Umferð

Þrjúhundruð stöðvaðir og einn tekinn fyrir ölvunarakstur
Einn var gripinn grunaður um ölvunarakstur í aðgerðum lögreglu á Hringbraut í gær. Lögreglan lokaði Hringbraut til austurs í gær og lét alla ökumenn þar blása í áfengismæla.

Lokuðu Hringbraut til austurs og láta alla blása
Nokkur röð bíla hefur myndast á Hringbraut þar sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokað veginum og lætur alla sem keyra þar um blása í áfengismæla.

Tafir á umferð víða um höfuðborgarsvæðið eftir hádegið
Töluverðar umferðartafir hafa orðið á umferð í höfuðborginni eftir hádegi vegna umferðarslysa. Engir sjúkraflutningar eru þó skráðir hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Vilja ekki frétta það á Facebook hvort húsið þeirra verði fjarlægt
Margir íbúar við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði óttast nú að hús þeirra verði rifin eða færð svo hægt sé að rýmka til fyrir borgarlínu. Þeir saka bæinn um algert samráðs- og tillitsleysi í málinu.

Hart tekist á um bílaumferð um nýja miðbæ Selfoss
Íbúar Selfoss virðast þurfa að búa sig undir harðan ágreining um álitamál sem íbúar Reykjavíkur hafa deilt um í áraraðir, á að leyfa bílaumferð í miðbænum?

1.592 látist í umferðarslysum á Íslandi frá 1915
Frá því að fyrsta banaslysið í umferðinni var skráð á Íslandi árið 1915 hafa 1.592 látist í umferðinni, til og með 16. nóvember síðastliðnum. Sjö einstaklingar hafa látist það sem af er þessu ári.

Byltingarkenndar meðalhraðamyndavélar ófullkomnar en dekka stærra svæði
Tímamót verða í umferðareftirliti á Íslandi á morgun þegar lögregla byrjar að sekta fyrir of háan meðalhraða bifreiða í fyrsta skipti. Sektakerfið er einfalt þó þar sé örlítil gloppa sem óprútnir aðilar geta nýtt sér.

Aldrei meiri umferð um Hringveginn
Aldrei hefur fleiri bílum verið ekið um Hringveginn í októbermánuði og jókst umferðin um nærri 32 prósent frá sama tíma í fyrra. Mesta aukningin var á Mýrdalssandi þar sem umferðin reyndist 251 prósent meiri en í fyrra.

Varar við mikilli hættu í vetur
Á síðustu árum hefur reglulega verið hamrað á mikilvægi þess að nota hjálm við hjólreiðar. Hjólreiðamenn virðast nota hjálm í auknum mæli en nýtt og jafnvel stærra vandamál hefur nú skotið upp kollinum; rafhlaupahjól.

Tafir á umferð vegna áreksturs og malbikunar
Malbikun hefur staðið yfir á hægri akrein á Vesturlandsvegi til vesturs, á milli Víkurvegar og Suðurlandsvegar eftir hádegið í dag. Nokkur töf er á umferð inn í Reykjavík af þessum sökum. Sömuleiðis er töf á umferð út úr bænum vegna áreksturs.

Betri umferð
Samfélagið er smám saman að færast í fyrra horf frá því heimsfaraldur hóf göngu sína og umturnaði því skipulagi sem við eigum að venjast. Vissulega er þetta ekki búið en smám saman fækkar takmörkunum og má meðal annars merkja það á nýjustu umferðartölum. En aukinni umferð fylgir aukin hætta á árekstrum.

Óttast skort á vetrardekkjum á landinu
Sumir á landinu gætu lent í að fá ekki vetrardekk í ár vegna skorts á sendingum frá Asíu, að sögn Jóhanns Jónssonar, markaðs- og birgðastjóra Dekkjahallarinnar. Flestir dekkjasalar landsins hafa lent í einhverjum vandræðum með pantanir sínar í ár og fá hluta þeirra annaðhvort seint eða ekki.

Aldrei jafn mikil umferð á höfuðborgarsvæðinu í september
Aldrei áður hefur mælst jafnmikil umferð á höfuðborgarsvæðinu í septembermánuði. Var síðasti mánuður jafnframt næst mesti umferðarmánuður frá upphafi mælinga en örlítið meiri umferð mældist í maí 2019.

Hreyfihamlaðir megi leggja í almenn stæði á göngugötum
Handhafi stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða kvartaði til umboðsmanns Alþingis yfir ákvörðun Bílastæðasjóðs Reykjavíkur um að leggja á hann stöðubrotsgjald. Handhafinn hafði lagt bíl sínum í almennt stæði á göngugötu en Bílastæðasjóður taldi honum aðeins heimilt að leggja í sérmerkt bifreiðastæði fyrir hreyfihamlaða á göngugötu.

Umferð á Suðurlandsvegi komin í eðlilegt horf eftir bílslys
Fyrr í dag urðu miklar tafir á umferð milli Selfoss og Hveragerðis vegna áreksturs tveggja bíla. Nú er búið að greiða úr teppunni að sögn Lögreglunar á Suðurlandi.

Svona virka nýjar meðalhraðamyndavélar
Samgönguráðuneytið hefur veitt lögreglu heimild til að styðjast við nýjar hraðamyndavélar sem mæla meðalhraða bíla á löngum vegarkafla. Enn liggur ekki fyrir hvernig sektum fyrir of hraðan meðalakstur verður háttað.

Hálka á götum höfuðborgarinnar
Svo virðist sem veturinn komi snemma þetta árið og hafa einhverjir ökumenn orðið varir við hálku á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Setja upp meðalhraðamyndavélar á næstu mánuðum
Samgönguráðuneytið, Vegagerðin, Samgöngustofa og Ríkislögreglustjóri staðfestu í dag nýjan samstarfssamning um sjálfvirkt hraðaeftirlit með myndavélum í umferðinni. Setja á upp slíkar myndavélar á þjóðvegum landsins á næstu mánuðum.

Vilja skipta út yfirfullu hringtorgi fyrir betri lausn
Umferðin yfir Ölfusarbrú á Selfossi var það þung í sumar að kalla þurfti til lögreglu til að stýra umferð því bílaröðin hefur náð út í Ölfus. Nú eru uppi hugmyndir að breyta þessum gatnamótum til að greiða úr flöskuhálsinum.

Þurfti að stöðva viðtal vegna umferðarlagabrots fyrir framan nefið á lögreglu
Það ríkir ákveðið stjórnleysi á göngugötunni á Laugavegi á milli Klapparstígs og Frakkastígs.

Hættuspil íslensks ökuníðings vekur heimsathygli
Bandaríska myndbandsbloggið World Star Hip Hop birti nýlega myndband frá Íslandi, þar sem sjá má ungan bílstjóra leika hættulegan leik við lögregluna.

Umferðaraukning á Hringveginum en samdráttur á höfuðborgarsvæðinu
Umferð á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um rúmlega þrjú prósent í júlí á meðan umferð á Hringveginum hefur aldrei verið meiri í júlí. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Af þessum tölum má álykta að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi flykkst út á Hringveginn í júlí.

Veittu sautján ára stút eftirför
Lögregluþjónar veittu bíl eftirför í nótt eftir að ökumaður hans neitaði að stöðva við merkjagjöf. Bílnum var ekið á miklum hraða á undan lögreglu og fór ökumaðurinn meðal annars yfir gatnamót á rauðu ljósi.

Metumferð um Hringveginn
Umferð um Hringveginn jókst um nærri sex prósent í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Met var slegið í mánuðinum en umferðin reyndist 2,3 prósentum meiri en í júlí 2019 þegar fyrra met var sett.

Umferðin þung á landinu en víða eru tjaldstæði enn laus
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið þung í dag, eftir að hafa verið stigvaxandi alla vikuna. Stærsta ferðahelgi ársins er gengin í garð og stríður straumur bíla hefur verið á leið úr Reykjavík, um Vesturlandsveg og austur fyrir fjall.

Þétt umferð á milli Reykjavíkur og Selfoss
Mikil umferðarteppa er á þjóðveginum úr Reykjavík og yfir Hellisheiði. Frá miðnætti hafa meira en sex þúsund bílar keyrt yfir Hellisheiðina og rúmlega sjö þúsund keyrt um Sandskeið á sama tíma.

Örtröð við Selfoss
Umferð á veginum frá Hveragerði til Selfoss hefur þyngst mikið og er nú komin biðröð frá Selfossi að Ingólfshvoli.

Umferðartafir á Miklubraut og Vesturlandsvegi
Talsverðar umferðartafir eru nú á Vesturlandsvegi og Miklubraut til austurs, vegna framkvæmda sem standa þar yfir.

Dusterinn er kominn aftur á kreik
Þeir sem fara akandi um stræti Reykjavíkur nú um mundir fara fæstir varhluta af kunnuglegri þróun sem orðið hefur í borginni á allra síðustu vikum. Dacia Duster, uppáhaldsbílaleigubíll ferðamannsins, er aftur kominn á kreik.

Tilmæli um lækkun umferðarhraða í þéttbýli í 30 km á klukkustund
Sameinuðu þjóðirnar vekja athygli á því að á hverju ári deyja rúmlega 1,3 milljónir manna í umferðarslysum.