
Ástin á götunni

KSÍ hafnar kröfu KR
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur hafnað kröfu KR um sigur á HK í leik liðanna sem átti að fara fram í Bestu deild karla í knattspyrnu á dögunum.

Kristján tekjuhæsti þjálfarinn á Íslandi
Fyrrverandi þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í fótbolta, Kristján Guðmundsson, var tekjuhæsti þjálfari landsins í fyrra. Þar á eftir kemur Óskar Hrafn Þorvaldsson, nýr þjálfari KR í fótbolta karla.

Hafði gott af of löngu banni
Fyrirliði Fylkis segir að hann hafi mögulega bara haft gott af óþarflega löngu leikbanni í Bestu-deild karla. Árbæingar ætla að halda sæti sínu í deildinni.

Ísak Snær: Held að það sé alltaf einhvers staðar þarna aftast í hausnum
Ísak Snær Þorvaldsson, framherji Breiðabliks, skoraði í sínum þriðja leik í röð í kvöld í 3-1 heimasigri gegn Fram. Eftir úrslit kvöldsins er ljóst að Blikar eru komnir upp að hlið Víkings á toppi Bestu deildarinnar.

Uppgjörið: Víkingur R. - ÍA 1-2 | Skagamenn fyrstir til að vinna í Víkinni
Víkingar töpuðu í kvöld sínum fyrsta leik á heimavelli á tímabilinu þegar Skagamenn unnu 2-1 sigur í Fossvoginum. Víkingur og Breiðablik eru nú efst og jöfn á toppi Bestu deildarinnar.

Uppgjörið og viðöl: FH - Valur 2-2 | Ótrúleg dramatík í Kaplakrika
Ótrúlegar lokamínútur áttu sér stað þegar FH tók á móti Val í 19. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Kristinn Freyr Sigurðsson hélt að hann hefði tryggt Val stigin þrjú með marki þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma en fyrirliðinn Björn Daníel Sverrisson var á öðru máli og bjargaði stigi fyrir heimamenn með marki á 97. mínútu.

Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-1 | Jafna Víking að stigum á toppnum
Blikar jöfnuðu í kvöld Víkinga að stigum á toppi Bestu deildar karla með 3-1 sigri á Fram á Kópavogsvelli á meðan Víkingar töpuðu gegn ÍA í Fossvoginum.

Jákvætt að aðstoðarþjálfarinn sé ekki á bekknum
Kjartan Henry Finnbogason, aðstoðarþjálfari FH, gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi leiks liðsins við Val í Bestu deild karla í kvöld. Hann fagnar því að vera ekki til taks sem leikmaður, líkt og í síðasta leik.

Kæra KR tekin fyrir á morgun
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ mun taka fyrir kæru KR vegna fyrirhugaðs leiks liðsins við HK í Bestu deild karla fyrir á morgun. Leikurinn á að fara fram á fimmtudagskvöld.

Rúnar Páll skýtur á KR: Svona vinna „snillingarnir í Vesturbænum“
Spjót hafa beinst að Matthiasi Præst, leikmanni Fylkis, í vikunni eftir að KR tilkynnti um skipti hans í Vesturbæinn að leiktíðinni liðinni. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, gagnrýnir starfshætti KR-inga.

„Kjaftshögg þegar þú færð á þig mark og ert búinn að vera sterkari aðilinn“
„Blendnar tilfinningar, að mörgu leyti fannst mér við spila þennan leik mjög vel,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson eftir sinn fyrsta leik sem aðalþjálfari KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Liðið tapaði 2-0 fyrir Vestra fyrir vestan en Óskar Hrafn sá þó margt jákvætt í leik sinna manna.

„Eftir það fannst mér leikurinn vera nákvæmlega eins og við vildum hafa hann“
„Ótrúlega stoltur af liðinu og fannst strákarnir gefa allt í þetta,“ sagði Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var eðlilega mjög sáttur eftir að hans menn lögðu KR 2-0 í Bestu deild karla í knattspyrnu fyrr í dag. Um var að ræða fyrsta heimasigur Vestra í deildinni.

„Ég er mögulega búinn að spila minn síðasta leik“
„Nú get ég verið hin 99 prósentin af manninum sem ég er,“ segir fótboltamaðurinn Pablo Punyed sem varð fyrir áfalli á dögunum. Hann varð fyrir slæmum meiðslum sem munu halda honum frá vellinum næsta hálfa árið, hið allra minnsta. Á móti mun hann njóta meiri tíma með fjölskyldunni.

„Hann var ekki fallegur drengurinn“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, segir meiðslin sem Aron Elís Þrándarson varð fyrir í 2-1 sigri liðsins á Flora Tallinn í Sambandsdeild Evrópu í gær ekki vera alvarleg. Þó vissulega líti þau ekki vel út.

„Þetta er aðeins meira en bara fótboltaleikur“
Kristín Dís Árnadóttir er nýsnúin aftur til sinna heimahaga í Kópavogi og verður í liði Breiðabliks gegn Val í kvöld. Hún settist niður með móður sinni og sérfræðingum Stöðvar 2 Sports og hitaði upp fyrir bikarúrslitaleikinn.

Damir áfram í Kópavoginum
Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik út næstu leiktíð. Fyrri samningur gilti þar til í haust.

Gervigrasi KR lokað vegna slysahættu
Gervigrasi KR í Vesturbæ Reykjavíkur er ónýtt. Því hefur verið lokað vegna slysahættu.

Sálfræðingur íslenska Ólympíuliðsins lætur trúðana í Bestu deildinni heyra það
Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík ásamt því að vera sálfræðingur íslenska Ólympíuliðsins, hefur fengið nóg af því þegar þjálfarar í Bestu deild karla í knattspyrnu haga sér eins og trúðar á hliðarlínunni.

Fyrrverandi þjálfari Gróttu eftirsóttur
Chris Brazell var á dögunum sagt upp sem þjálfara Gróttu í Lengjudeild karla í fótbolta en félagið er í harði fallbaráttu. Hann staðfesti í stuttu spjalli við Vísi að nokkur lið í Bestu deild karla, sem og eitt í Bestu kvenna, hefði sett sig í samband en hann reiknar þó ekki með að fara neitt í dag, á Gluggadeginum sjálfum.

Stjarnan án þriggja lykilmanna gegn KA
Þrír lykilleikmenn Stjörnunnar voru í dag úrskurðaðir í eins leiks bann og verða því ekki með gegn KA á sunnudaginn, í Bestu deildinni í fótbolta.

Helgi Fróði á leið til Hollands
Helgi Fróði Ingason, leikmaður Stjörnunnar í Bestu deild karla í knattspyrnu, er á leið til Hollands og mun því ekki klára tímabilið með Stjörnunni.

Aðstoðarþjálfarinn Kjartan Henry á bekknum hjá FH
FH heimsækir KR í 18. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Athygli vekur að KR-ingurinn fyrrverandi, Kjartan Henry Finnbogason, og núverandi aðstoðarþjálfari FH er skráður á varamannabekk liðsins í kvöld.

Ein af hverjum fimm glímir við átröskun: „Grafalvarlegur geðsjúkdómur og því ber að taka alvarlega“
Niðurstöður rannsóknar sem alþjóðlegu leikmannasamtökin FifPro standa að leiða í ljós að ein af hverjum fimm atvinnukonum í knattspyrnu glímir við átröskun. Næringarfræðingur segir niðurstöðurnar sláandi. Verkefnastjóri Leikmannasamtakanna berst fyrir auknu fjármagni í íþróttahreyfinguna og kallar eftir íþróttasálfræðingum til starfa hjá öllum félögum.

„Þeim mun líða illa þegar þeir horfa á þetta aftur“
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, var verulega svekktur með 2-2 jafnteflið gegn Stjörnunni í kvöld en Halldór var allt annað en sáttur við dómgæsluna í kvöld.

„Þurfum bara að sætta okkur við þetta stig sem við unnum fyrir“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, segist vera sáttur með frammistöðu liðsins gegn KA nú í kvöld. Liðin gerðu 1-1 jafntefli sem Rúnar segir að séu vonbrigði miðað við hvernig leikurinn spilaðist.

„Vel gert hjá dómaranum að leyfa leiknum að fljóta“
Vestri náði í jafntefli gegn Íslandsmeisturum Víkings á heimavelli hamingjunnar 1-1 í 18. umferð Bestu deildarinnar. Vestri jafnaði leikinn á 83. mínútu eftir frekar tíðindalítinn leik.

Markadrottning Lengjudeildarinnar á leið til Portúgal
Bandaríski framherjinn Emma Hawkins sem raðað hefur inn mörkum fyrir FHL í Lengjudeildinni í sumar er á leið til Damaiense í portúgölsku deildinni.

Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 4-2 | Sanngjarn sigur Breiðabliks
Breiðablik tók á móti Þór/KA á Kópavogsvelli í dag og hafði betur í miklum markaleik. Leikar enduðu 4-2 fyrir Breiðablik og er liðið aðeins einu stigi frá toppliði Vals.

FHL upp í Bestu deildina
FHL tryggði sér í dag sæti í Bestu deild kvenna að ári þegar liðið lagði ÍBV örugglega 5-1. Þrjátíu ár eru liðin síðan lið frá Austurfjörðum lék síðast í efstu deild.

Spilaði sinn fyrsta leik á Íslandi í 18 ár
Landsliðsfyrirliðinn fyrrverandi, Aron Einars Gunnarsson, spilaði sinn fyrsta leik á Íslandi síðan 2006 þegar hann kom inn á sem varamaður í leik Þórs og Njarðvíkur í Lengjudeildinni í dag.