Umferð

Ferðaþyrstir Íslendingar nenna ekki heim
Isavia gerir ráð fyrir sex til sjö hundruð komum og brottförum á Keflavíkurflugvelli yfir páskana, frá síðasta laugardegi til annars í páskum. Þetta er margfalt á við það sem var í fyrra þegar kórónuveirufaraldurinn geisaði en þá voru komur og brottfarir um eitt hundrað um páskana.

Röskun á umferð í Reykjavík vegna Netflix-myndar
Víðtækar vegalokanir eru í Reykjavík um helgina, bæði fyrir akandi og gangandi vegfarendur, í tengslum við kvikmyndatökur á myndinni Heart of Stone. Gal Gadot, Jamie Dornan og fleiri stórstjörnur leika í Netflix-myndinni og verða við störf í miðbæ Reykjavíkur næstu daga.

Andstaða við skipulagðar umferðartafir
Umferðatafir hafa mjög neikvæð áhrif á efnahag, draga úr kaupmætti launa, skerða hagnað fyrirtækja, og draga þar af leiðandi úr tekjum ríkis og sveitarfélaga. Þá ganga umferðatafir á frítíma fólks og því ekki undarlegt að það sé almennt mótfallið vísvitandi umferðartöfum.

Conor handtekinn fyrir ofsaakstur
Írski bardagakappinn Conor McGregor var handtekinn í Dublin á þriðjudaginn vegna ofsaaksturs.

Löng bílaröð eftir slys á Holtavörðuheiði
Umferð um Holtavörðuheiði var lokað á tíunda tímanum í morgun vegna umferðarslyss. Enn er lokað fyrir umferð nú tveimur klukkustundum síðar en reiknað er með að takist að opna fyrir umferð á allra næstu mínútum.

Á þriðja tug þurft að biðja um aðstoð björgunarsveita á Reykjanesi
Á þriðja tug ökumanna hafa þurft á aðstoð björgunarsveita að halda í morgun vegna slæmrar færðar og veðurs. Flest verkefni björgunarsveita á landinu í dag hafa verið á Suðvesturhorninu.

Vegir um Hellisheiði, Þrengsli og Kjalarnes lokaðir
Vegir á Suðvesturlandi eru víða lokaðir en vegna lægðarinnar sem nú gengur yfir landið má reikna með að skyggni og færð geti versnað hratt. Hálka er á öllum leiðum á höfuðborgarsvæðinu.

Hæg umferð í höfuðborginni
Mikil hálka er á höfuðborgarsvæðinu og það gengur á með dimmum éljum. Umferðin gæti orðið hæg í morgunsárið vegna lélegrar færðar.

Þriggja bíla árekstur í fljúgandi hálku á Reykjanesbraut
Þrír bílar skullu saman á Reykjanesbraut rétt í þessu. Sjúkraflutningalið er enn á vettvangi og gera má ráð fyrir töfum á umferð.

Enn eitt slysið á Sogavegi og sumir kenna hraðahindrun um
Íbúar í og við Sogaveg í póstnúmeri 108 í Reykjavík sjá hlutina ólíkum augum þegar þeir velta fyrir sér hörðum árekstri sem varð um miðnætti í gærkvöldi. Þá var bíl ekið á þvílíkum hraða yfir hraðahindrun að hann hafnaði á og skemmdi þrjá bíla sem lagt var í götunni.

Dregið úr bílaumferð í borgum Spánar
Allar borgir Spánar þurfa á næstu mánuðum að ákveða hvar umferð eldri og mengandi bifreiða verður bönnuð í framtíðinni. Þá verður borgaryfirvöldum heimilt að innheimta gjald fyrir bílaumferð í miðborgum.

Búið að opna vegina um Hellisheiði og Þrengsli
Vegirnir um Hellisheiði og Þrengslin hafa nú opnað aftur en þeim var lokað í morgun sökum ófærðar. Hálka er þó á svæðinu.

Vegir um Hellisheiði og Þrengsli lokaðir
Vegurinn um Hellisheiði er lokaður enn eina ferðina sökum ófærðar og sömu sögu er að segja um Þrengslin.

Fangaði undarlegt aksturslag „sjálfskipaðrar löggu“ á myndband
Útvarpsmaðurinn Kristófer Helgason varð vitni að heldur undarlegu aksturslagi bílstjóra sendiferðabifreiðar á Reykjanesbraut í dag. Hann greinir frá málinu á Facebook og birtir með myndband sem hann tók á myndavél í bílnum sínum.

Búið að loka Hellisheiði og Þrengslum og reikna með frekari lokunum
Búið er að loka Hellisheiði, Þrengslum og Sandskeiði, en stöðugt hefur bætt í vind á þeim slóðum. Von er á miklu óveðri á landinu í dag og má því fastlega reikna með að fleiri vegum verið lokað í dag.

Skafrenningur og þungfært víða
Aðstæður fyrir akstur eru víða slæmar og á það sérstaklega við með suðurströndinni þar sem vindur er mestur. Á Suðurlandi eru hálkublettir og skafrenningur á hringveginum. Annars staðar er þó víðast þæfingsfærð, hálka eða hálkublettir.

Stefnt að opnun Hellisheiðar um hádegi
Vegurinn um Hellisheiði er enn lokaður vegna snjóa og er stefnt að opnun um hádegisbil. Búið er að opna veginn um Þrengsli.

Strætó tekur vel í hugmyndir um frestun bílprófs
Flest ungmenni bíða ekki lengi með það að taka bílprófið þegar þau fá aldur til. Nú gæti sá möguleiki komið upp að hægt verði að fresta töku bílprófs um þrjú ár og fá í staðinn árskort í Strætó.

Öxnadalsheiðin er lokuð
Öxnadalsheiðin er lokuð vegna slæms veðurs. Bílar hafa farið út af í dag og flutningabíll hefur nú lokað veginum eftir óhapp.

Var með félaga sínum og má búast við mörghundruð þúsund króna sekt
Ökumaður sem átti að vera í einangrun vegna Covid-19 en var stöðvaður í bifreið sinni af lögreglu í gær má eiga von á sekt upp á 150-500 þúsund krónur.

Flutningabílar lentu utanvegar á Holtavörðuheiði
Tveir flutningabílar fóru út af veginum á Holtavörðuheiði fyrr í kvöld en mikill vindur og hálka var á svæðinu. Færð hefur versnað víða um land og er vetrarfæri víðast. Heiðarnar á vestanverðu landinu eru erfiðar yfirferðar eða lokaðar.

Sprenging í bílaþvotti eftir flugelda
Íslendingar flykkjast þessa dagana í þúsundatali með bíla sína á bílaþvottastöðvar til að losna við drulluna af bílum sínum. Hún hefur verið sérstaklega mikil vegna veðurskilyrða eftir flugeldasprengingarnar um áramótin.

Búist við víðtækum lokunum á þjóðvegum: Holtavörðuheiði lokað
Búist er við lokunum víða á þjóðvegum landsins vegna slæmrar færðar í dag, en Holtavörðuheiði hefur meðal annars verið lokað. Gular viðvaranir eru í gildi í öllum landshlutum og appelsínugul viðvörun er á Suðausturlandi vegna veðurs.

„Gott væri að fækka ferðum á bílum“
Styrkur svifryks og köfnunarefnisdíoxíðs var nokkuð hár í borginni í morgun samkvæmt mælingum á þremur mælistöðvum Reykjavíkur. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mælir með því að notkun bílsins verði lágmörkuð í dag.

Hvunndagshetja Hvammstanga vegna „skrítins áhugamáls“
Hlynur Rafn Rafnsson, sem kallaður er Hlynur Rikk, tók sig til í haust og keypti sér ruðningstæki og sanddreifara á fjórhjól sitt. Það hefur hann svo notað í vetur til að ryðja snjó af gangstéttum á Hvammstanga, við mikla kátínu bæjarbúa.

Muna ekki eftir rólegri Þorláksmessu: „Við vorum mjög sáttir með daginn“
Lítil umferð var á höfuðborgarsvæðinu í dag en lögreglan segir að fáir hafi verið á ferli miðað við það sem almennt mætti gera ráð fyrir á Þorláksmessu. Færð hafi verið góð og almenningur hafi líklega verið fyrr á ferðinni í jólaundirbúningi þetta árið.

Segja reglurnar allt of harkalegar og að starfsfólk óttist að verða gert að blórabögglum
Framkvæmdastjóri Tékklands bifreiðaskoðunar segir nýjar reglur um ástandsskoðun ökutækja ganga allt of langt. Starfsfólk óttist að verða gert að blórabögglum og kvíði breytingunum.

Mun erfiðara verði að koma bílnum í gegnum skoðun
Mun erfiðara verður að koma ökutækjum í gegnum skoðun á næsta ári eftir að reglugerð um ástand þeirra verður hert til muna og vanrækslugjöld hækkuð. Þá verða ríkari kröfur gerðar til skoðanastöðva en áður.

Hverfið við stokkinn verði gjörbreytt eftir fimm ár
Deildarstjóri hverfisskipulags Reykjavíkur telur að ásýnd Hlíðahverfis við fyrsta áfanga Miklubrautarstokks verði gjörbreytt eftir fimm ár. Þá hefur hann ekki áhyggjur af hljóðvist í nýbyggingum þétt upp við gatnamót Háaleitisbrautar, þangað sem stokkurinn nær ekki.

Snjóþekja á Hellisheiði og hálka á Reykjanesbraut
Vetrarfærð er víðast hvar á landinu og hálkublettir á flestum stofnleiðum á höfuðborgarsvæðinu.