik sinn til að klífa töfluna.

HK áfram með fullt hús stiga á meðan Fylkir er án stiga
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í dag. HK vann 3-0 útisigur á Haukum á meðan Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. vann 2-1 heimasigur á Fylki.

Fylkir pakkaði Vestra saman
Fylkir vann Vestra 5-0 í eina leik dagsins í Lengjudeild karla í fótbolta. Benedikt Daríus Garðarsson skoraði þrennu fyrir heimamenn.

„Í dag er hugur minn bara við þetta starf“
„Ég held það sé rosalega auðvelt að standa hérna og segja nei þegar manni hefur ekki verið boðið eitt né neitt,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks um orðróma þess efnis að hann væri að taka við danska úrvalsdeildarliðinu AGF.

Umfjöllun og viðtöl: Valur-ÍBV 1-1| Ásdís Karen tryggði Val stig í uppbótartíma
Valskonum tókst að kreista stig gegn ÍBV á heimavelli. Ásdís Karen Halldórsdóttir jafnaði leikinn í uppbótartíma en ÍBV hafði verið marki yfir frá því í byrjun síðari hálfleiks.