Fótbolti
102 103 104 105 106 107 108 109 110 … 334 ›
Íslensku stepurnar töpuðu gegn Dönum Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 23 ára og yngri mátti þola 3-1 tap er liðið mætti Danmörku í æfingaleik í dag. Fótbolti 6.4.2023 15:07
Heimsmeistararnir efstir á nýjum heimslista en Ísland fellur um eitt sæti Argentínsku heimsmeistararnir tróna á toppi nýs styrkleikalista FIFA yfir bestu knattspyrnuþjóðir heims. Argentínumenn stökkva upp um eitt sæti frá því að listinn var síðast gefinn út, en Ísland fellur hins vegar niður um eitt sæti. Fótbolti 6.4.2023 09:30
Dómari í langt bann fyrir að sparka í punginn á leikmanni Dómari í Mexíkó hefur verið dæmdur í tólf leikja bann fyrir að sparka í leikmann. Fótbolti 5.4.2023 07:31
Gísli Eyjólfsson: Maður vill auðvitað alltaf skora Gísli Eyjólfsson, miðjumaður Breiðabliks, var að vonum ánægður með 3-2 sigur síns liðs gegn Víkingum í kvöld eftir að hafa lyft bikarnum fyrir sigur í Meistarakeppni KSÍ. Sport 4.4.2023 22:36
U-beygja í leikmannamálum Segja má að nokkur lið Bestu deildar karla í knattspyrnu hafi tekið algjöra U-beygju í leikmannamálum sínum fyrir komandi tímabil. Lið sem hafa áður sótt þekktar stærðir hafa sóst meira í yngri leikmenn og lið sem hafa tekið inn unga leikmenn undanfarin ár hafa sótt þekktar stæðir. Íslenski boltinn 4.4.2023 09:01
„Þá þurfum við að spyrja okkur hvort við séum virkilega að auglýsa báðar deildir“ „Auglýsingin er skemmtileg, það er alveg á hreinu en þegar við horfum á þetta með kynjagleraugunum sjáum við að það hallar verulega á konur í þessari auglýsingu,“ segir Rebekka Sverrisdóttir, varaforseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna um nýja auglýsingu Bestu deildar karla og kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 4.4.2023 08:01
Keane bæði skúrkurinn og hetjan Leikur Everton og Tottenham Hotspur var í járnum þangað til Abdoulaye Doucoure fékk rautt spjald á 58. mínútu og gestirnir fengu vítaspyrnu tíu mínútum síðar. Gestirnir fengu hins vegar einni rautt spjald og Michael Keane jafnaði metin með einu óvæntasta langskoti síðari ára. Lokatölur á Goodison Park í kvöld 1-1. Enski boltinn 3.4.2023 18:31
Alfreð frá út tímabilið Alfreð Finnbogason mun ekki spila með Lyngby það sem eftir lifir tímabils eftir að hafa meiðst í síðasta leik liðsins. Liðið er sem stendur í neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 3.4.2023 20:30
Meistararnir byrja á þægilegum sigri Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar í sænska meistaraliðinu BK Häcken byrja tímabilið á öruggum 2-0 útisigri í Íslendingaslagnum gegn Elfsborg. Fótbolti 3.4.2023 19:31
Leicester hafði strax samband við Potter Leicester City rak Brendan Rodgers úr starfi sem þjálfari liðsins eftir tap gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardag. Graham Potter var rekinn degi síðar úr starfi þjálfari Chelsea og hafði Leicester City strax samband. Enski boltinn 3.4.2023 19:00
Alexander Helgi mættur í Kópavoginn á nýjan leik Íslandsmeistarar Breiðabliks halda áfram að sanka að sér leikmönnum. Alexander Helgi Sigurðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið og mun spila með Blikum í Bestu deild karla í knattspyrnu í sumar. Íslenski boltinn 3.4.2023 18:00
Arnar um brottrekstur nafna síns: „Virkilega skrítinn tímapunktur“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, var gestur í síðasta þætti hlaðvarpsins Chat After Dark. Var Arnar spurður hvort ákvörðun Knattspyrnusambands Íslands væri sanngjörn. Það er að reka Arnar Þór Viðarsson úr starfi landsliðsþjálfara. Íslenski boltinn 2.4.2023 13:01
Selfoss sendir tvær heim áður en mótið hefst Selfoss hefur ákveðið að senda tvo leikmenn sem áttu að spila með liðinu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í sumar heim á leið. Um er að ræða framherjann Mallory Olsson og markvörðinn Amöndu Leal. Íslenski boltinn 2.4.2023 11:31
Rooney stillti Guðlaugi Victori upp á miðjunni Guðlaugur Victor Pálsson spilaði allan leikinn á miðri miðju DC United í markalausu jafntefli í MLS deildinni í Bandaríkjunum. Íslendingarnir í deildinni hafa átt betri daga en þann í dag. Fótbolti 2.4.2023 11:00
Reiður Klopp sagði heildarframmistöðu sinna manna ekki boðlega Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, sagði aðeins fjóra leikmenn leikmenn liðsins hafa spilað „allt í lagi“ í 4-1 tapi liðsins gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Klopp var vægast sagt ósáttur er hann ræddi við blaðamenn að leik loknum. Enski boltinn 2.4.2023 07:00
Þórdís Hrönn ekki með Val í sumar Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, leikmaður Íslandsmeistara Vals í Bestu deild kvenna í knattspyrnu, mun ekki spila neitt á komandi tímabili þar sem hún sleit krossband nýverið. Frá þessu greindi hún sjálf á samfélagsmiðlum sínum. Íslenski boltinn 1.4.2023 23:15
„Þurfum að einbeita okkur að því sem við getum stjórnað“ Það var heimspekilegur Mikel Arteta sem ræddi við blaðamenn eftir 4-1 sigur toppliðs Arsenal á Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski boltinn 1.4.2023 22:31
Barcelona með níu fingur og níu tær á titlinum Þó enn sé nóg eftir af La Liga, úrvalsdeild karla í knattspyrnu, þá er Barcelona svo gott sem búið að vinna deildina. Liðið vann botnlið Elche 4-0 í kvöld. Fótbolti 1.4.2023 18:31
Þrátt fyrir fimmtán stiga frádrátt á Juventus enn möguleika á Meistaradeildarsæti Juventus vann lífsnauðsynlegan sigur í Serie A, úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Ítalíu, í kvöld. Með sigrinum á liðið enn möguleika á að ná Meistaradeildarsæti. Það er magnað fyrir þær sakir að fyrr á leiktíðinni voru 15 stig dregin af liðinu. Fótbolti 1.4.2023 21:01
Orri Steinn hetjan | Viðar Örn og Árni Vil á skotskónum Alls voru þrír íslenskir framherjar á skotskónum í kvöld. Orri Steinn Óskarsson heldur áfram að skora en hann skoraði sigurmark SønderjyskE þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Fótbolti 1.4.2023 20:01
Bayern gekk frá Dortmund á tíu mínútna kafla Bayern München vann Borussia Dortmund 4-2 í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Gregor Kobel, markvörður Dortmund, vill helst gleyma leik dagsins sem allra fyrst. Fótbolti 1.4.2023 18:50
Villa með sigur á Brúnni og vandræði Chelsea aukast Aston Villa vann frábæran 2-0 útisigur á Chelsea í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Enski boltinn 1.4.2023 16:01
Sex marka jafntefli í Brighton og Palace vann í endurkomu Hodgson Sex af sjö leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er nú lokið. Brighton og Brentford gerðu 3-3 jafntefli í fjörugum leik og Crystal Palace vann 2-1 sigur gegn Leicester í fyrsta leik liðsins eftir að hinn 75 ára gamli Roy Hodgson tók við liðinu á nýjan leik. Fótbolti 1.4.2023 16:12
Lánasjóður Roman Abramovich: „Lánaði Vitesse rúmlega 17 milljarða“ Roman Abramovich, fyrrverandi eigandi enska knattspyrnuliðsins Chelsea, „lánaði“ hollenska úrvalsdeildarfélaginu Vitesse allt að 117 milljónir evra [17,4 milljarða íslenskra króna]. Þetta kemur fram í skjölum sem miðillinn The Guardian hefur nú undir höndum. Var „lánunum“ haldið leyndum en hollenska knattspyrnusambandið skoðaði tvívegis eignarhald Vitesse meðan Roman átti Chelsea. Enski boltinn 29.3.2023 23:31
Bayern úr leik eftir tap í Lundúnum Íslendingalið Bayern München er úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir 2-0 tap fyrir Arsenal í 8-liða úrslitum keppninnar. Bayern leiddi 1-0 eftir fyrri leikinn en tvö mörk í fyrri hálfleik breyttu gangi einvígisins. Fótbolti 29.3.2023 18:31
Barcelona örugglega í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu Barcelona flaug inn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með 5-1 sigri á Roma í kvöld. Börsungar unnu einvígið samtals 6-1 og eiga því enn möguleika á að komast í úrslit þriðja árið í röð. Fótbolti 29.3.2023 18:45
Elskar Ísland og karakter Íslendinga Miloš Milojević þjálfaði á sínum tíma Víking og Breiðablik hér á landi en er í dag þjálfari Rauðu Stjörnunnar í heimalandi sínu Serbíu. Hann segist ánægður með að menn muni enn eftir sér hér á landi og segist elska bæði Ísland og karakterinn sem Íslendingar búa yfir. Íslenski boltinn 29.3.2023 18:00
„Þetta er gríðarlegt afrek hjá okkur“ Ólafur Ingi Skúlason segir það mikið afrek fyrir íslenska U-19 ára landslið karla í fótbolta að komast á lokamót EM í þessum aldursflokki. Fótbolti 29.3.2023 13:30
Öruggur sigur skaut Íslandi á EM: Myndir Orri Steinn Óskarsson og Hilmir Mikaelsson skoruðu mörk U19 ára landsliðs Íslands er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn Ungverjum í undankeppni EM í kvöld. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti á lokamóti EM sem fram fer á Möltu í júlí. Fótbolti 28.3.2023 20:29
Útilokar ekki að brjóta hundrað marka múrinn fyrir England Harry Kane, framherji Tottenham Hotspur og enska landsliðsins í fótbolta, segir að það sé ekki óhugsandi að hann muni skora hundrað mörk fyrir þjóð sína áður en skórnir fara á hilluna. Hann segist þó gera sér grein fyrir því að markmiðið sé háleitt. Fótbolti 28.3.2023 19:45