Fótbolti
104 105 106 107 108 109 110 111 112 … 334 ›
Alfreð skoraði fyrir Lyngby og Hákon fyrir FCK Alfreð Finnbogason heldur áfram að skora mikilvæg mörk fyrir Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni, en hann skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Horsens í dag. Þá skoraði Hákon Arnar Haraldsson fyrra mark FCK í 2-1 sigri gegn Viborg. Fótbolti 19.3.2023 16:22
Napoli valtaði yfir Torino og titillinn blasir við Það virðist vera fátt sem getur komið í veg fyrir það að Napoli tryggi sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnuí fyrsta skipti síðan árið 1990. Liðið er með 21 stigs forskot eftir afar sannfærandi 4-0 sigur gegn Torino í dag. Fótbolti 19.3.2023 16:09
Arsenal með átta stiga forskot eftir sigur gegn þjálfaralausu liði Crystal Palace Arsenal vann öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 19.3.2023 13:31
Enginn spilað meira en Bruno Fernandes Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, verður seint sagður latur knattspyrnumaður. Enginn leikmaður í bestu fimm deildum Evrópu hefur spilað meira en Portúgalinn á þessari leiktíð. Enski boltinn 19.3.2023 08:01
Lét allt og alla hjá Tottenham heyra það eftir leik Antonio Conte var ekki skemmt eftir að lið hans, Tottenham Hotspur, missti niður tveggja marka forystu gegn Southampton, botnliði ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Það fengu allt og allir það óþvegið þegar hann mætti á blaðamannafund að leik loknum. Enski boltinn 18.3.2023 23:30
Miðvörður Víkinga mögulega með slitið krossband Kyle Douglas Mc Lagan, miðvörður bikarmeistara Víkings, fór meiddur af velli þegar Víkingur tapaði 1-0 fyrir Val í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu. Óttast er að hann sé með slitið krossband í hné. Íslenski boltinn 18.3.2023 22:01
Dortmund á toppinn eftir stórsigur Borussia Dortmund tyllti sér tímabundið á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þökk sé 6-1 sigri á Köln. Þýskalandsmeistarar Bayern München þurfa sigur gegn Bayer Leverkusen á morgun til að ná toppsætinu að nýju. Fótbolti 18.3.2023 20:31
Jóhann Berg og félagar áttu aldrei möguleika gegn Håland og félögum Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley, toppliðs ensku B-deildarinnar, þegar liðið sótti Englandsmeistara Manchester City heim í 8-liða úrslitum ensku FA-bikarkeppninnar. Burnley sá aldrei til sólar en Man City vann öruggan 6-0 sigur. Enski boltinn 18.3.2023 17:17
Everton náði í stig á Brúnni Chelsea hafði unnið þrjá leiki í röð áður en Everton mætti á Brúnna í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 2-2 þar sem gestirnir jöfnuðu metin í blálokin. Enski boltinn 18.3.2023 17:00
KA mætir Val í úrslitum Lengjubikarsins KA hafði betur gegn ÍBV í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Íslenski boltinn 18.3.2023 18:31
Willum Þór og Orri Steinn hetjurnar Willum Þór Willumsson kom inn af bekk Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Utrecht. Orri Steinn Óskarsson er þá kominn á blað fyrir Sønderjyske í dönsku B-deildinni. Fótbolti 18.3.2023 18:00
Leeds upp um fimm sæti | Æsispennandi fallbarátta Fallbarátta ensku úrvalsdeildarinnar hefur sjaldan verið jafn spennandi. Aðeins munar fjórum stigum á Southampton sem situr á botni deildarinnar með 23 stig og Crystal Palace sem situr í 12. sæti með 27 stig. Enski boltinn 18.3.2023 17:16
Lucas Leiva glímir við hjartavandamál og leggur skóna á hilluna Brasilíski knattspyrnumaðurinn Lucas Leiva, sem líklega er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Liverpool, glímir við hjartavandamál og hefur því ákveðið að leggja skóna á hilluna. Fótbolti 18.3.2023 11:01
Sverrir Ingi dregur sig úr landsliðshópnum | Guðmundur kemur inn Sverrir Ingi Ingason, miðvörður PAOK í Grikklandi, hefur dregið sig úr landsliðshóp Íslands fyrir komandi leiki í undankeppni EM 2024. Í hans stað kemur Guðmundur Þórarinsson, leikmaður OFI Crete. Fótbolti 18.3.2023 08:00
Þróttarar enduðu með fullt hús stiga Þróttur Reykjavík vann FH 5-2 í lokaleik liðanna í riðlakeppni Lengjubikars kvenna. Þróttur endar með fullt hús stiga og er komið í undanúrslit keppninnar þar Breiðablik eða Stjarnan verða mótherjinn. Íslenski boltinn 17.3.2023 23:01
Isak hetja Newcastle í Skírisskógi Newcastle United vann 2-1 útisigur á Nottingham Forest í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski boltinn 17.3.2023 19:30
Eiður Smári blandar sér í umræðuna um Albert Guðmundsson Eiður Smári Guðjohnsen, einn af bestu knattspyrnumönnum sem Ísland hefur alið og fyrrverandi aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins, hefur blandað sér í umræðuna um Albert Guðmundsson og fjarveru hans íslenska landsliðshópnum. Fótbolti 17.3.2023 20:16
Alexandra skoraði í stóru tapi | Aron Einar á toppinn í Katar Alexandra Jóhannsdóttir skoraði eina mark Fiorentina í 5-1 tapi liðsins gegn Roma í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Aron Einar Gunnarsson og félagar í Al Arabi eru komnir á toppinn í Katar eftir 4-1 sigur á Al Sailiya. Fótbolti 17.3.2023 19:30
Albert Brynjar hjólar í Arnar Þór Albert Brynjar Ingason, fyrrverandi knattspyrnumaður og núverandi sparkspekingur hjá Stöð 2 Sport og hlaðvarpinu Dr. Football, hefur látið landsliðsþjálfarann Arnar Þór Viðarsson heyra það vegna ummæla Arnars Þórs um Albert Guðmundsson. Albert Brynjar er frændi Alberts. Fótbolti 17.3.2023 18:50
Potter segir að Mount muni ekki spila með landsliðinu þó hann hafi verið valinn Mason Mount, leikmaður Chelsea í ensku úrvalsdeildinni, var á dögunum valinn í enska landsliðið fyrir leiki liðsins í undankeppni EM 2024. Hann mun þó ekki spila mínútu með liðinu samkvæmt Graham Potter, þjálfara Chelsea. Enski boltinn 17.3.2023 18:01
Atsu lagður til hinstu hvílu Útför fótboltamannsins Christian Atsu, sem lést í jarðskjálftanum mikla í Tyrklandi í síðasta mánuði, var í dag. Fótbolti 17.3.2023 15:45
Knattspyrnumenn 50 prósent líklegri til að fá heilabilun Knattspyrnumenn eru 50 prósent líklegri til að fá heilabilun en annað fólk ef marka má nýja rannsókn við Karolinska-sjúkrahúsið í Svíþjóð. Niðurstöðurnar benda til þess að mögulega ætti að setja reglur um „skalla“ á knattspyrnuvellinum. Erlent 17.3.2023 09:17
Henry orðaður við kvennalandslið Frakklands Thierry Henry, fyrrverandi heims- og Evrópumeistari með franska landsliðinu, hefur verið orðaður við stöðu þjálfara franska kvennalandsliðsins. Corinne Diacre var nýverið rekin með skömm og er nafn Henry meðal þeirra sem nefnd hafa verið til sögnnar. Fótbolti 16.3.2023 15:31
Spiluðu kunnuglegt stef eftir að hafa slegið Liverpool út Real Madríd sló Liverpool út úr Meistaradeild Evrópu á heimavelli sínum, Santiago Bernabéu, í gærkvöld. Í kjölfarið spilaði plötusnúður heimaliðsins „You´ll never walk alone.“ Lagið sem er spilað fyrir hvern einasta heimaleik Liverpool. Fótbolti 16.3.2023 12:30
Tottenham neitar að selja Kane næsta sumar og gæti misst hann frítt Þegar félagaskiptaglugginn á Englandi opnar í sumar verður aðeins ár þangað til samningur framherjans Harry Kane við enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur rennur út. Hann virðist ekki vera á leiðinni að skrifa undir nýjan samning en það breytir því ekki að Tottenham hefur engan áhuga á að selja sinn besta mann. Enski boltinn 16.3.2023 12:01
Dómarar í bann eftir að hafa bætt 42 mínútum við leikinn Sex manna bólivískur dómararhópur var settur í bann í heilu lagi eftir leik í efstu deild í Bólivíu. Fótbolti 16.3.2023 11:30
Tottenham goðsagnir hafa eftir allt saman verið Man City aðdáendur Arsenal leiðir baráttuna um Englandsmeistaratitilinn í knattspyrnu karla eins og staðan er í dag. Manchester City fylgir fast á hæla þeirra og virðast nokkrir af fyrrverandi leikmönnum Tottenham Hotspur, menn sem titla mætti goðsagnir, hafa því tekið upp á því að styðja þá bláklæddu frá Manchester. Og segjast jafnvel hafa gert það í fjölda mörg ár. Enski boltinn 16.3.2023 11:02
„Að tapa sér í þessari umræðu finnst mér nokkuð sérstakt“ Arnar Þór Viðarsson tilkynnti í gær íslenska landsliðshópinn fyrir leikina tvo í undankeppni EM sem fram fara í næstu. Leikjahæsti landsliðsmaður frá upphafi er ekki í hópnum. Fótbolti 16.3.2023 07:30
Verður áfram forseti FIFA þar sem það er ekkert mótframboð Giovanni Vincenzo, eða einfaldlega Gianni, Infantino hefur setið í embætti forseta FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandsins, frá árinu 2016. Hann mun gera það áfram þar sem enginn býður sig fram gegn honum. Fótbolti 16.3.2023 07:01
„Ekki það sem við vildum en það sem við fengum“ Það var ekki bjart yfir Jürgen Klopp, þjálfara Liverpool, þegar hann mætti í viðtal eftir 1-0 tap sinna manna á Santiago Bernabéu-vellinum í Madríd. Eftir að hafa tapað 5-2 á heimavelli í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu var brekkan brött fyrir drengina frá Bítlaborginni. Fótbolti 15.3.2023 23:31