Erlent

Bið­tíminn í um­ferðinni hvergi lengri en í Lundúnum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Það þarf þolinmæði til að ferðast um á bíl í Lundúnum.
Það þarf þolinmæði til að ferðast um á bíl í Lundúnum. Getty

Hvergi í Evrópu þurfa ökumenn að bíða lengur í umferðinni en í Lundúnum, þar sem meðalbiðtíminn var 101 klukkustund í fyrra samkvæmt greiningarfyrirtækinu Inrix.

Biðtíminn hefur lengst um tvær klukkustundir frá því í fyrra og fjórar frá árinu 2022.

Samkvæmt Inrix er umferðaröngþveitið Bretlandi mest á A40 Westway í Lundúnum, sérstaklega á milli klukkan 17 og 18.

París vermir annað sætið á listanum yfir verstu umferðina í borgum Evrópu, þar sem ökumenn máttu sitja fastir í að meðaltali 97 klukkustundir árið 2024, og Dublin þriðja sætið en þar var biðtíminn 81 klukkustund.

Að sögn Bob Pishue, greinanda hjá Inrix, hefur umferðarmagn haldist nokkuð stöðugt í Lundúnum en aukist verulega í öðrum borgum á Bretlandseyjum, meðal annars um þrettán prósent í Manchester.

Hann segir vegaframkvæmdir hafa haft umtalsverð áhrif á ferðatíma innan höfuðborgarinnar. Þá megi rekja miklar umferðartafir til þéttbýlis borgarinnar og mikilla efnhagslegra umsvifa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×